Bændablaðið - 17.07.2014, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Landsmót hestamanna var haldið
á Gaddstaðaflötum á Hellu
30. júní til 6. júlí síðastliðinn.
Hestakostur á landsmóti þótti
með eindæmum góður, met féllu
og áhorfendur hrifust. Hins
vegar ákváðu veðurguðirnir að
sýna flestar sínar hliðar og höfðu
allnokkur áhrif á mótshaldið.
Úrhellisrigning var framan af
mótinu, einkum mánudaginn 30. júní
og þriðjudaginn 1. júlí. Mótshaldarar
þurftu að fresta keppnishaldi að
hluta til þá daga, sem gerði það að
verkum að mikið mæddi á hestum,
knöpum og starfsfólki það sem eftir
leið vikunnar. Ekki átti það síst við
um kynbótasýningar en metfjöldi
hrossa var hafði náð lágmörkum
inn á mótið, alls 281 hross. Allt
hafðist þetta þó fyrir rest og glöddu
góðir hestar, gjörvilegir knapar og
meteinkunnir áhorfendur á mótinu
þrátt fyrir að rignt hafi alla daga
mótsins nema fyrsta daginn.
Um tíu þúsund áhorfendur mættu
á Landsmót þegar mest var, þar af
voru um fjögur þúsund erlendir
gestir. Voru sumir þeirra orðnir
nokkuð hraktir, einkum fyrri hluta
vikunnar, í vatnsveðrinu. Aðstaða
á Gaddstaðaflötum var hins vegar
góð og nýttu gestir sér veitinga- og
sölutjöld óspart. Vellirnir stóðust
bleytuna ótrúlega vel sem sjá mátti
á góðum árangri.
Setningarathöfn Landsmóts
hestamanna fór fram fimmtudaginn
3. júlí að viðstöddum um 5.000
gestum. Illugi Gunnarsson, mennta-
og menningarmálaráðherra setti
mótið. Svo enn sé talað um veður
var það með skaplegasta móti
við setninguna. Um 300 fulltrúar
hestamannafélaganna í landinu tóku
þátt í hópreið við setninguna.
Þrátt fyrir leiðindaveður náðist
eins og áður segir góður árangur á
mótinu. Bjarni Bjarnason og Hera
frá Þóroddsstöðum settu þannig
heimsmet í 250 metra skeiði
á tímanum 21,76 sekúndum. Í
150 metra skeiðinu slógu Teitur
Árnason og Tumi frá Borgarhóli
Íslandsmetið en vegalengdina
fóru þeir á 13,77 sekúndum. Þá
fékk Spuni frá Vesturkoti fádæma
einkunn í A-flokki gæðinga, 9,30.
Þá fékk Hamingja frá Hellubæ
heimsmetsdóm í flokki fjögurra
vetra hryssa á mótinu, 8,54 í
aðaleinkunn. /fr
Landsmót hestamanna 2014:
Frábær árangur þrátt fyrir vatnsveður
Sleipnisbikarinn, sem er farandbikar og veittur sem heiðursverðlaun í ræktun stóðhesta, þykir jafnan eftirsóttustu verðlaunin á Landsmóti hestamanna. Að þessu sinni féll hann í skaut
stóðhestinum Vilmundi frá Feti, en ræktandi hans er Brynjar Vilmundarson og eigandi er Karl Wernersson. Myndir / HKr.
Við afhendingu á Sleipnisbikarnum. Á myndinni eru talið frá vinstri Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka
Íslands, Karl Wernersson, eigandi stóðhestsins Vilmundar frá Feti, og ræktandinn, Brynjar Vilmundarson.