Bændablaðið - 17.07.2014, Page 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Fróðleiksbásinn
Vilmundur Hansen þjóðfræðingur og garðyrkjufræðingur
Aðgangur að gróðurhúsi eða
garðskála eru lúxus sem allt of fáir
leyfa sér en sem betur fer færist
sífellt í vöxt að slík útihús séu
byggð í görðum eða við íbúðarhús.
Garðyrkjumenn í Róm ræktuðu
plöntur, frá landvinningasvæðunum
herforingjanna, í sólreytum og
gróðurskálum. Í Pompei á Ítalíu hefur
fundist ræktunarhús frá fyrstu öld
eftir Krist. Þar voru múrsteinshillur
sem plöntur í pottum stóðu á og
leiðslur fyrir heitt loft í veggjum.
Framhlið hússins var klædd með
ljóshleypnum steinflögum.
Það var ekki fyrr en á tíma
endurreisnarinnar og landafundanna
miklu sem gróðurhús og
laufskálar ná einhverri útbreiðslu.
Ræktunarhús urðu tísku fyrirbrigði
og stöðutákn meðal hina efna meiri.
Mikill af nýjum og spennandi
plöntum barst til Evrópu frá
nýlendunum. Grasafræðingar
þekktu ekki plönturnar og áttu
fullt í fangi með að gefa þeim nafn
og skrásetja. Fæstar þeirra þoldu
evrópska veðráttu og efnaðir
áhugamenn um gróður kepptust
við að reisa gróðurhús á landareign
sinni. Garðyrkjumenn prófuðu sig
áfram og voru furðu fljótir að átta
sig á sérþörfum hverrar tegundar
fyrir sig.
Gróðurhús á hjólum
Fyrstu gróðurhúsin í Evrópu voru
nær eingöngu ætluð til að verja
appelsínutré sem voru mikið í tísku
á sínum tíma. Trjánum var plantað
í jörð en húsin á hjólum og keyrt
yfir trén yfir vetrartímann. Seinna
var farið að rækta trén í kerum eða
stórum pottum og þau borinn í hús
á haustin og aftur út að vori.
Fyrst þegar gler kom til sögunnar
voru rúður litlar og aðeins hafðar
á suðurhlið skálana en ekki leið á
löngu þar til farið var að nota gler
í þakið líka. Í fyrstu voru framfarir
litlar í gerð gróðurhúsa en um miðja
19. öld voru tekin stór skref fram á
við með tilkomu þynnra og sterkara
glers.
Gróðurhús eða garðskálar
nútímans eiga sér langa hefð, þótt
saga þeirra hér á landi sé stutt.
Björn Halldórsson í Sauðlauksdal
er líklega allra fyrsti Íslendingurinn
til að reisa gróðurskála hér á landi.
Eggert Ólafsson skáld og mágur
Björns kallaði húsið lystigarð ljúfra
kála og samdi um það Listhúskvæði
þar sem segir meðal annars
Laufa byggja skyldi skála,
skemmtiliga sniðka og mála,
í lystigarði ljúfra kála,
lítil skríkja var þar hjá,
– fagurt galaði fuglinn sá –
týrar þá við timbri rjála
á tólasmíða fundi.
– Listamaðurinn lengi þar við undi.
Gróðurskálar og byggingarefni
Hér á landi, þar sem er oft vindasamt
og sumur stutt, er notagildi
gróðurskála slíkt að ekki þarf að
réttlæta byggingu þeirra. Það ætti að
vera sjálfsagt að hanna gróðurskála
við nýbyggingar og auðvelda ætti
fólki að byggja skála við eldra
húsnæði.
Best er að nota ál, plast eða
timbur í burðargrindina. Í grunninn
skal hafa járnbenta steypu sem þarf
að ná niður fyrir frost. Framræsla
verður að vera góð svo vatn safnist
ekki fyrir í grunninum.Veggirnir
þurfa að standa að minnsta kosti
10 til 15 sentímetra upp úr jörðinni
og vera 10 til18 sentímetra þykkir.
Ef um er að ræða timburgrind eru
steyptar í grunninn járnstoðir sem
halda þakinu uppi. Sé grindin úr áli
er hún boltuð við grindina.
