Bændablaðið - 17.07.2014, Síða 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Opið: mán.- fös. 8-18
og lau. 10-13
Sími 455 4610
Á að girða?
Þá er Gallagher
frábær kostur!
Hjá okkur færðu bæði
gæði og gott verð
Gallagher girðingavörur
eru með þeim bestu
sem völ er á!
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
• Gallagher rafgirðingaefnið færðu
í KS versluninni Eyri og hjá
endursöluaðilum um allt land
Endursöluaðilar:
Kaupfélag Borgfirðinga, KM þjónustan, Jötunnvélar,
BYKO, Húsasmiðjan, Kaupfélag Vestur Húnvetninga,
Bústólpi og verslanir Fóðurblöndunnar
Er kominn
tími á nýtt
hlið?
Frábærar hliðgrindur
í míklu úrvali á góðu verði
Áralöng reynsla!
www.VBL.is
REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is
HNÍFAR
GOTT ÚRVAL
REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
Um 99% af öllum nautgripum sem
ræktaðir eru til kjötframleiðslu í
Bandaríkjunum eru gefin hormón
(sterar) til að framkalla hraðari vöxt.
Stór hluti af kjúklingum og svínum
eru einnig gefin þessi lyf,“ fullyrðir
Wayne. Þessar tölur hafa reyndar
verið víðar til umfjöllunar eins og
á vefsíðum ASPCA, PETA og USC
háskóla í Suður-Kaliforníu.
„Mörgum nautgripum er síðan
einnig gefið vöðvabyggingarlyf,
venjulega testósterón eins og sumir
íþróttamenn nota. Önnur dýr fá
estrógen kvenhormón eða prógestín
sem stoppar æxlunarferlið. Prógestín
nýtir þannig orkuuppsprettu í líkama
dýranna til kjötframleiðslu sem
annars hefðu farið í að ala afkvæmi,“
segir Wayne.
„Á sama tíma og opinberir aðilar
banna fólki að nota flestar gerðir af
sterum, er heimilað að gefa þessi
sömu lyf til framleiðslu á nautakjöti.
Það þýðir að í hvert sinn sem þú
borðar slíkt nautakjöt, kjúkling eða
svínakjöt og drekkur mjólk, þá ertu
að innbyrgða lyf sem þér hefur ekki
verið ráðlagt að taka inn.“
Inntaka hormóna getur haft
alvarlegar afleiðingar
„Að innbyrgða aukalega hormóna
truflar náttúrulegt jafnvægi
líkamans. Við að neyta afurða af
dýrum sem eru uppfull af hormónum
getur haft alvarlegar afleiðingar,
bæði fyrir börn og fullorðna.“
Dr. Wayne heldur áfram og vitnar
í frétt í The Los Angeles Times sem
segir:
„Magn estradíóls í tveim
hamborgurum sem borðaðir eru
á einum degi af átta ára barni
getur hækkað heildarhormóna-
hlutfallið um allt að 10% og
orsakað mjög lágt náttúrulegt
hormónahlutfall.“ Þá vitnar Wayne
í krabbameinsvarnarsamtök í
Bandaríkjunum sem vari foreldra við
því að jafnvel lítið af dýraafurðum
innihaldi nóg af hormónum til að
skaða börnin.
Aldrei hættulaust
„Engin neysla á hormónum
er hættulaus. Kjötbiti sem er
aðeins eins og
smápeningur (dime)
að stærð inniheldur
mi l l j a rða a f
hormónamólikúlum.
Þegar barn borðar
nautakjöt sem
m e ð h ö n d l a ð
hefur verið með
hormónum, getur
aukning hormóna
haft truflandi áhrif á þróun heila
og kynfæra.“
Varla lýgur Evrópusambandið
Wayne vísar meira að segja til
skýrslu Evrópusambandsins sem
varla er dregin í efa á Íslandi.
Skýrslan er um áhrif af notkun
hormóna við kjötframleiðslu. Þar
segir:
Sum líffæri eru viðkvæmari fyrir
áhrifum af estrógeni, andrógeni
og anti-andrógeni [allt hormón
sem notuð eru við eldi nautgripa
til kjötframleiðslu] á
uppvaxtarferlinu en
önnur. Þessi líffæri eru
meðal annars heili og
kynfæri.“
Bendir Wayne á að
kynþroski stúlkna á
Vestur löndum færist æ
neðar. Nærri helmingur
bandarískra stúlkna af
afrískum uppruna og
um 15% hvítra stúlkna verði nú
kynþroska um átta ára aldur. Þá
bendir Wayne á að Evrópusambandið
hafi bannað notkun vaxtarhormóna
við kjötframleiðslu árið 1988 af
fyrrnefndum ástæðum. Alvarlegt
tilfelli hafi komið upp í Púertó
Ríkó snemma á níunda áratugnum
þar sem þúsundir barna upplifðu
ótímabæran kynþroska á kvalafullan
hátt. Segir hann að orsökin hafi verið
rakin til neyslu á hormónamenguðu
nautkjöti. Þá segir hann að samt
haldi lyfjaeftirlit Bandaríkjanna
(FDA) áfram að leyfa þessi
lyf í nautgriparækt þó að sama
lyfjaeftirlit banni lyfjaverslunum
að selja venjulegu fólki slík lyf
til eigi notkunar. Ekki sé þó bara
hægt að einblína á að fólk fái lyfin
í gegnum kjötið sem það innbyrðir,
því þau fljóti einnig í gegnum
meltingarveg dýranna og fari þaðan
út í umhverfið og geti hæglega
endað í drykkjarvatni.