Bændablaðið - 17.07.2014, Side 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Fréttaskýring
Hormóna- og fúkkalyf eru notuð í stórum
stíl við kjötframleiðslu í Ameríku og víðar
– Vaxandi andstaða í Kanada og Bandaríkjunum við lyfjanotkun í matvælaframleiðslu vegna skaða sem neysla afurða er talin valda
Í íslenskum fjölmiðlum hefur
að undanförnu verið talsvert
fjallað um kröfu bandarísku
verslanakeðjunnar Costco um
að fá undanþágu til að flytja til
Íslands hrátt og ófrosið nautakjöt
frá Bandaríkjunum. Látið er
í veðri vaka að þetta snúist
eingöngu um frjálsa samkeppni
á matvörumarkaði en ekki er
haft mikið fyrir því að upplýsa
neytendur um alla þætti málsins.
Í umræðunni hefur verið varpað
upp spurningum um hvort ekki
sé sjálfsagt mál að afgreiða slíka
ósk. Fyrst kjötið sé nógu gott
fyrir Bandaríkjamenn hljóti það
einnig að vera fullboðlegt fyrir
Íslendinga. Um leið hefur verið
gert gys að mjög illa rökstuddum
fullyrðingum stjórnmálamanna um
að nautgripakjöt frá Bandaríkjunum
sé verulega mengað af ýmiss konar
lyfjum. Lítið fer þó fyrir því að
fjölmiðlar og almenningur geri
tilraunir til að kanna sannleiksgildi
slíkra fullyrðinga, þó að auðvelt sé
að nálgast slíkar upplýsingar.
Staðreyndirnar eru
grafalvarlegar
Íslendingar eru blessunarlega lausir
við óhóflega notkun fúkkalyfja við
dýraeldi vegna kjötframleiðslu.
Reyndar eru íslenskir bændur þar
sér á parti ásamt norskum kollegum
sínum varðandi minnstu notkunina
sem þekkist í heiminum. Þetta hefur
ítrekað verið staðfest í úttektum
ESB.
Þar kemst notkun vaxtarhormóna
ekki einu sinni á blað og eru þau ekki
notuð sem vaxtarhvetjandi efni í
kjötframleiðslu hér og heldur ekki
sem hvati í mjólkurframleiðslu.
Þegar litið er á nokkrar staðreyndir
í málinu og opinber bandarísk
gögn um lyfjanotkun í þarlendum
landbúnaði er varla hægt að segja
annað en að umfjöllunin á Íslandi
að undanförnu risti furðulega grunnt.
Þráfaldlega hefur þar verið byggt
annaðhvort á verulegri vanþekkingu
eða vísvitandi rangfærslum. Samt
er upplýsingar víða að finna sem
segja allt aðra og alvarlegri sögu
en ætla má af fjölmiðlaumræðunni
hér. Varla er það heldur aðhlátursefni
fyrir neytendur.
Allt vottað – en samkvæmt
heimildum um lyfjanotkun
Það er ekkert leyndarmál að
bandarískur landbúnaður hefur
notað hormón og fúkkalyf í stórum
stíl sem vaxtarhvetjandi efni á
umliðnum áratugum og kanadískur
landbúnaður tók að nokkru upp
svipaða framleiðsluhætti sem og
bændur víða á meginlandi Evrópu.
Samt er þessi framleiðsla stimpluð
í bak og fyrir og vottuð, enda í
samræmi við opinberar heimildir
um vaxtarhvetjandi lyfjanotkun.
Einhver ástæða er samt fyrir
því að fólki, t.d. í Kanada, er
farið að ofbjóða. Það sættir sig
ekki lengur við lyfjamengað kjöt.
Eru söluaðilar því farnir að leita í
aðra heimshluta eftir „ómenguðu“
nautakjöti eins og lesa má um m.a.
á vefsíðu The Western Producer.
Því er nú hafin ný markaðssókn hjá
skyndibitaveitingakeðjunni A&W,
sem segist ekki vilja lyfjamengað
kjöt í sína framleiðslu undir
slagorðunum; „Better beef for better
burgers.“ Þessi veitingahúsakeðja er
með 790 skyndibitastaði í Kanada
og er næststærst á eftir McDonald´s.
