Bændablaðið - 17.07.2014, Qupperneq 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Með nýjum lögum um söfn
og nýjum viðmiðunarreglum
Safnaráðs um síðustu fékkst
ekki viðurkenning fyrir því að
Sauðfjársetrið á Ströndum ætti
rétt á að fá styrki úr Safnasjóði
eins og verið hefur undanfarin ár.
Olli þetta mikilli óvissu um frekari
uppbyggingu og fjármögnun
safnsins en nú hefur þessu þó að
nokkru leyti verið kippt í liðinn.
Ester Sigfúsdóttir, framkvæmda-
stjóri Sauðfjárseturs á Ströndum
sem starfrækt er í Sævangi í
Steingrímsfirði, segir að nú í
byrjun júlí hafi hún fengið bréf frá
safnasjóði þar sem Sauðfjársetrið er
samþykkt sem safn.
„Við vitum þó ekki hvernig er
með styrk á þessu ári, en staðan er
þó allt önnur varðandi framhaldið
en útlit var fyrir,“ segir Ester. „Þetta
hefði orðið gífurlega erfitt ef við
hefðum ekki fengið þetta samþykki.“
Opnað 2002
Sauðfjársetrið á Ströndum
hefur verið starfrækt frá 2002
í félagsheimilinu Sævangi við
Steingrímsfjörð í Strandabyggð. Um
er að ræða safn og menningarstofnun
sem hefur allt frá upphafi haft á
stefnuskrá sinni að setja svip á
mannlíf og menningu i héraðinu og
kynna á jákvæðan og lifandi hátt
sambúð íslensku þjóðarinnar, lands
og sauðkindar. Fastasýning safnsins
ber yfirskriftina Sauðfé í sögu þjóðar
og er þar sagt frá sauðfjárbúskap í
máli og myndum. Reglulega hafa
verið settar upp sérsýningar um
sögutengd eða listræn efni og
haldin námskeið, fróðleiksfundir,
veislur og skemmtanir. Áhersla er
lögð á að miðla jákvæðri mynd af
sauðfjárbúskapnum í landinu og
daglegu lífi í dreifbýli. Myndum og
munum er safnað markvisst og unnið
að forvörslu, skráningu og miðlun.
Ágæt aðsókn
og margháttaðir viðburðir
Erna segir að ágæt aðsókn hafi
verið að safninu í Sævangi í sumar.
Venjan sé sú að framan af sumri sé
meirihluti gesta útlendingar en síðan
fari Íslendingar að skila sér meira
þegar líði á sumarið.
„Við erum alltaf með fasta
sýningu og síðan erum við með
sýningar á sviðinu sem skipt er út
reglulega. Nú erum við með sýningu
um álagabletti á Ströndum sem
vakið hefur töluverða athygli. Þá
erum við með sérherbergi þar sem
við erum með sýningu um Þorstein
Magnússon, mikinn hagleiksmann
sem bjó á Hólmavík. Sú sýning
hefur verið í gangi í tvö sumur.
Við stefnum á það síðar í sumar að
skipta henni út fyrir aðra sýningu
þar sem áherslan verður lögð á
starf ráðunautanna með Brynjólf
Sæmundsson ráðunaut í forgrunni.
Við vorum með Furðuleikana 30.
júní, sem voru mjög vel sóttir. Þetta
er stærsti viðburður safnsins í sumar
ásamt hrútadómunum sem verða 16.
ágúst, sem er reyndar langstærsti
viðburðurinn,“ segir Ester.
Þar er reyndar um að ræða
Íslandsmeistaramót í hrútadómum,
þar sem vanir og óvanir hrútaþuklarar
munu spreyta sig á að raða vænum
Strandahrútum í rétta röð eftir
gæðum. Fá sigurvegararnir síðan
vegleg verðlaun. Þar verða einnig
ýmis skemmtiatriði og óstjórnlegt
fjör, að því er fram kemur í kynningu
á þeim viðburði.
Þá er gert ýmislegt fleira til
skemmtunar að sögn Esterar. Þannig
var haldið svokallað Kaffi-Quest
á dögunum, sem var opið öllum
aldurshópum.
