Bændablaðið - 17.07.2014, Side 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Talsverðar skemmdir hafa orðið
á varnargörðum við bæinn
Skjaldfönn í Skjaldfannardal í
kjölfar leysinga og vatnavaxta í
Selá sem fylgdu djúpri lægð sem
gekk yfir landið fyrir skömmu.
Allir skurðir eru fullir af vatni og
tún kaffærð í jökulleir.
Indriði Aðalsteinsson,
bóndi á Skjaldfönn í
Skjaldfannardal við
Ísafjarðardjúp, segir
gríðarlegar leysingar
hafa verið í síðustu viku
og hreint ekkert annað
en hamfaraflóð í dalnum.
Snjóþungur vetur
„Veturinn var einstaklega
snjóþungur og í kjölfar lægðarinnar
sem gekk yfir landið ekki alls fyrir
löngu urðu miklar leysingar ásamt
mikilli útkomu og aðstæður þannig
bráðnunin varð nánast öll í einu og
það fór allt á flott.“
Indriði segir engar heimildir
um flóð af þessu tagi áður í
Skjaldfannardal enda mjög sérstakar
aðstæður að ræða þegar fara saman
mikil snjóalög og mikla úrkomu.
Skemmdir á varnargörðum
Að sögn Indriða eru talsverðar
skemmdir á varnargörðum við Selá
en görðunum
er ætlað að
verja túnin á
Skjaldfönn fyrir
ágangi Selár og
landbroti. „Selá
er jökulá sem ber
fram gríðarlegt
magn af möl og
sandi og farvegur
hennar breytist
ört. Í flóðinu
núna má segja að
áin hafi eyðilegt
þrjá af fjórum
mik i lvægus tu
varnargörðunum á
jörðinni. Tjónið er
því upp á margar
milljónir króna.“
Túnin á kafi í
leir
Í vatnavöxtunum rann áin einnig
yfir tún og kaffærði þau í jökulleir
sem gras á erfitt með að vaxa upp í
gegn. Indriði óttast því að lítið hey
fáist af túnunum í sumar.
„Til viðbótar þessu eru allir
skurðir á Skjaldfönn fullir af
jökulvatni úr Selá sem étur bakka
þeirra og grynnir um leið,“ segir
Indriði.
/VH
Miklar leysingar í Skjaldfannardal:
Skemmdir á varnargörðum, túnum og skurðum
Það var óvenjumikið vatn í Selánni, sem sést hér liðast niður dalinn. Á mynd-
sem stendur handan árinnar.
Skógardagur Norðurlands í Kjarnaskógi
– Ketilkaffi var hitað yfir eldi, steiktar lummur og poppað í forláta pönnu
F y r s t i S k ó g a r d a g u r
Norðurlands svar haldinn
var í Kjarnaskógi á Akureyri
nýlega. Að deginum stóðu
Norðurlandsskógar, Skógrækt
ríkisins, Skógræktarfélag
Eyfirðinga, Félag skógarbænda á
Norðurlandi, Skógfræðingafélag
Íslands og gróðrarstöðin
Sólskógar.
Boðið var upp á leiksýningu,
gestir gátu fylgst með skógarhöggi
og þá var sýning sem nefnist Frá
fræi til fullunninnar vöru þar
sem sýnd voru fræ nokkurra
trjátegunda og trjáplöntur tilbúnar
til gróðursetningar ásamt ýmsum
öðrum plöntum.
Skógarvélasýning var einnig á
dagskrá, en m.a. var sýnt hvernig
timburvagn Skógræktarfélags
Eyfirðinga er notaður til að flytja
trjáboli úr skógi, eldiviðarvél sem
bútar og klýfur eldiviðarefni,
flettisög og stauravél.
Teflt var í skóginum og einnig
var þar ratleikur.
Ketilkaffi var hitað yfir eldi,
steiktar lummur og poppað í forláta
pönnu en einnig var hægt að vefja
gerdeigi um grein og baka yfir eldi
og féll það vel í kramið hjá yngstu
kynslóðinni.
Stefnt er að því að halda þennan
viðburð aftur að ári.
/MÞÞ
tálmi fyrir sauðféð á
í ánni.
Myndir / Pétur Halldórsson.