Bændablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
kornvöru á dönskum markaði, auk
þess sem mikið fer í útflutning.
Mikil áhersla er lögð á skiptirækt
til að minnka smitálag á ökrunum.
Þá er stunduð skipulögð skiptibeit
til þess að draga úr hættu á
ormasmiti og minnka hlutfall
illgresis í ökrunum. Þannig skilja
t.a.m. kindur og geitur eftir orma
í ökrum, sem svínin svo hreinsa í
burtu. Hún er með mikla flóru af
jurtum í túnunum og telur að slíkt
fóður skili heilbrigðari skepnum og
náttúrulegu bragði afurðanna.
Mikil vinna hefur farið í að finna
tegundir og yrki sem henta lífrænni
ræktun. Þannig hefur mikið verið
horft til þeirra tegunda sem algengar
voru áður fyrr, og eru ekki jafn
áburðarfrekar. Reglum samkvæmt
má bera 70 kg/ha af köfnunarefni
á tún, en á Knuthenlund eru, með
lífrænum áburði, borin á um 30 kg/
ha. Í staðinn hefur áhersla verið lögð
á að nýta niturbindandi jurtir og
þannig hefur smárarækt í ökrunum
borið góðan árangur.
Til að eyða skaðvöldum sem
herja á nytjaplöntur í ökrum er búið
að gróðursetja runna með reglulegu
millibili. Runnarnir eru hýbýli fyrir
skordýr sem halda skaðvöldum
í skefjum. Sérstaklega eru það
kóngulær og maríubjöllur sem eru
í runnunum. Runnunum er raðað
í rendur með 150 metra millibili.
Áætlað er að skordýrin fari um 75
metra frá runnanum í hvora átt, og
ná þannig að vinna á öllum akrinum.
Lífrænn búskapur og viðskipti
Aðspurð um helstu vandamálin við
yfirfærsluna í lífrænan búskap segir
hún að mesta vinnan hafi falist í því
að skipta um bústofn. Það hafi tekið
tíma að kynnast og læra á geitur og
ær eftir að hafa verið með kýr á
staðnum í fjöldamörg ár.
Hún segir regluverkið í
kringum lífræna búskapinn ekki
vera fyrirstöðu. Það séu strangar
reglur en að það sé í raun betra, og
eitthvað sem að bændur ættu frekar
að nýta sér við markaðssetningu.
Það sé öruggara fyrir neytendur
að kaupa lífrænt frá umhverfi þar
sem reglur eru strangar og eftirlit
öflugt. Þetta kom okkur á óvart,
enda frekar háværari umræðan um
að regluverkið heima sé of strangt.
Hún ráðleggur því íslenskum
bændum að líta frekar á strangar
reglur og eftirlit sem sóknartækifæri
frekar en fyrirstöðu, það geti allir
grætt á því.
Á Knuthenlund eru þrjátíu
starfsmenn sem er býsna mikið
starfsmannahald á einu búi, en
Susanne segist ánægð með að geta
staðið fyrir fjölmennum vinnustað úti
á landi. Miðstýring og fólksfækkun
á landsbyggðinni sé óhjákvæmileg,
en hvert starf sem skapast úti á landi
sé verðmætt og eigi að berjast fyrir.
Allir starfsmenn eru Danir, fyrir utan
tvo Hollendinga, en hluti af því er
í samstarfi við Vinnumálastofnun.
Sjálf sér Susanne einkum um
sölu- og markaðsstarf fyrir búið.
Hún er menntuð í alþjóðaviðskiptum
og með meistaragráðu í listasögu.
Sú menntun og reynsla var
grundvöllur breytinga og vaxandi
velgengni búsins. Hún leggur
áherslu á hönnun söluvarnings og
framsetningu. Reynsla og þekking
á alþjóðaviðskiptum er svo hluti af
velgengni hennar við útflutning,
en helmingur allrar framleiðslu
Knuthenlund-búsins er seldur
erlendis. Þó helstu markaðir séu
nágrannalönd Danmerkur, gerir
hún einnig út á vaxandi markaði
í Asíulöndum og hefur selt vörur
til Kína, Sameinuðu arabísku
furstadæmanna og Japans.
Það var fróðlegt að heyra
hana lýsa muninum á því að
eiga viðskipti við Kína og Japan.
Stærð markaðarins í Kína geri
litlum aðilum erfitt að komast þar
inn, auk þess sem viðskiptahættir
eru frábrugðnir því sem gerist í
Vesturlöndum. Viðskiptamenning
Japan svipi hins vegar meira til þess
sem við eigum að venjast, og því
auðveldara að fóta sig þar.
Mikilvægur liður í því að mynda
viðskiptatengsl er að hitta fólk, en
árlega koma um 30.000 manns og
heimsækja Knuthenlund.
Landbrug og Fødevarer
Til þess að við fengjum sem mest út
úr ferðinni kom Sturla Sigurjónsson
á fundi hjá Landbrug og Fødevarer,
þannig að við gætum kynnt okkur
hagsmunasamtök landbúnaðarins
í Danmörku. Við hittum Søren
Gade framkvæmdastjóra Landbrug
og Fødervarer og Jan O.F. Lausen
forstjóra viðskipta-, markaðs- og
næringarsviðs stofnunarinnar.
Sören Gade fór yfir uppbyggingu
og innviði samtakanna. Stofnunin
var sett á laggirnar fyrir fjórum
árum og er samstarfsverkefni
hagsmunasamtaka bænda,
afurðastöðva og þjónustufyrirtækja
innan landbúnaðargeirans.
