Bændablaðið - 17.07.2014, Page 17
17Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Hinn 13. júlí sl. varð Dýra vernd-
arsamband Íslands 100 ára, en
það hefur starfað óslitið síðan á
stofnfundinum þann dag sumarið
1914. Á þessum árum hafa þó
orðið ýmsar nafnabreytingar en
nú sem fyrr eru þetta einu alhliða
dýraverndarsamtökin í landinu.
Þau láta sig varða velferð allra
dýra, hvort sem um er að ræða
búfé, gæludýr eða villt dýr.
Seint á 19. öld og í byrjun 20.
aldar var farinn að koma fram áhugi
á að vinna að ýmsum úrbótum í
meðferð dýra og þó einkum búfjár.
Vetrarfóðrun var oft ábótavant í
harðbýlu landi og því skipti löggjöf
um eftirlits- og fóðurbirgðafélög
miklu máli, sem Búnaðarfélag
Íslands beitti sér fyrir. Þá voru fyrstu
dýraverndarlögin sett snemma á 20.
öld, en við samningu þeirra komu hin
nýju samtök um dýravernd 1914 mjög
við sögu með Tryggva Gunnarsson
bankastjóra, Ingunni Einarsdóttur
og fleiri frumkvöðla í fararbroddi.
Baráttumálin voru margvísleg, flest
tengd búfjárhaldi, svo sem kröfur um
mannúðlegri aðferðir við geldingu
og slátrun. Þá skipti miklu máli á
þessum árum að dýralæknaþjónusta
var smám saman að eflast.
Nú er öldin önnur en þó eru
sum málin furðu lík. Ný vandamál
hafa komið upp, viðhorf hafa
verið að breytast en eitt er víst að
slík áhugamannasamtök, þar sem
fólk vinnur af hugsjón að bættri
velferð dýra, gegna veigamiklu
hlutverki. Hinn lagalegi grunnur
hefur nýlega verið efldur með
rækilegri endurskoðun reglna
sem varða velferð dýra. Þar hefur
Dýraverndarsamband Íslands komið
mikið við sögu. Jafnframt er um
samfélagsmál að ræða því að öllum
ber okkur skylda til að gæta þess
að vel sé farið með dýr þannig að
eðlislægt atferli þeirra fái að njóta
sín sem best.
Tryggvi Gunnarsson, fyrsti
formaðurinn, og samstarfsfólk hans
stofnuðu ritið Dýraverndarann árið
1915 og kom það út óslitið í nær sjö
áratugi. Fyrir fáeinum árum var hann
endurvakinn, fyrst í rafrænu formi og
síðan prentuðu síðan 2013. Allir geta
sent efni í blaðið, félagar sem aðrir
(dyravernd@dyravernd.is). Þá má
geta þess að Dýraverndarsamband
Íslands hefur eignast hentugt
húsnæði fyrir skrifstofu og
fundahald á Grensásvegi 12a í
Reykjavík. Einnig má nefna að
erlend samskipti eru veruleg, einkum
við hinar Norðurlandaþjóðirnar.
Á afmælisfundinum sem þar var
haldinn sunnudaginn 13. júlí
síðastliðinn kom fram sterkur
félagsandi og bjart virðist yfir
starfsseminni. Þar fluttu þær Linda
Karen Gunnarsdóttir og Hallgerður
Hauksdóttir fróðlegt erindi um sögu
félagsskaparins. Núverandi formaður
DÍS er Hallgerður Hauksdóttir.
Ólafur R. Dýrmundsson
(Formaður DÍS frá 2007–2012)
Ú
r
ljó
ði
nu
F
ja
llg
an
ga
e
ft
ir
Tó
m
as
G
uð
m
un
ds
so
n
ÞARNA FÓR ÉG
SJÁIÐ TINDINN!
Aldarafmæli Dýraverndarsambands Íslands
Ólafur R. Dýrmundsson, fyrrverandi formaður, og Hallfríður Hauksdóttir,
núverandi formaður Dýraverndarsambands Íslands, slá á létta strengi á
afmælisfundinum 13. júlí.
Verð á evrópsku hveiti lækkaði
mikið í síðustu viku og hefur
ekki verið jafn lágt í lengri tíma.
Þurrkar í Frakklandi draga úr
uppskeru.
Verðlækkunina má rekja til
þess að í nýlegri skýrslu frá
Landbúnaðarstofnun Bandaríkjanna
kemur fram að birgðir þar sé nægar.
Út frá langtímaveðurspám fyrir
Bandaríkin má gera ráð fyrir góðri
uppskeru á kornbelti Bandaríkjanna
og gæti verð í Evrópu því fallið enn
meira þegar líða fer á haustið.
Skilyrði í Þýskalandi hafa verið
kornbændum í vil undanfarið en
talið er að rigningar geti tafið þegar
kemur að uppskeru. Búist er við
metuppskeru af korni í Svíþjóð á
þessu ári.
Kornrækt í Evrópu:
Verð hefur farið
lækkandi