Bændablaðið - 17.07.2014, Side 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Landssamband kúabænda sótti
fyrir allnokkru um heimild til
innflutnings sæði úr holdanautum
á fimm eða sex kúabú og að
ráðherra nýtti undanþáguheimild
í lögum um innflutning á dýrum
svo að slíkt yrði mögulegt.
Sigurður Ingi Jóhannsson,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, sagði í stuttu samtali
við Bændablaðið að það þyrfti
lagabreytingu til að flytja inn
erfðaefni úr nautgripum og nota það
til sæðingar á búum sem ekki væri
skilgreind sem sóttvarnarbú.
„Allar líkur benda til þess að
það þurfi lagabreytingu til að
innflutningur á sæði úr norskum
nautum geti hafist til landsins.
Ráðuneytið er búið að senda
Landssambandi kúabænda bréf
vegna fyrirspurnar þess um tilhögun
þessa máls.“
Lagabreyting nauðsynleg
Núgildandi lög gera ráð fyrir að
ekki megi flytja inn erfðaefni úr
nautgripum án þess að sæðing kúa
fari fram í sóttkví og kálfar undan
þeim séu einnig aldir í sóttkví.
Sigurður segir að hugsanlega væri
hægt að flytja inn sæði á bú í dag sem
búið væri að skilgreina sérstaklega
sem einangrunarbú í tiltekin tíma og
að viðhöfðum sérstökum skilyrðum.
„Gallinn við þá tilhögun er að
erfðaefnið væri bundið við það bú
og þannig breytir það í raun litlu. Ég
mun því leggja fram breytinga við
núgildandi reglur í haust.“
Vonbrigði með svar ráðherra
Sigurður Loftsson, formaður
Landssambands kúabænda, segir að
því miður hafi ráðherra hafnað beiðni
landssambandsins á grundvelli álits
frá yfirdýralækni.
„Túlkun yfirdýralæknis á lögum
um innflutning á dýrum kemur okkur
töluvert á óvart. Við teljum að með
því að leyfa innflutninginn fengjum
við inn á ákveðin bú sæði sem gæfi af
sér kvígur og naut. Kvígurnar hefðu
getað verið áfram á viðkomandi búi
til að styrkja erfðastöðu stofnsins
þar og einhverjir af tuddunum gætu
verið notaðir til undaneldis á sama
búi.
Ég skil vel að ekki megi flytja
gripi milli búa mér finnst skrýtið
að lögin séu túlkuð þannig að ekki
megi flytja gripi sem fæðast af
þessu erfðaefni í sláturhús og selja
á markaði. Ég hef ekki séð neitt sem
bendir til því fylgi nein áhætta.
Svar ráðherra er okkur því
gríðarleg vonbrigði og við munum
áfram vinna að því að þessu lögum
verði breytt.“
Langur aðdragandi
Sigurður segir Landssambandið hafa
lagt mikla vinnu í undanþágubeiðnina
og að unnið hafi verið áhættumat af
hálfu tveggja aðskilinna aðila sem
tengjast innflutningnum.
„Ráðuneytið lét Matvælastofnun
framkvæma mat og við fengum
viðurkennda norska stofnun til að
gera annað. Niðurstaða beggja var
að sýkingarhættan sem felst í því
að flytja sæðið beint inn á bú sé
hverfandi eða lítil hvað varðar fjölda
sjúkdóma.
Við höfðum talsverðar væntingar
til þess að undanþáguheimildin í
lögunum yrði nýtt og að við gætum
flutt inn sæðið í sumar þar sem svarið
er neikvætt verður næsta skref hjá
okkur að fara yfir stöðuna aftur.
