Bændablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
af skepnum sem fóðraðar eru með
grasi og grófu korni.
Fólk víða um heim er sem
betur fer farið að vakna til
vitundar um að svo gengur
þetta ekki til lengdar og
framleiðsla af minni,
lífrænum búum og vörur á
bændamörkuðum er orðin
eftirsótt matvara,“ segir
Ingólfur.
Matur ekki dýr á Íslandi
„Almenningur verður að
fara að átta sig á því að
matur á Íslandi er ekkert
sérstaklega dýr. Foreldrar
okkar og afar og ömmur
borguðu mun hærra verð
fyrir matinn en við gerum í
dag. Fólk er tilbúið að borga
háar upphæðir fyrir bíla, húsnæði,
föt, utanlandsferðir og alls konar
afþreyingu en maturinn má helst
ekki kosta neitt. Skuldinni er skellt
á bændur og matvælaframleiðslu og
hún sögð allt of kostnaðarsöm ef
um góða vöru er að ræða.
Í Noregi, sem er eitt ríkasta
landi í heimi, er litið á framleiðslu
matvæla og mataröruggi sem
mikilvægan þátt í að halda landinu
í byggð. Norðmenn líta svo á að
þar sem vex gras og hægt er að
framleiða fóður á sjálfbæran hátt
eigi að vera landbúnaður.
Á Íslandi þykir aftur á móti
sjálfsagt að leggja beitarland undir
sumarhúsabyggð eða gera heilu
jarðirnar að leiksvæði fyrir þá sem
eiga mikið af peningum. Í mínum
huga er nýting á landi forsenda
matvælaöryggis og kominn tími til
að við umgöngumst það sem slíkt,“
segir Ingólfur.
Langar að framleiða
lífrænan áburð
Ingólfur segir að næsta skerf í
búrekstri þeirra hjóna sé að reisa
nýtt fjárhús fyrir um 250 kindur og
að það verði talsvert öðruvísi en
peningshús sem þekkjast hér á landi.
„Í Andøy er framleitt talsvert af
svarðmold og hluti moldarinnar er
fenginn af okkar jörð. Við höfum
nánast ótakmarkaðan aðgang að
þessari mold. Á jörðinni vex líka
mikið af fjalldrapa og birki, sem á
köflum er að færa allt í kaf. Reyndar
er það svo að ef ekkert er gert til að
halda birkinu niðri yfirtekur það öll
tún á fáeinum árum.
Hugmyndin hjá mér er að nota
birkihrís og svarðmold í gólfið
á húsinu og framleiða með því
ásamt taðinu lífrænan áburð til
að bera á túnin á vorin og færa
reksturinn þannig enn nær því að
vera sjálfbæran.
Ég hef átt í viðræðum við
vegagerðina og nágrannasveitarfélög
um þessa hugmynd og get hugsanlega
í framtíðinni skapað mér vinnu við
að fjarlægja kjarr og tré af vegum.
Hráefnið verður síðan tætt og notað
sem undirlag fyrir skepnurnar,“ segir
Ingólfur að lokum. /VH
Íslenskir hestar í Noregi.
Norvell Gard.
Ný hönnun, ný tækni
T5.115 með Alö X46 ámoksturstækjum
aðeins 9.680.000 kr. án vsk.
NEW HOLLAND Einstök hönnun á húsi þar
sem öll tæki eru innan
seilingar og með frábært
útsýni úr húsi sem enginn
annar býður. Aukin þægindi
fyrir ökumann og farþega
Stærri hurðir
auðvelda
umgengni í
ökumannshúsi
24x24 kúplingsfrír
gírkassi með
milligír
New Holland stendur
fyrir gæði, endingu og
frábært endursöluverð
T5
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is