„Þetta lífgar gífurlega upp á
mannlífið á Ströndum og við höldum
uppi margs konar starfsemi allt
árið. Við erum með sviðaveislu á
haustin og
yfir vetrartímann
erum við með fyrirlestra,
kaffikvöld, spilakvöld og
ýmislegt fleira. Enda fengum við
á síðasta ári menningarverðlaun
Strandabyggðar.“
Miklar endurbætur
Fjárhagsleg staða safnsins er ekki
slæm því það er nær skuldlaust
og er markmiðið að halda þeirri
stöðu áfram. Starfsmannafjöldi
er svo sem ekki mikill því
framkvæmdastjórinn er
einungis í 50% starfi en fleiri
starfsmenn hafa þó verið ráðnir
yfir sumartímann. Á síðustu
tveim árum hefur þó þurft að
leggja í mikinn kostnað til að
uppfylla þær kröfur sem gerðar
eru til safna. Hefur m.a. verið skipt
um þakjárn á húsinu Sævangi, sem
safnið á að tveim þriðju hlutum. Þá
var skipt um stærstu gluggana og
sett upp öryggiskerfi í samvinnu við
Securitas. Áfram er fyrirhugað að
vinna að endurbótum á húsinu. Segir
Ester að því verði haldið áfram þó að
nokkur óvissa sé um fjármögnunina
út þetta ár, en styrkur ætti í það
minnsta að fást fyrir næsta ár.
/HKr.
íðasti vísnaþáttur
endaði í slægjunni hjá
Einari Kolbeinssyni í
Bólstaðarhlíð. Verandi
þar er tilvalið að birta gamla
vísu eftir Björn Sveinsson á
Botnastöðum:
Bólstaðarhlíðin frjóvgun fær
hjá forn-Guðmundi kænum,
auðurinn vex, en grasið grær
í götunni heim að bænum.
Fyrir margt löngu orti Tryggvi
Emilsson með örlitlum
bjartsýnisbrag:
Skýjaþykkni skyggir á
að skíni sól á hnjúkinn.
Þó var áðan geisli að gá
gegnum rósadúkinn.
Einhvern veginn verður líka allt
léttara lífið þegar sólin sést. Jónas
Jónsson bóndi á Torfamýri orti
um mátt sólarinnar:
Sólin þaggar þokugrát,
þerrar sagga og úða.
Fjólan vaggar kolli kát
klædd í daggarskrúða.
Ekki var létt yfir Baldri
Þórðarsyni þegar hann orti:
Varla að sinni vætan dvín,
völvan spáði þessu.
Sárt er að horfa á heyin sín
hverfa í drulluklessu.
Hörður Kristjánsson, sá ágæti
ritstjóri Bændablaðsins, boðar
bráðlega ferð sína norður í land.
Óskaði hann af því tilefni eftir
sólardögum. Erfitt verður að
tryggja honum blíða veðráttu,
þó að tíðin til þessa hafi verið
Norðlendingum hagfelld. Löngum
hefur loðað við að á Vopnafirði
væru sólardagar fleiri en annars
staðar. Á hagyrðingasamkomu
þar, í húðarregni, orti Hákon
Aðalsteinsson:
Hér er oftast heiðskírt loft
heitir dagar flestir.
Þó er eins og þyngi oft
þegar koma gestir.
Þannig er nú einu sinni með blessað
veðrið. Ritstjórinn verður því að
vera viðbúinn veðrabrigðum.
Látum náttúrufræðinginn og
skáldið Jónas Hallgrímsson
lýsa veðurfarinu sem hugsanlega
heilsar ritstjóranum þá hann gistir
Norðurland:
Nú er sumar í Köldukinn –
kveð ég á millum vita.
Fyrr má nú vera, faðir minn
en flugurnar springi úr hita.
Út um móinn enn er hér
engin gróin hola.
Fífiltóin fölnuð er –
farðu í sjóinn gola.
Sunnanvindur sólu frá
sveipar linda skýja.
Fannatinda, björgin blá,
björk og rinda ljómar á.
Veðrið er hvorki vont né gott,
varla kalt og ekki heitt.
Það er hvorki þurrt né vott,
það er svo sem ekki neitt.
Auðvitað gæti líka rignt á
ritstjórann:
Skuggabaldur úti einn
öli daufu rennir.
Skrugguvaldur, hvergi hreinn,
himinraufar glennir.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Líf og starf
MÆLT AF
MUNNI FRAM
S
Svipmyndir frá Furðuleikum Sauðfjársetursins 2014. Keppt var í girðingarstaurakasti, öskri, trjónufótbolta, kvennahlaupi, farsímakasti og ruslatínslu.
Varð af mikil gleði og gaman. Myndir / Jón Jónsson
Öskurkeppnin fór
fram með miklum
tilþrifum.
Ný lög um söfn ollu uppnámi hjá Sauðfjársetrinu á Ströndum:
Missti viðurkenningu sem safn
en er nú komið aftur á listann