Ég skynja ákveðinn vilja innan
ráðuneytisins til að innflutningurinn
verði leyfður og að ráðherra ætli að
leggja fram tillögu að lagabreytingu
í haust, sem er í sjálfu sér gott verði
það samþykkt. Slíkt þýðir aftur á móti
að við getum ekki hafið innflutning
á sæði á þessu ári og að hér fæðast
engir kálfar af því fyrr en 2016. Eins
og ástandið er á nautakjötsmarkaði
í dag vinna allar tafir gegn okkur,“
segir Sigurður Loftsson, formaður
Landssambands kúabænda. /VH
Fréttir
Dr. Björn Þorsteinsson hefur verið
skipaður rektor Landbúnaðar-
háskóla Íslands tímabundið frá
1.ágúst til 31. desember næst
komandi . Á þessu tímabili verður
undirbúin ráðning nýs rektors.
Það er undir pólitíkinni komið
hvort þráðurinn verður tekin upp
að nýju með sameiningu LbhÍ
og HÍ. Hann segir ýmsa kosti við
sameiningu skólanna en að slík
sameining myndi taka tíma og
krefjist mikillar vinnu.
Skipunin kemur í framhaldi
af ákvörðun sem tekin var á
fundi háskólaráðs. Í samþykkt
háskólaráðs Lbhí segir að
skipunartími núverandi rektors
Landbúnaðarháskóla Íslands
ljúki 31. júlí. Fyrir liggur að hann
sækist ekki eftir endurráðningu
á nýju skipunartímabili. Vegna
þessara aðstæðna ber háskólaráði
að undirbúa tilnefningu nýs rektors.
Rektor til áramóta
Háskólaráð Landbúnaðarháskóla
Íslands lagði til við mennta- og
menningarmálaráðherra að Dr.
Björn Þorsteinsson aðstoðarrektor
kennslumála verði settur í
embætti rektors til 31. desember
næstkomandi. Háskólaráðið
mun þegar hefja undirbúning
að tilnefningu nýs rektors
Landbúnaðarháskóla Íslands sem
ráðherra skipar til fimm ára frá og
með 1. janúar 2015. Háskólaráð
hefur ákveðið að starfið verði
auglýst opinberlega.
Háskólaráð hefur skipað
sérstaka undirbúningsnefnd sem
í sitja Sigríður Hallgrímsdóttir,
Bjarni Stefánsson og Hilmar
Janusson, sem mun undirbúa
ráðningarferlið. Gert er ráð fyrir að
auglýsa starfið í byrjun september.
Stefnt er að því að niðurstaða um
ráðningu nýs rektors liggi fyrir í
desember.
Tímabundin ráðning
vegna óvissu
Björn segir skipun sína sem rektors
vera tímabundna og til þess að brúa
millibilsástand sem hafi myndast
vegna óvissu um það hvort
Landbúnaðarháskólinn mun áfram
starfa sem sjálfstæð stofnun eða
verða sameinaður Háskóla Íslands.
„Þessi mál eru enn í óvissu og
því um bráðabirgðalausn að ræða.
Í framhaldinu af ráðningu minni
fer af stað vinna sem felst í því að
auglýsa stöðuna lausa til umsóknar,
taka við umsóknum og meta hæfni
umsækjenda og að lokum að ráða
í stöðuna.“
Að spurður segist Björn ekki
viss hvort hann muni sækja um
starfið en neitar ekki að svo geti
farið.
Rausnarleg áform
Björn segir sjá ýmsa kosti við að
Landbúnaðarháskólinn og Háskóli
Íslands yrðu sameinaðir.
„Litlir háskólar eins og LbhÍ hafa
átt erfitt uppdráttar undanfarið og mér
hafa þótt áform menntamálaráðherra
um uppbyggingu og eflingu á
Hvanneyri eftir sameininguna við
HÍ rausnarleg.
Starfi Landbúnaðarháskólinn
áfram sem sjálfstæð stofnun er
ljóst að hún þarf að greiða niður
talsverðar skuldir og starfa innan
mun þrengri fjárheimilda en verið
hefur. Þrengri fjárheimildum mun
fylgja frekari hagræðing og um leið
fækkun starfsmanna.