„Nautum sem alin eru fyrir
A&W í Kanada, Bandaríkjunum
og Ástralíu er haldið aðskildum
frá öðrum dýrum sem alin eru á
„hefðbundinn hátt“ til að tryggja
að þau fái ekki vaxtarhormón,“
segir Susan Senecal, markaðsstjóri
A&W í samtali við The Vancouver
Sun. Fyrirsögn þeirrar fréttar er
A&W útilokar stera, hormón og
lyfjanotkun í kjötframleiðslu. Í
fréttinni kemur einnig fram að
Læknasamtök Kanada (Canadian
Medical Association), hafa skorað á
yfirvöld að stöðva notkun fúkkalyfja
í landbúnaði nema einungis til að
lækna dýr af sýkingum. Samtökin
vara einnig við hormónanotkun
í dýrum þrátt fyrir misvísandi
upplýsingar um hvort neysla
afurða af slíkum dýrum geti haft
krabbameinsvaldandi áhrif á fólk.
60 þúsund Bandaríkjamenn deyja
árlega vegna fúkkalyfjaónæmis
Bandarísku samtökin Læknar
fyrir samfélagslega ábyrgð berjast
fyrir velferð manna og dýra og
gegn óhóflegri lyfjanotkun við
matvælaframleiðslu. Þessi samtök
hlutu friðarverðlaun Nobels árið
1985. Á vefsíðu samtakanna er greint
frá tölum lyfjaeftirlits Bandaríkjanna
(Center for Disease Control and
Prevention – CDC). Eftirlitið áætlar
að 60 þúsund bandaríkjamenn deyi
árlega vegna áunnins ónæmis fyrir
fúkkalyfjum. Er það talið stafa af
óhóflegri inntöku fúkkalyfja sem
rekja má til mikillar notkunar þeirra
í landbúnaði.
Um 80% fúkkalyfjanna talin fara
til landbúnaðar
Samtökin telja að um 80% af allri
fúkkalyfjanotkun í Bandaríkjunum
megi rekja beint til notkunar í
landbúnaði. Þar sem fúkkalyfjum
beitt sem vaxtarhvetjandi efni þar
sem þau koma í veg fyrir að dýrin
veikist á vaxtatímanum.
Þá benda samtökin líka á
að á árinu 2008 hafi Fæðu- og
lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA)
samþykkt að leyfa sölu á mjólk
úr klónuðum dýrum, þrátt fyrir
áhyggjur vísindamanna innan
eftirlitsins.
Vísindamenn Cornell-háskóla
vara við krabbameinshættunni
Cornell-háskóli hefur margsinnis
bent á hættu á krabbameini vegna
notkunar stera og annarra lyfja í
matvælaframleiðslu. Var starfrækt
vinnustofa á vegum skólans,
svokallað BCERF-verkefni, um
málið sem lauk í mars 2010. Þar
kemur fram að menn hafi uppgötvað
það um 1930 að kýr sem sprautaðar
voru með nautahormónum
framleiddu meiri mjólk en aðrar.
Byrjað að leyfa vaxtarhvetjandi
hormón í kjötframleiðslu
upp úr 1950
Á vefsíðu bandaríska heilbrigðis-
ráðuneytisins (U.S. Department
of Health & Human Service) má
m.a. finna eftirfarandi upplýsingar
í lauslegri þýðingu:
„Upp úr 1950 gaf Fæðu- og
lyfjastofnun Bandaríkjanna (Food
and Drug Administration – FDA)
út leyfi til notkunar á fjölmörgum
sterahormónum til nota við eldi
nautgripa og sauðfjár. Þar á meðal
var náttúrulegt kvenhormón
(estrógen), progestrogen,
karlhormón eða testosterone, og
ýmsar efnafræðilegar útgáfur af
þessum hormónum. Þessi lyf auka
vaxtarhraða í dýrum, með því
að auka virkni þess hvernig þau
umbreyta fæðunni sem þau neyta
í kjöt.“
Þá segir að FDA hafi heimilað
notkun þessara lyfja eftir viðamiklar
rannsóknir sem sýndu að afurðir
sem fólk neytti af þessum dýrum
sköðuðu ekki þá sem neyttu þeirra.
