Bændablaðið - 17.07.2014, Síða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Reglur í Noregi gera ráð fyrir að
land sem hægt er að nýta undir
matvælaframleiðslu sé nýtt sem
slíkt og jarðir eru verðlagðar eftir
framleiðslugetu, segir Ingólfur
Jakobsson, sem hóf búskap
á Andøy í Nordland fyrir sjö
árum ásamt sambýliskonu sinni
Margréti Kjartansdóttur.
Parið bjó áður fyrir utan
Stykkishólm og kynnti sér verð
á jörðum a Íslandi en áttuðu sig
fljótlega á að kaup á jörð væri ekki
á þeirra færi. Í framhaldi af því fluttu
þau til Danmerkur í von um að finna
eitthvað þar sem væri nógu stórt til
að geta haldið nokkra hesta og með
nægu landi til að geta heyjað í þá en
líkt og á Íslandi var verð á landi allt
of hátt. Fyrir sjö árum var stefnan því
tekin á Noreg þar sem þau búa í dag.
Ólíkar viðtökur í Noregi
„Viðtökurnar sem við fengu í
Noregi voru mjög ólíkar þeim sem
við höfðum átt að venjast og komu
okkur skemmtilega á óvart. Í Noregi
var eins og allir vildu hjálpa okkur
til að koma undir okkur fótunum og
hægt að fá jarðir á viðunandi verði
og lán með vöxtum sem hægt er að
ráða við. Stefnan þar er því að hjálpa
ungu fólki sem vill hefja búskap að
gera það.
Fyrst eftir að við komum til
Noregs bjuggum við skammt frá
Kristjánssundi en svo lögðumst við
yfir að skoða jarðir í Noregi sem við
fundum á vefnum gårdsbruk.no, og
voru til sölu. Við punktuðum niður
jarðir í Norður-Noregi sem okkur
leist á og skoðuðum nokkrar þeirra
áður en við ákváðum að kaupa býli
á Andøy í Nordland.
Jörðin er um 170 hektarar að
stærð og af því voru um 17 hektarar
af túni sem voru sum í talsverðri
niðurníðslu en íbúðarhúsið er gott
og úthúsin gömul en nothæf,“ segir
Ingólfur.
Jarðir verðlagðar í samræmi
við framleiðslugetu
„Verði á landi er stýrt í Noregi
með hliðsjón af því hvort hægt sé
að nýta það undir landbúnað og
framleiða mat. Fólk getur keypt sér
óræktarland og byggt sér sumarhús
en ekki landi sem hægt er að nýta
undir matvælaframleiðslu.
Samkvæmt reglum í Noregi
eru jarðir sem flokkast undir
landbúnað verðlagðar
í samræmi við fram-
leiðslu getu þeirra
en ekki lögmálum
markaðarins um framboð
og eftirspurn. Segjum
sem svo að jörð beri 100
kindur, þá er ekki hægt
að verðleggja hana nema
á eitthvað ákveðið. Hins
vegar gilda aðrar reglur
um íbúðarhús á jörðu og
þau geta verið dýr séu þau
stór og glæsileg.
Þeir sem eiga jörð
sem er skilgreind sem
landbúnaðarland verða
að búa á henni og stunda
búskap og þannig er komið í
veg fyrir að menn geti sölsað
undir sig jarðir án þess að
nytja þær.“
Hagstæð lán
„Í okkar tilfelli fengum við lán
frá okkar viðskiptabanka til að
kaupa jörð og húsið en fengum
síðan lán gegnum sveitarfélagið
til að kaupa vélar og skepnur.
Lán sem eru veitt í gegnum
sveitafélögin eru á hagstæðum
kjörum og verið afborgunar- og
vaxtalaus í
allt að fjögur ár. Þar er hugsunin
að styðja við þá sem eru að hefja
landbúnað. Svipað gildir um þá sem
vilja kaupa sinn fyrsta fiskibát.
Í fyrstu ætluðum við
okkur eingöngu að vera með íslenska
hesta og eigum fimm fullorðna í dag
og tvö folöld. Við fengum okkur
seinna 25 kindur til að prófa og erum
því líka að framleiða lambakjöt.
Frá því að við keyptum jörðina
höfum við bætt túnin talsvert og
byggt við útihúsin og nú erum við
með um 70 fjár á húsi, helling af
hænum sem ganga úti á sumrin,
auk þess sem ölum grísir á sumrin
upp í sláturstærð. Grísirnir eru mjög
duglegir í að endurnýja gömul tún
þar sem þeir snúa öllu við og velta
steinum upp á yfirborðið.“
Ingólfur og Margrét eru bæði
virk í norskri landbúnaðarpólitík.
Margrét er formaður fyrir Norsk
bonde og småbrukerlag á Andøy
og Ingólfur er í stjórn Norsk bonde
og småbrukerlag fyrir Nordland.
Matarsiðferði
Ingólfur hefur ákveðnar skoðanir
þegar kemur að landbúnaði og
landnýtingu á Íslandi. „Mér þykir
einkennilegt að Íslendingar, sem
hafa takmarkað fjárhagslegt
bolmagn, skuli flytja inn
landbúnaðarvörur sem hæglega er
hægt að rækta á Íslandi.
Ég tel líka kominn tíma til
að ræða ýmsar siðferðislegar
spurningar sem snúa að innflutningi
á matvælum. Til dæmis hvaðan
maturinn kemur og hvernig hann
verður til? Eftirspurn eftir ódýrum
mat er mikil en fáir velta fyrir sér
af hverju matur getur verið ódýr
og ódýr matur verður ekki til af
sjálfu sér. Til að framleiða ódýrt
kjöt þarf ódýrt fóður sem búið er
til úr ódýru hráefni sem yfirleitt
er framleitt í löndum þar sem
eftirlit með framleiðslunni er lítið.
Notkun á eiturefnum er oft mikil
og aðbúnaður og laun starfsfólks
léleg. Það sem meira er þá er þetta
einfaldlega lélegur matur og gerir
okkur ekki gott til lengri tíma.
Rannsóknir, sem sjaldnast er
haldið á lofti, sýna að kjöt sem er
framleitt með fóðri úr soja eða maís
er mun verra og óhollara en kjöt
Ungu fólki í Noregi er hjálpað til að hefja búskap:
Lán hagstæð og jarðir verðlagðar í
samræmi við framleiðslugetu
Margrét Kjartansdóttir og Ingólfur Jakobsson, bændur á Andøy í Nordland.
Kindur af gömlu
m norskum stof
ni líkjast mjög ís
lensku fé.
Auk búfjárræktar rækta Ingólfur og Margrét talsvert af grænmeti.