Þrír fjórðu akademískra starfs-
manna við skólann telja sameiningu
við HÍ og þá uppbyggingu sem henni
fylgir fýsilegan kost. Sameining yrði
samt ekki fyrirhafnarlaus og það
myndi kosta heilmikla útsjónarsemi í
skipulagningu þannig að við næðum
tilætluðum samlegðaráhrifum. Það
er þó Alþingi sem ræður þessu að
lokum og við verðum að hlíta þeirri
niðurstöðu sem þar fæst.“
Doktor í plöntulífeðlisfræði
Björn er með doktorspróf í plöntu-
lífeðlisfræði frá Stokkhólmsháskóla
og og kennsluréttindanám frá
Háskóla Íslands. Hann var aðal-
kennari grunngreina við Búvísinda-
deild Bændaskólans á Hvanneyri
1990 til 2000 og forstöðumaður
rannsóknastofu frá 1991. Hann var
prófessor við Landbúnaðarháskólann
á Hvanneyri 2000 til 2005 og hefur
auk þess verið aðstoðarrektor
kennslumála frá 2005. /VH
Nýr rektor á Hvanneyri
– Björn Þorsteinsson skipaður rektor LbhÍ til næstu áramóta
Dr. Björn Þorsteinsson, nýr rektor LbhÍ, þekkir vel til á Hvanneyri.
Sigurður Loftsson.
Innflutningur á sæði úr norskum nautgripum:
Beiðni kúabænda hafnað
en unnið að lagabreytingu
Reglugerð um vistvæna landbúnaðarframleiðslu endurskoðuð:
Framleiðendur hvattir til að sækja um vottun
Sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra hefur ákveðið að skipa
starfshóp til að endurskoða
reglugerð um vistvæna
landbúnaðarframleiðslu. Hópnum
er ætlað að fara yfir reglugerð um
vistvæna landbúnaðarframleiðslu
í heild sinni, meðal annars allar
skilgreiningar á framleiðslunni og
reglur um eftirlit.
Tillögum hópsins er ætlað að
byggja nýjan grunn að reglum um
vistvæna landbúnaðarframleiðslu.
Þar til þeirri vinnu lýkur verður
stuðst við núgildandi reglugerð
og þeir framleiðendur sem
áður hafa fengið vottun geta á
grundvelli reglugerðarinnar fengið
viðurkenningu á því að þeir standist
skilyrði hennar. Áfram verður stuðst
við gildandi merki um vistvæna
framleiðslu.
Samkvæmt 4. grein núverandi
reglugerðar geta framleiðendur óskað
eftir viðurkenningu á vistvænni
landbúnaðarafurð til viðkomandi
búnaðarsambands. Framleiðendur
sem nú nýta sér merkið eru hvattir
til að óska sem fyrst eftir úttekt til
búnaðarsambands á sínu starfssvæði.
Framleiðendum sem óska þess að fá
framleiðslu sína viðurkennda sem
vistvæna er á sama hátt bent á að
sækja um til búnaðarsambands við
fyrsta tækifæri.
Atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið mun halda skrá um þá
sem fá slíka viðurkenningu og birta
á heimasíðu sinni. Atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytið vill með
aðgerðum sínum núna, í samstarfi
við samtök framleiðenda og
neytenda, koma reglum um vistvæna
landbúnaðarframleiðslu í betra horf
svo ekki þurfi að leika vafi á því í
hugum neytenda hvaða framleiðsla
hefur rétt til að nýta sér það heiti.
Hópinn skipa fulltrúar
atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytisins, Bændasamtaka Íslands
og Sölufélags garðyrkjumanna. Auk
þess hefur Neytendasamtökunum
verið boðið að skipa fulltrúa.
Garðtraktorar
mikið úrval
ÞÓR HF
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Sigurður Ingi Jóhannesson.