Málfregnir - 01.12.2002, Side 59
• Hvetja tölvufyrirtæki til að takast á við
verkefni sem felast í því að aðlaga
forrit að íslensku, eða til nýsköpunar á
því sviði, svo sem eins og leiðréttingar-
forrit,tölvupóstforrit,talgreiningarforrit,
símsvörunarforrit og skjástafaforrit.
• Vekja athygli á tungumálanotkun í
netheimum með greinaskrifum.
Þar sem börn og unglingar lifa og hrærast
mikið í enskumælandi umhverfi er
nauðsynlegt að haldið sé að þeim íslensku
máli rituðu sem töluðu og að þau öðlist
skilning á gildi íslensku fyrir þau sem
einstaklinga og fyrir samfélagið og þyki
íslenska sjálfsögð, eftirsóknarverð og
skemmtileg. Auka þarf vitund þeirra um
tungumálið og hlut þess í menningu okkar
og þeirra eigin sjálfsmynd.
Fjölmiðlaumhverfi unglinga og dagskrár-
gerð fyrir þá er að mestu leyti háð auglýs-
endum og markaðssjónarmið eru ráðandi.
Efla þarf vitund stjórnenda fyrirtækja um
ábyrgðar- og uppeldishlutverk sitt þegar
kemur að efni sem þeir kosta og ætlað er
börnum og unglingum.
Mikilvægt er að efld verði íslensk dag-
skrárgerð í sjónvarpi og gerð leikins efnis
sem endurspeglar íslenskan veruleika.
Mikilvægt er að styðja við íslenska
bókmenntasköpun, ekki sist barna- og
unglingabókmenntir og vekja börn til
vitundar um sköpunarmátt tungumálsins.
► Því ætti eitt af verkefnum íslenskrar
málnefndar að vera að vekja börn og
unglinga til vitundar um íslensku og
tungumálaaðstæður almennt og að stuðla
að þjálfun í íslenskri málnotkun.
►Raunhæf verkefni:
• Upplestrarkeppni.
(Er í gangi: Stóra upplestrarkeppnin)
• Ritunarkeppni. (Er í gangi: Fernuflug)
• Nýyrðasamkeppni.
• Bókmenntaþing ungra lesenda.
• Verðlaun fyrir bestu bekkjarheima-
síðuna.
• Upplýsinga- og vinnuhefti með verk-
efnum þar sem vakin er athygli á
notkun íslensku og sambandinu við
enska tungu, sbr. norska heftið Norsk -
i nye tusen ár? (http://www.sprakrad.
no/tusen.htm).
• Gagnvirk rafræn próf eða getraunir í
málnotkun og stafsetningu.
• Sjónvarpsstöðvar hvattar til dagskrár-
gerðar um vísindi og samfélag fyrir
börn.
Efla þarf vitund forráðamanna fyrirtækja
og þjónustustofnana um rétt Islendinga til
að fá að nota móðurmál sitt við störf sín og
að íslenska sé ætíð notuð í starfsemi sem
snýr að innlendum markaði, hvort heldur
er í auglýsingum, verkefnalýsingum,
skýrslugerð, fundarhöldum, viðmóti við
viðskiptavini o.fl.
► Því ætti eitt af verkefnum íslenskrar
málnefndar að vera að efla skilning fólks á
mun á móðurmáli og erlendu tungumáli og
vekja athygli á þætti tungumálsins í
sjálfsmynd einstaklingsins.
► Raunhæf verkefni:
• Greinaskrif um umdæmisvandann og
tungumálið sem hluta sjálfsmyndar
einstaklinga og hvernig það tengist
muninum á því að tjá sig á móðurmáli
og erlendu máli.
• Upplýsingahefti um það sama.
• Upplýsingahefti um nafngiftir fyrir-
tækja, sbr. norska heftið Navn i neon
(http://www.sprakrad.no/neon.htm).
• Samkeppni um bestu einkunnarorðin
og besta auglýsingatextann. Fá þetta
inn í hina árlegu samkeppni um bestu
auglýsinguna.
• Verðlaun fyrir vel heppnaðar notkunar-
leiðbeiningar.
• Hvatt til starfstengdra íslenskunám-
skeiða fyrir erlenda starfsmenn.
• Hvatt til ráðningar málfarsráðunauta i
stórfyrirtækjum.
59