Einnig að lyfin sköðuðu ekki
dýrin sem fengju lyfin og sköðuðu
heldur ekki umhverfið. Þarna er
líka tekið skýrt fram að FDA gaf
sjálft út viðmiðunarreglurnar sem
farið hefur verið eftir og segja hvað
séu hættulaus mörk fyrir neyslu
almennings á kjöti sem innihalda
lyf sem FDA hefur samþykkt. Síðan
fylgir FDA málinu eftir með því að
hafa sjálft eftirlit með eigin reglum
og gefur út viðeigandi vottorð um
að kjötið sé í lagi. Dýralæknir
hjá íslensku eftirlitsstofnuninni
MAST lýsir því síðan fjálglega í
Fréttablaðinu á þriðjudag hvað
matvælaeftirlitið í Bandaríkjunum
sé gott.
Þessar heimildir FDA til
lyfjanotkunar hafa, einkum á síðari
árum, verið harðlega gagnrýndar á
þeim forsendum að þeim hafi verið
komið í gegn fyrir mikinn þrýsting
fjárhagslegra sterkra hagsmunaaðila
í lyfjageiranum. Þykir mörgum því
furðu sæta að FAO, Matvæla- og
landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna styðji við bakið á FDA
varðandi leyfisveitingar.
Um 30% bandarískra
mjólkurkúa fá hormón
Miklar framfarir hafa orðið í
framleiðslu stera í stórum stíl og
voru stigin þar stór skref á níunda
áratug síðustu aldar. Árið 1993
heimilaði FDA notkun hormóns
(bovine growth hormone – rbGH),
til að auka mjólkurframleiðslu í
kúm. Samkvæmt gögnum Cornell-
háskóla er talið að um 30% af
mjólkurkúa í Bandaríkjunum séu
meðhöndlaðar með hormónagjöfum.
Dr. Terry Etherton er sérfræðingur
í næringarfræði dýra og yfirmaður
vísindadeildar um mjólk og dýr hjá
Landbúnaðarháskóla Pennsylvaníu.
Hann er stuðningsmaður
FDA og telur að hlutfallið við
mjólkurframleiðslu sé nokkuð lægra
eða um 20%. Segir hann að kýr sem
fái hormónagjafir framleiði um
10-15% meiri mjólk en kýr sem ekki
fá hormónagjafir. Fullyrðir hann líka
að umræðan um krabbameinsáhættu
af neyslu hormóna sé orðum aukin.
Fjölmargir vísindamenn,
lyfjafræðingar, dýralæknar, aðrir
læknar, manneldisfræðingar
og fleiri hafa samt stigið fram
á undanförnum árum og varað
mjög við neyslu á lyfjamenguðum
matvælum. Meira að segja
Evrópusambandi hefur gert slíkt
hið sama þó stöðugt berist þaðan
upplýsingar um að reglurnar séu
sniðgengnar í gegnum svartan
markað með lyf. Þetta hefur
líka komið fram á ráðstefnum
sem haldnar hafa verið m.a. á
Íslandi á undanförnum árum.
Þar hafa íslenskir læknar og
sérfræðingar varað við innflutning
á hráu kjöti, ekki síst vegna
óhóflegrar fúkkalyfjanotkunar við
framleiðsluna sem er að verða að
stórkostlegu heilbrigðisvandamáli
víða um heim og aðvaranirnar
koma úr mörgum áttum.
70% af ölum fúkkalyfjum í
Bandaríkjunum fara í dýraeldi
Dr. Michael Wayne, sérfræðingur
í kínverskri lyfjafræði og
frumkvöðull á sínu sviði með yfir
aldrafjórungs klíníska reynslu í
heilsugæslu, gagnrýnir lyfjanotkun
við kjötframleiðslu harðlega
og ræðir um óhóflega notkun
fúkkalyfja. Hann hefur ritað fjölda
greina í vísindarit og gaf m.a. út
bókina Quantum-Integral Medicine:
Towards a New Science of Healing
and Human Potential árið 2005. Í
grein sem hann ritaði 2009 undir
yfirskriftinni; The meat you eat:
Steroid use in livestock, segir hann
m.a.:
„Þar með er þó aðeins hálf
sagan sögð varðandi lyfjanotkun
við dýraeldi því fúkkalyf eru ekki
einu lyfin sem gefin eru til að auka
vaxtarhraða í dýrum,“ segir Wayne
og er ekki að skafa utan af hlutunum.
Um 99% nautgripa í Banda-
ríkjunum talin vera á sterum
„Á hverju ári rækta bandarískir
bændur um 36 milljónir nautgripa.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Varla hefur náttúruleg ræktun skilað svona kjötbúnti.
Skyndibitaveitingakeðjan A&W í Kanada vill nú úthýsa öllu hormónakjöti.
Tilbúinn í sterasteik.