Bændablaðið - 17.07.2014, Side 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Málgagn bænda og landsbyggðar
Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði.
Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu.
Árgangurinn kostar kr. 7.200 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.600. Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands.
Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300– Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 – Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is
Blaðamenn: Freyr Rögnvaldsson fr@bondi.is – Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is
– Sigurður M. Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is
Auglýsingastjóri: Erla H. Gunnarsdóttir ehg@bondi.is – Sími: 563 0303 – Myndvinnsla og frágangur: Prentsnið.
Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is
Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621
LEIÐARINN
Þótt ætla mætti að allt væri að
fara til andskotans út af rigningu á
Íslandi þessar vikurnar er langur
vegur frá því að sú sé raunin ef
horft er á allt landið. Austfirðingar,
Norðlendingar og jafnvel
Vestfirðingar hafa oft á tíðum
verið í bærilegu veðri í sumar og
íbúar á norðausturhorninu jafnvel
í afburðablíðu og sólskini. Þar er
hins vegar lítið um útvarps- og
sjónvarpsstöðvar, enda eru þær
flestar á rigningarsvæðinu í
Reykjavík.
Þó að fréttamönnum hætti til að
grípa það sem hendi er næst og hugsa
ekki um það sem ekki fæst, eða
þannig, er það samt ekki af eintómum
illvilja sem fréttir virðist oft snúast
um naflaskoðun höfuðborgarbúa.
Oft er ókunnugleika fréttamanna
um að kenna en það þarf samt tvo
til og stundum fleiri til að frétt
eða umfjöllun verði að veruleika
og komist á prent eða út á öldur
ljósvakans. Því er mjög mikilvægt
að fólk utan höfuðborgarsvæðisins
sé duglegt við að koma góðum
fréttum á framfæri og miðli þeim
þannig til annarra.
Bændablaðið hefur í þessu efni
notið dyggrar aðstoðar fólks um
allt land og því þurfum við sem þar
störfum ekki mikið að kvarta. Miklu
frekar að þakka dyggan stuðning
og umhyggju landsmanna fyrir
heimabyggðum sínum og málefnum
þeirra. Samt getur stundum skort
nokkuð á að upplýsingagjöf frá
sumum svæðum sé í lagi þó að eftir
henni sé leitað.
Ef fólki sýnist að því sé illa sinnt
hvað frásagnir af atburðum varðar á
það hiklaust að taka upp símann og
láta okkur vita eða senda tölvupóst.
Það er nefnilega þannig að það sem
menn halda bara fyrir sig getur
aldrei orðið frétt eða frásögn. Samt
er það líka stundum þannig að þó að
einhver telji sig vera með stórmál í
höndum getur það verið skotið í kaf
við nánari skoðun af þeim sem betur
þekkja til. Það kemur líka oft fyrir
að við sem störfum í þessum geira
drögum rangar ályktanir og ekkert
verður úr umfjöllun af þeim sökum.
Enginn er óskeikull í þessum efnum
frekar en öðru.
Hvað sem öllum slíkum
vangaveltum líður þá verður gott
veður á Íslandi næstu vikurnar,
aðeins mismunandi gott eftir
svæðum.
Allt veður hefur sinn sjarma hvað
ásýnd landsins varðar. Það er ekki
síst sá veruleiki sem gerir það svo
skemmtilegt að ferðast um landið,
sem er aldrei eins frá einum degi til
annars. Njótum veðursins!
/HKr.
Frábært veður
LOKAORÐIN
Þýðing tolla og sóttvarna
Tollvernd er önnur af tveimur meginstoðum
stuðnings við landbúnað, bæði hér á Íslandi
og annars staðar í heiminum. Tilgangur
tollverndar er að jafna stöðu innlendrar
framleiðslu gagnvart innfluttri. Á Íslandi
er hún meðal annars notuð til að styðja við
fjölbreytta framleiðslu úr íslenskri sveit, þar
sem hreinleiki umhverfisins er ótvíræður,
sjúkdómar fáir og sýklalyfjanotkun þar af
leiðandi í lágmarki, og skapar þýðingarmikil
störf, ekki síst í dreifðum byggðum landsins.
Ekkert af þessu er sjálfgefið og byggir
meðal annars á því að tollverndin sé fyrir
hendi. Landnýting, fæðuöryggi og búseta eru
þættir sem markaðshöft taka ekki á. Stjórn
búvöruframleiðslu er til hagsbóta fyrir landsmenn
alla og þarf að taka tillit til langtímahagsmuna
og öryggissjónarmiða. Neytendur hafa
margvíslegan ávinning af þessu fyrirkomulagi,
sé því vel við haldið, en umræða af því tagi sem
sjá hefur mátt í fjölmiðlum undanfarið er eðlileg
og nauðsynleg.
Allar samanburðarþjóðir okkar
beita tollvernd
Allar þjóðir sem við berum okkur saman við
styðja eigin búvöruframleiðslu með tollvernd
að meira eða minna leyti. Aðeins 10% af
landbúnaðarframleiðslu heimsins eru seld á
milli ríkja. Hin 90% eru til neyslu og vinnslu
á heimamarkaði. Engin þjóð vill treysta alfarið
á innflutt matvæli, enda sýnir reynsla annarra
þjóða að slíkt leiðir á endanum til hærra verðs,
þegar aðrir kostir en innflutningur eru ekki
lengur í boði.
