Bændablaðið - 17.07.2014, Síða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Mikið fjölmenni og gríðargóð
stemming var á Hvanneyri á
laugardaginn í síðustu viku þegar
heimamenn blésu til hátíðar í
tilefni þess að 125 ár eru liðin
síðan fyrsti nemandinn hóf nám
við Bændaskólann.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan þá. Enn innritast bændur í skóla
á Hvanneyri ásamt öðrum nemendum
á önnur skólastig en þar er starfræktur
leikskóli og grunnskóli, auk
Bændadeildarinnar og háskóladeilda
LbhÍ. Þessi langa skólasaga og
mikla framboð menntunar
er nokkuð sérstakt í ekki
stærra þorpi og líklega
einsdæmi.
Voru hátíðarhöldin
tengd við árlegan
safnadag þar sem
Landbúnaðarsafnið var
með sína dráttarvélasýningu
og félagar í Fornbílafélagi
Borgarfjarðar mættu
með lystikerrur á ýmsum
aldri. Í Gamla skóla var
myndasýning, markaður var
í hátíðartjaldi og hestaferðir
og skemmtisvæði fyrir
börnin.
Tveir fyrrverandi
skólastjórar leiddu fólk um
svæðið og í Halldórsfjósi
var Kvenfélagið 19. júní
með kleinur og nýbakaðar
pönnukökur. Fullt var út
úr dyrum í kaffihúsinu
Skemmunni og hjá Árna í
Árdal sem seldi lambamána
grillaða á staðnum og gos úr
íslenskum jurtum.
Bændaskólinn á Hvanneyri:
Liðin eru 125 ár síðan fyrsti nemandinn hóf þar nám
Mikið fjölmenni og gríðargóð stemming var á Hvanneyri þegar heimamenn blésu til hátíðar í tilefni þess að 125 ár eru liðin síðan fyrsti nemandinn hóf nám við Bændaskólann.
Fræðasetur um forystufé opnað á Svalbarði í Þistilfirði
Fræðasetur um forystufé var
opnað um liðna helgi í fyrrverandi
samkomuhúsi sem er við Svalbarð
í Þistilfirði. Veðrið var eins og best
verður á kosið, sól og um og yfir 20
stiga hiti. Margt góðra gesta var
mætt við opnunina, sumir langt að
komnir, svo sem frá Egilsstöðum,
Snæfellsnesi, Akureyri, Húsavík
og víðar.
Daníel Hansen, aðalhvatamaður
að uppbyggingu Fræðaseturs um
forystufé, setti samkomuna, bauð
gesti velkomna og rakti söguna frá
því að fræðafélagið var stofnað og
til dagsins í dag. Séra Brynhildur
Óladóttir sóknarprestur blessaði
húsið, en að því loknu var gestum
boðið að skoða sýninguna og þiggja
veitingar.
Handverk unnið úr afurðum
forystufjár
Sýningin er fallega hönnuð og
vel framsett. Hún nýtur sín vel í
gamla samkomuhúsi sveitarinnar,
sem nú hefur fengið nýtt líf
sem menningarsetur. Hönnun
sýningarinnar var í höndum Þórarins
Blöndal og Finns Arnars Arnarssonar.
Umgjörð setursins er öll vönduð
og er til sölu handverk sem sérunnið
er fyrir setrið og gert er úr afurðum
af forystufé. Mikið af því er
unnið af handverkskonunni Elínu
Kjartansdóttur frá Norðurhlíð í
Aðaldal.
Í húsinu er einnig listgallerí þar
sem opnuð var sýning á myndum
eftir Ástþór Jóhannsson frá Dal á
Snæfellsnesi. Myndirnar eru unnar
eftir ljósmyndum úr bók Ásgeirs
Jónssonar frá Gottrop.
Ærblanda í boði í Sillukaffi
Í kjallara hússins var Kvenfélag
Þistilfjarðar með veitingar á árum
áður við ýmis tækifæri, til dæmis
í tengslum við Svalbarðsböllin
vinsælu. Nú er búið að koma
þar upp notalegu litlu kaffihúsi,
Sillukaffi, þar sem hægt verður að
kaupa þjóðlegar veitingar, svo sem
kaffi sem er sérbrennt og malað fyrir
setrið og ber nafnið Ærblanda.
Forystufjársetrið er opið alla
daga til loka ágúst frá klukkan
11-18.
Aldís Gunnarsdóttir, Daníel Hansen og Brynhildur Óladóttir sóknarprestur
á pallinum við Forystufjársetrið.
ýmsan fróðleik um forystufé. Myndir / Líney Sigurðardóttir