Málfregnir - 01.12.2002, Side 57

Málfregnir - 01.12.2002, Side 57
Stefnuskrá íslenskrar málnefndar 2002-2005 íslensk málnefnd íslensk málnefnd starfar eftir lögum nr. 2 frá 31. janúar 1990 með síðari breytingum. Hún er málræktar- og málverndarstofnun og rekur íslenska málstöð. Hlutverk málnefndarinnar er margþætt. Henni ber lögum samkvæmt að vinna að eflingu íslenskrar tungu og varðveislu hennar í ræðu og riti. Hún á einnig að vera stjórnvöldum til ráðuneytis um íslenskt mál og umsagnar hennar skal yfirleitt leitað áður en settar eru reglugerðir eða annars konar fyrirmæli um íslenska tungu. Nefnd- in á að vera í góðri samvinnu við þá sem mikil áhrif hafa á málfar almennings, svo sem Qölmiðla og skóla, og sömuleiðis við stofnanir sem koma að íslenskum manna- og staðanöfnum. Hún á að leiðbeina jafnt opinberum stofnunum sem almenningi um málfarsleg efni á fræðilegum grundvelli og gefa út rit til fræðslu og leiðbeiningar um íslenskt mál. Þá á málnefndin að vinna að skipulagðri nýyrðastarfsemi og hafa sam- vinnu við orðanefndir félaga og stofnana og vera þeim til aðstoðar. Einnig á málnefndin að hafa samstarf við aðrar málnefndir á Norðurlöndum og við aðrar erlendar málnefndir eftir ástæðum. Staða íslenskrar tungu í breyttu þjóðfélagi Miklar og örar breytingar hafa orðið á íslensku þjóðfélagi á síðustu tveimur ára- tugum sem óhjákvæmilega hafa áhrif á þróun tungunnar. Erlend mál, einkum enska, sækja víða á innan vísinda og tækni, jafnt á börn sem fullorðna, og mikilvægt er að vinna markvisst að því að íslenska missi ekki gildi sitt á þessum sviðum. En víðar þarf að taka til hendinni. Fjölmiðlar og auglýsingafyrirtæki geta haft mikil áhrif á málfar almennings og sama gildir um fjölmörg önnur fyrirtæki innan atvinnu- lífsins. Norræna ráðherranefndin lét vinna skýrslur á öllum Norðurlöndum um svo- nefndan umdæmisvanda (domænetab) en þar er átt við stöðu ensku gagnvart Norðurlandamálum þannig að notkunarsvið þjóðtungna þrengist. Ari Páll Kristinsson, forstöðumaður Islenskrar málstöðvar, vann íslensku skýrsluna og er hún birt á heima- síðu málstöðvarinnar (www.ismal.hi.is/ utredning.html). Hann athugaði einkum ástandið innan skólakerfis, hjá fjölmiðlum, í háskólastarfi og vísindum og í stjórn- sýslunni. Hann komst að þeirri niðurstöðu að áhrifin væru ekki svo mikil á umrædd- um sviðum að hægt sé að tala um að enska sé þegar orðin þar ráðandi en teikn séu á lofti um að viðhorf til notkunar ensku í viðskiptalífinu og innan atvinnufyrirtækja séu að breytast. Fari að hrikta í einni stoð geta aðrar skekkst og að lokum fallið. Hér á eftir er birt stefnuskrá Islenskrar málnefndar fyrir árin 2002-2005. Lögð hefur verið áhersla á að benda á raunhæf verkefni sem nauðsynlegt er að vinna að á komandi árum og valin nokkur sem mál- nefndin telur brýnast að sinna á starfstíma sínum. Margt er þegar í gangi sem styðja þarf við, m.a. nýyrðastarfsemin, en önnur mikilvæg verkefni bíða úrlausnar. Tillögur um raunhæf verkefni Skilgreina þarf ólíka markhópa eða vettvang. Það sem til greina kemur er einkum eftirfarandi: Börn og unglingar Almenningur Innflytjendur Skólar Vísindi og fræði Fjölmiðlar Fyrirtæki og þjónusta Af framantöldu telur málnefndin brýnast að leggja rækt við 57

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.