Stjórnvöld leggja tolla á innfluttar búvörur
sem eru sambærilegar þeim sem framleiddar eru
hér á landi. Einkum er um að ræða mjólkurvörur,
kjötvörur og blóm. Einnig nýtur útiræktað
grænmeti eins og gulrætur, gulrófur og kartöflur
tollverndar þegar íslenska framleiðslan annar
eftirspurn. Þegar íslenskar vörur eru ekki til
eru erlendu vörurnar fluttar til landsins án tolla.
Langflestar landbúnaðarvörur eru fluttar inn
án tolla. Þetta á til dæmis við um allt hveiti og
kornvörur, pasta, hrísgrjón, sykur, matarolíur,
ávexti og stærstan hluta af innfluttu grænmeti.
Um það bil helmingur þeirra matvæla sem
neytt er í landinu er fluttur inn. Til þess þarf
gjaldeyristekjur á móti. Bændur hafa lengi
bent á að það skipti máli að vernda innlenda
matvælaframleiðslu með tilliti til fæðuöryggis
þjóðarinnar. Til þess að innlenda framleiðslan
geti staðið traustum fótum áfram er líka sjálfsagt
og eðlilegt að beita tollvernd þar sem það hentar.
Um þessar mundir annar innlend framleiðsla
ekki eftirspurn eftir nokkrum vörum sem njóta
tollverndar. Það á einkum við um nautakjöt
og svínasíður. Brugðist hefur verið við með
því að gefa út tollkvóta þar sem flytja má inn
ótakmarkað magn af framangreindum vörum á
lágmarkstollum í ákveðinn tíma. Innflytjendur
hafa spurt hvers vegna tollar falli ekki alfarið
niður við þessar aðstæður. Sú spurning er eðlileg
en svarið er á sama hátt einfalt:
Það er vilji stjórnvalda og bænda að hægt
sé að svara þessari eftirspurn með innlendri
framleiðslu. Til þess að svo megi verða þarf
að fjárfesta í þessum greinum og forsenda
fjárfestingar er að rekstrarumhverfið sé stöðugt.
Hafa þarf í huga að framleiðsluferlar í landbúnaði
eru langir og fjárfestingar sérhæfðar. Ef opnað
er fyrir ótakmarkaðan tollfrjálsan innflutning
á vörum sem við getum sinnt framleiðslu á
hérlendis er ólíklegt að staðan breytist og við
yrðum því líklega að treysta á innflutning á
þessum vörum til frambúðar.
Í byrjun mars 2014 skipaði sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra starfshóp til að fara yfir
tollamál í landbúnaði. Hópnum er ætlað að gera
grein fyrir helstu núgildandi samningum um
viðskipti með landbúnaðarvörur og að greina
þau sóknarfæri sem kunna að vera þar til
staðar. Hópnum er ætlað að skila áliti í október
næstkomandi og þá ættu að liggja fyrir gögn til
að ræða málefnalega um skipulag þessara mála
til framtíðar.
Ofnotkun sýklalyfja er alvarlegt vandamál
við innflutning á kjöti
Verslunin sækir það jafnframt fast að fá að flytja
inn hrátt kjöt. Ferskar kjötvörur, kjötvinnsla
Haga, hefur meðal annars höfðað mál vegna
þess. Íslensk stjórnvöld hafa sem betur fer staðið
gegn því. Það er skiljanlegt (en ekki sérlega
ábyrgt) að verslunin vilji fá að flytja meira inn,
telji hún að það þjóni hagsmunum hennar best.
Sérstaða íslenskrar framleiðslu er hins vegar
enginn hræðsluáróður.
Ofnotkun sýklalyfja er vaxandi vandamál
í landbúnaði víða um heim. Þá er sýklalyfjum
blandað í dýrafóður og dýrin éta þau hvort
sem þau eru sýkt eða ekki. Bakteríurnar sem
sýklalyfjunum er ætlað að drepa verða smám
saman ónæmar og berist þær í fólk duga venjuleg
lyf ekki lengur.
Samkvæmt tölum frá Sóttvarnastofnun
Evrópu (ECDC), sem danska blaðið Politiken
vitnar til, má áætla að um 25.000 manns láti
lífið árlega af völdum baktería sem eru ónæmar
fyrir hefðbundnum sýklalyfjum – í Evrópu einni.
Þetta erum við laus við hér.
Í nýrri sameiginlegri skýrslu frá Matvæla-
og heilbrigðisstofnunum Sameinuðu þjóðanna
(FAO og WHO) kemur jafnframt fram að
sýkingar sem berist með kjöti séu alvarlegastar
matarsýkinga og hafi mest neikvæð áhrif á
lýðheilsu í þeim flokki. Það skiptir því verulegu
máli að verjast þeim eins og kostur er.
Þegar tekið er til varna fyrir tollvernd og
sóttvarnir er það stundum kallað hræðsluáróður
og sérhagsmunapot. En hvorttveggja skiptir
verulegu máli og fyrir hvorutveggja eru sterk
rök sem snúast um miklu meira en hagsmuni
innlendra framleiðenda. Þetta veit þjóðin og
þakka ber þann skilning sem landbúnaðurinn
nýtur. /SSS
Landsmót hestamanna
Setning Landsmóts hestamanna 2014
var öll hin glæsilegasta og fór fram í
ágætu veðri þótt ekki viðraði sérlega
vel á mótsgesti alla mótsdagana.
Myndir / HKr.