Málfregnir - 01.12.2002, Síða 61
►Viðhorfskönnun til tungumálsins (Er í
gangi hvað varðar nýyrði: Rannsóknar-
verkefnið Moderne importord i spráka i
Norden. Ei gransking av bruk, norm og
sprákholdningar.)
►Hvetja til þess að málfarsráðgjafar verði
ráðnir að stóru fjölmiðlunum.
►Huga að því hvort lögleiða eigi íslensku
sem ríkismál (sbr. Mál i mun 2002).
►Hlúa áfram að verkefnum sem þegar er
unnið að hjá Islenskri málnefnd svo sem
stuðningi við orðanefndir og gerð staf-
setningarorðabókar.
Starfstímabilið 2002-2005
Nefnd hafa verið margs konar verkefni
sem Islensk málnefnd telur brýnt að unnin
séu en ljóst er að hvorki fjárveitingar né
mannafli er fyrir hendi til að sinna þeim
öllum á starfstíma nefndarinnar. Því leggur
Islensk málnefnd til að auk reglulegra
starfa nefndarinnar verði einkum unnið að
eftirfarandi verkefnum á starfstímabilinu
2002-2005:
►Standa árlega að málræktarþingi í
tengslum við dag íslenskrar tungu. Leitast
skal við að viðfangsefni þinganna höfði til
almennings og að þar séu tekin til umræðu
málfarsefni sem eru í brennideplinum
hverju sinni.
► Gefa út nýja stafsetningarorðabók um
íslenska tungu.
►Fá inn í hina árlegu samkeppni um bestu
auglýsinguna einnig samkeppni um bestu
einkunnarorðin og besta auglýsingatextann.
►Hafa samvinnu við menntastofnanir um
að vekja börn og unglinga til vitundar um
íslensku og tungumálaaðstæður almennt
og stuðla að þjálfun í lestri og framsögn.
Hlúa að stóru upplestrarkeppninni og
standa að bókmenntaþingi ungra lesenda.
►Hefja undirbúning að útgáfu upplýsinga-
og vinnuheftis með verkefnum þar sem
vakin er athygli á notkun íslensku og
sambandinu við enska tungu, sbr. norska
heftið Norsk - i nye tusen ár?
► Hvetja tölvufyrirtæki til að takast á við
verkefni sem felast í því að aðlaga forrit að
íslensku og til nýsköpunar á því sviði.
►Hvetja fyrirtæki, þjónustustofnanir og
ekki síst fjölmiðla til að ráða til sin
málfarsráðgjafa.
►Hvetja fyrirtæki, þjónustustofnanir og
hið opinbera til að standa að starfstengdum
íslenskunámskeiðum fyrir erlenda
starfsmenn.
►Leggja drög að undirbúningi að handbók
um málnotkun í víðum skilningi svipaðri
Politikens Nudansk hándbog.
► Standa að skrifum í blöð og tímarit þar
sem vakin er athygli almennings og
ráðamanna á ýmsum þeim atriðum sem
rædd voru hér að framan.
Heimildir
Ari Páll Kristinsson. 2001. Utredning om
de nordiske sprákenes domener og det
siste tiárs sprákpolitiske initiativ. Island.
Nordisk ministerráds sprákpolitiske
referansegruppe. (http://www.ismal.hi.is/
utredning.html)
Förslag till handlingsprogram för att
framja svenska spráket. 1999. Sprák i
Norden, bls. 78-105.
Mál i mun - Förslag till handlingsprogram
för svenska spráket. 2002. Parlamentarisk
sprákkommitté. SOU 2002:27. (http://
kultur.regeringen.se/index.htm)
Navn i neon - et tilbud til bedrifter, etater
og organisasjoner. Norsk sprákrád, Ósló.
(http://www.sprakrad.no/neon.htm)
Norsk - i nye tusen ár? Norsk sprákrád,
Ósló. (http://www.sprakrad.no/tusen.
htm)
Tómas I. Olrich. 2001. Menningartengd
ferðaþjónusta. Samgönguráðuneytið,
Reykjavík.
61