Bændablaðið - 17.07.2014, Síða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Fréttir
Kanínan Scurri kann greinilega vel að meta fæðið hjá Birgit.
Kanína ehf. á Syðri-Kárastöðum í Húnaþingi vestra:
Styttist í að kanínukjöt
verði á boðstólum
Eva Björk Harðardóttir, D-lista,
er nýr oddviti Skaftárhrepps
en Guðmundur Ingi Ingason,
Ó-lista, fráfarandi oddviti, verður
varaoddviti. Þá hefur Eygló
Kristjánsdóttir verið ráðin áfram
sveitarstjóri til næstu fjögurra
ára.
Hún er gift
Þorsteini M.
Kristinssyni og
þegar þau leggja í
púkk eiga þau sex
börn. „Ég er fædd
og uppalin í Efri-
Vík í Landbroti.
Ég er menntaður
kennari og hef
starfað við kennslu í Kópavogi,
á Hvammstanga og í Mosfellsbæ
ásamt Kirkjubæjarklaustri. Árið
2005 hófum við hjónin ásamt
foreldrum mínum að byggja hótel
í Efri-Vík, Hótel Laka. Síðan þá
hefur aðalstarf mitt verið að sinna
rekstrinum á því, sem er orðinn ansi
umfangsmikill. Núna erum við með
80 herbergiseiningar og 38 manns í
vinnu, en 14-16 yfir vetrartímann,“
segir Eva Björk þegar hún er beðin
að segja aðeins frá sjálfri sér.
Allir listarnir vinna saman
Það vekur athygli að það er
enginn minni- eða meirihluti
í Skaftárhreppi, því að allir
sveitarstjórnarmennirnir ætla
að vinna saman að hagsmunum
sveitarfélagsins á kjörtímabilinu,.
„Já, það er rétt, listarnir þrír, D, Z
og Ó, sem stóðu að framboðum
í Skaftárhreppi nú í vor, ákváðu
eftir kosningar að vinna saman
samkvæmt samstarfssamningi
sem við endurskoðum eftir árið.
Það á auðvitað eftir að reyna á
samstarfið en þar sem við búum í
fámennu samfélagi og höfum sömu
hagsmuna að gæta ætti allt að ganga
upp,“ segir Eva Björk enn fremur.
Stórkostleg náttúra
„Það þarf víða að taka til hendinni í
Skaftárhreppi og við þurfum svolítið
að berjast fyrir tilveru okkar hér í
sveitarfélaginu en við erum bjartsýn
að eðlisfari og njótum stórkostlegrar
náttúru á hverjum degi sem mótar
okkur og viðhorf okkar til lífsins.
Við látum ekki auðveldlega stoppa
okkur af. Ég mun leggja mig alla
fram fyrir íbúana í Skaftárhreppi
og veit að með góðu samstarfi og
trausti munum koma miklu í verk,
en til þess vorum við kosin,“ segir
nýkjörinn oddviti Skaftárhrepps.
/MHH
Skaftárhreppur:
Eva Björk er nýr oddviti sveitarfélagsins
Eva Björk
Harðardóttir.
Skaftárhreppur er víðfeðmt sveitarfélag með miklum náttúruperlum. Um 120 íbúar búa á Kirkjubæjarklaustri, sem er
miðsvæðis í hreppnum og þaðan liggja leiðir til allra átta. Þjóðvegur nr. 1 (hringvegurinn) liggur í gegnum sveitarfélagið.
Ólafía einbeitt við pönnukökubakstur á Hlíðarenda, þar sem hún er í essinu sínu þegar hún bakar á sex pönnum
og sykrar í einu. Aðstaða til pönnukökubaksturs á staðnum er til fyrirmyndar eins og sést. Mynd / MHH
Bakar pönnukökur á sex pönnum
„Nei, þetta er ekkert mál og ekkert
stressandi, ég hef komið mér upp
ákveðinni tækni og þá gengur
þetta ljómandi vel,“ segir Ólafía
Ingólfsdóttir hjá N1 á Hlíðarenda
á Hvolsvelli.
Hún segir að það sé ekkert
flókið að baka pönnukökur á sex
pönnum eins og hún gerir nokkrum
sinnum í viku á Hlíðarenda. Ólafía
er fyrrverandi landsmótsmeistari í
pönnukökubakstri og kann því sitt fag.
Hún sykrar pönnukökurnar um leið
og hún bakar þær. „Pönnukökurnar
rjúka út á Hlíðarenda, ferðamenn
eru hrifnir af þeim og síðan fá
starfsmenn, leiðsögumenn og
rútubílstjórar nóg af pönnukökum,
sérstaklega á föstudögum, þá fá þeir
meira að segja rjómapönnukökur,“
bætir Ólafía við. /MHH
Áhugi fyrir kanínurækt virðist
vera mikill hér á landi, að
sögn Birgit Kositzke, sem
rekur fyrirtækið Kanína ehf. í
Húnaþingi vestra. Til að koma
til móts við áhugann hefur hún
ákveðið að hafa opið hús á aðsetri
fyrirtækisins á Syðri-Kárastöðum
annan laugardag, 26. júlí, frá kl.
13 til 17. Kvenfélagið Freyja hefur
tekið að sér að selja kaffi og með
því á staðnum.
Birgit fékk hugmynd um að rækta
kanínur til manneldis árið 2010 og
hefur unnið að framgangi þess allar
götur síðan. Hún hófst handa með
fjórar holdakanínur, en starfseminni
hefur vaxið fiskur um hrygg og eru
nú um 250 kanínur í ræktuninni hjá
henni og fer fjölgandi.
Verða með kynningu á
Matarhátíð í nóvember
Fyrirtækið Kanína ehf. var stofnað
2011 og hefur starfsemin vaxið og
dafnað síðan. „Þetta er í stöðugri
þróun og við höfum staðið í
heilmiklum framkvæmdum frá því að
ræktunin komst á skrið,“ segir Birgit.
Eitt helsta markmið félagsins er
að bjóða kanínukjöt á markaði hér
á landi og segir hún að nú sé það í
augsýn. „Við stefnum að því að bjóða
fólki bæði að smakka á matreiddu
kanínukjöti og eins að kaupa kjöt
af kanínu á Matarhátíðinni sem efnt
verður til í Hörpu í nóvember á þessu
ári,“ segir Birgit.
Mikill áhugi
Um þessar mundir standa yfir
framkvæmdir við aðstöðu
fyrirtækisins að Syðri-Kárastöðum
í Húnaþingi vestra, en m.a. er verið
að innrétta þar kanínuhús, þar sem
verða stór og góð búr. Einnig verður
vinnuaðstaða bætt í því augnamiði
að hámarka afköst.
„Fólk hefur sýnt þessari ræktun
mikinn áhuga og því ætlum við að
vera með opið hús hjá okkur í næstu
viku, laugardaginn 26. júlí,“ segir
Birgit. Syðri-Kárastaðir eru rétt fyrir
norðan Hvammstanga við veg 711,
Vatnsnesveg.
Aðstaðan er með þeim hætti að
fólki verður hleypt inn í hópum og
má því búast við einhverri bið verði
margir á ferðinni á sama tíma, en þá
er gott að geta notið veitinga sem
Kvenfélagið Freyja selur á staðnum.
Birgit segir einnig að ef í hópi gesta
séu kanínueigendur séu þeir beðnir
um að mæta ekki í þeim fötum sem
þeir noti þegar þeir sinni sínum
kanínum.
„Við vonum að fólk taki því
fagnandi að fá að kynnast þessum
nýsköpunarbúskap í héraðinu,“ segir
Birgit. /MÞÞ