Stofnunin er hagsmunaaðili
fyrir danskan landbúnað og stendur
fyrir öflugu markaðsstarfi. Öflugt
rannsóknarstarf er auk þess stundað á
vegum stofnunarinnar á öllum sviðum
landbúnaðar og matvælaframleiðslu.
Að sögn Sörens breytti tilkoma
Landbrug og Födevarer miklu fyrir
hagsmunabaráttu allra sem starfa
við landbúnað og tengdar greinar.
Skiptir þar mestu að á bak við
stofnunina eru fleiri aðilar og meira
fjármagn heldur en áður þekktist.
Breytingar á framleiðsluháttum og
byggðaþróun olli því að vægi hinna
hefðbundnu bændasamtaka varð
orðið minna og því erfiðara að hafa
áhrif innan embættismannakerfisins
og stjórnmálanna.
Á fundinum var einnig rætt
um sóknartækifæri í dönskum og
íslenskum landbúnaði. Sören deilir að
vissu leyti þeirri skoðun með Susanne
á Knuthenlund að það eigi ekki að
vera hlutverk þessara landa að vinda
ofan hungursneyð í fjarlægum löndum
með eigin framleiðslu. Sören leggur
áherslu á að aðkoma þessara landa
að þeim vanda eigi fyrst og fremst að
vera í formi miðlunar á þekkingu og
tækni. Það verði seint raunhæft fyrir
Danmörku að framleiða matvæli á
verði sem þróunarlönd geti keypt á.
En með því að stunda öflugt tilrauna-
og rannsóknarstarf geti þessar þeir
lagt sitt af mörkum. Gefðu svöngum
manni fisk, og hann verður saddur í
dag. Kenndu honum að veiða, og hann
verður saddur alla ævi.
Fyrst og fremst á að stefna á
markaði sem borga hátt verð
Útflutningur matvæla landa eins
og Íslands og Danmerkur á fyrst og
fremst að vera, segir Sören, til landa
sem vilja kaupa gæðavöru og borga
hátt verð fyrir.
Að þessu sögðu er auðvitað ekki
verið að segja að eingöngu eigi að
framleiða rándýrar vörur. Neytendum
verður líka að gefast kostur á því
að versla ódýrari matvæli, en það
eigi ekki að vera stefnan að auka þá
framleiðslu. Það verður að horfast í
augu við aukna áherslu neytenda á
öfluga gæðastýringu.
Það er skoðun undirritaðra að
þetta megi heimfæra á íslenskan
veruleika. Það verður því spennandi
að sjá hvernig Hinn íslenski
landbúnaðarklasi, sem stofnaður var
þann 6. júní sl, muni þróast.
Eins og þeir sem fylgst hafa
með vita, þá er bakgrunnur
landbúnaðarklasans mjög svipaður
Landbrug og Fødevarer í Danmörku.
Þetta gæti því orðið spennandi
vettvangur fyrir aðila innan
landbúnaðargeirans til að hafa áhrif,
auk þess sem öll miðlun þekkingar
og reynslu ætti að verða auðveldari.
Það er von okkar að tilkoma
Landbúnaðarklasans verði til þess að
enn frekar verði gefið í þegar kemur
að útflutningi og markaðssetningu á
erlendri grundu. Þá þarf að gera átak
í rannsóknarstarfi við landbúnað, en
það hefur verið í allt of mikilli lægð.
Mikil tækifæri
Undirritaðir eru hæstánægðir með vel
heppnaða ferð og vona að lesendur
séu nokkru fróðari eftir lesturinn.
Það er margt sem við getum lært af
Dönum, sérstaklega þegar kemur
að markaðssetningu og útflutningi.
Það er skoðun undirritaðra að
þegar kemur að nýsköpun séu
mikil tækifæri í lífrænni ræktun.
Grundvöllur öflugrar nýsköpunar
er að sjálfsögðu nýliðun. Þessir
tveir þættir haldast í hendur, og
eru mikilvægir fyrir framfarir í
íslenskum landbúnaði.
Styrktaraðilar ferðarinnar voru;
Sjávar útvegs- og landbúnaðar-
ráðuneytið, Bændasamtök Ísland,
Bíó-Bú, Sláturfélag Suðurlands
og Mjólkursamsalan. Við færum
þessum aðilum, sem gerðu okkur
kleift að gera okkur ferð út og víkka
sjóndeildarhringinn, okkar bestu
þakkir.
Sérstakar þakkir færum við Sturlu
Sigurjónssyni fyrir höfðinglegar
móttökur og milligöngu um
heimsókn okkar til Knuthenlund og
fund með forsvarsmönnum Landbrug
og Födevarer.
Einar Freyr Elínarson
formaður SUB
Ástvaldur Lárusson
varaformaður SUB
Sören Gade, framkvæmdastjóri Landbrug og Fødevarer, Ástvaldur Lárusson,
Einar Freyr Elínarson og Jan O.F. Lausen, forsjóri viðskipta-, markaðs- og
næringarsviðs L og F.
SEPT O AID eru þurrfrystar örverur tilbúnar til
að brjóta niður allan lífrænan úrgang í rotþróm.
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
KOMDU ROTÞRÓNNI
Í LAG MEÐ
SEPT-O-AID
UMHVER
FISVÆN
VARA F
RÁ KEM
I
Samsetning 13 mismunandi örvera hjálpar til að vinna á og minnka fastan úrgang
og breyta í fljótandi form ásamt því að eyða allri ólykt frá rotþrónni. Einfalt í notkun;
sett í klósett skálina og beðið í 20 mínútur, því næst er efninu skolað niður.