Bændablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 1
- Sjá nánar bls. 24-25 Mynd / HKr.
Heilu vistkerfin geta fylgt
með innfluttum plöntum
Ryðsveppur, asparglitta, birki-
kemba, fíflalús og spánarsnigill
– allt eru þetta tiltölulega nýjar
lífverur í íslensku vistkerfi sem
smám saman eru að festa sig í sessi
ásamt ýmsum öðrum smádýrum
og sveppum.
Hækkandi lofthiti og aukinn
flutningur á lifandi plöntum og
mold til landsins mun án efa auka
fjölbreytnina í framtíðinni og
möguleika nýrra landnema til að
ná fótfestu hér. Flest kvikindin sem
hingað berast eru saklaus og ekki
til neinna vandræða en önnur geta
valdið talsverðu tjóni á gróðri.
Mörgum er illa við þessar framandi
lífverur og telja þær skaðvalda, enda
hefur t.d. ryðsveppur lagst þungt á
ýmsar víðitegundir og birkikemba
er lýti á birki. Asparglittur og
spánarsniglar eru stór og áberandi
dýr sem eiga sér fáa náttúrulega óvini
hér, það er helst að pardussnigill, sem
fannst hér fyrst um aldamótin síðustu,
leggi sér spánarsnigla til munns.
Samkvæmt upplýsingum frá
Matvælastofnun Íslands má hvorki
flytja lifandi plöntur né mold til
landsins án þess að viðkomandi
sendingu fylgi heilbrigðisvottorð
frá framleiðslulandinu. Þegar
plöntur eru fluttar inn í pottum með
mold á rótunum geta fylgt með
alls konar smákvikindi og jafnvel
plöntusjúkdómar sem ekki hafa
fundist hér áður. /VH
– Sjá nánar á bls. 18-19
10 26 32