Í upphituðum skálum má draga
verulega úr hitakostnaði með því að
hafa veggi í borðhæð og einangra
vel og gæta þess að einangra öll
samskeyti. Gólf gróðurskálans
þarf að vera sterkt og þola vel vatn,
óhreinindi og upplitun af völdum
sólarljóss. Gólfið er best að steypa
eða helluleggja og æskilegt er að
hafa niðurfall með vatnslás á hverja
10 fermetra. Einnig má notast við
leirflísar, járnrimla eða vatnsvarið
timbur. Gólfið þarf að vera þannig
að hægt sé að bleyta það til að auka
loftraka í þurrum veðrum. Ef rækta
á plöntur á gólfinu er best að steypa
í það ker. Kerin þurfa að vera vel
einangruð og með niðurfalli. Þau
eiga að vera um 60 sentímetra djúpt
en lengd og breidd þess fer eftir
stærð skálans. Einnig má steypa
ker við háa grunnveggi og jafnvel
hafa þau í stöllum.
Umhverfisþættir
Þættir sem stjórna loftslagið í
skálanum eru hiti, raki, loftræsting,
skygging og lýsing.
Gróðurskálum er oftast skipt í
þrjár gerðir eftir hitastigi og þeim
ræktunarmöguleikum sem skálinn
býður upp á. Í köldum skálum, er
engin hitalögn og hitastig ræðst af
veðurfari. Loftslagið í skálanum
líkist kaldtempruðu loftslagi
Vestur Evrópu. Í svölum skálum
er hitalögn sem nægir til að halda
hitastigi ofan við frostmark yfir
vetramánuðina. Hiti á vetrum er
1til 10 °C og ræðst að mestu af
veðurfari. Í slíkum skálum líkist
loftslagið heittempruðu loftslagi
Suður Evrópu, við Miðjarðarhaf.
Í heitum gróðurskálum er hitalögn
sem heldur lofthita yfir 10 °C allt
árið. Jarðvegshiti þarf að vera
stöðugur við 18°C, þannig að
nauðsynlegt er að hafa hitalagnir í
beðum og gólfi. Loftslag í heitum
skálum líkist hitabeltisloftslagi við
miðbaug.
Loftraki í íbúðum er oft of
lágur til þess að plöntur þrífist vel
og vanþrif í þeim má oft rekja til
lágs loftraka. Til að halda rakastigi
háu í gróðurskálum er nauðsynlegt
að getað að lokaða þá frá öðrum
vistarverum hússins með hurð.
Heppilegur loftraki í gróðurskálum
er 60 til 80%, hann má ekki fara
niður fyrir 40%. Loftrakann má
tempra með því að sprauta vatni á
gólfin eða hafa bakka með rökum
vikri eða möl í skálanum. Einnig er
hægt að fá fullkomna tölvustýrða
vatnsúðara til að stjórna rakastiginu.
Gott er að láta plönturnar standa
þétt því þá nýta þær vel rakann hver
frá annarri.
Gróðurskálar þurfa að hafa
opnanleg fög sem eru 30 til 40%
af grunnfleti þeirra. Hægt er að
fá sjálfvirkan gluggaopnara til
að auðvelda loftræstingu. Einnig
er gott að hafa viftu til að halda
loftinu á hreyfingu. Það skal haft
í huga að sé loftræsting góð er
gróðurskálaloftslag bæði heilnæmt
og frískandi.
Fari hitastigið í skálanum yfir
27°C vegna sólgeislunar verður að
grípa til skyggingar til að koma í
veg fyrir að plönturnar skemmist
af völdum hitans. Til skygginga
má nota akrýldúk, bambus- eða
rimlagardínur og þeir sem lengst
vilja ganga geta keypt ofinn
spegildúk sem hleypir inn birtu
en ekki hita og í köldum veðrum
varnar hann hitaútgeislun.
Þegar sólin er lægst á lofti
getur verið nauðsynlegt að grípa
til lýsingar, þetta á aðallega við um
heita skála, til að plönturnar geti
ljóstillifað og haldið áfram að vaxa.
Hægt er að fá sérstakar gróðurperur
til lýsingar.
Einnig má ná fram
skemmtilegum áhrifum með því að
hafa lýsingu í garðinum og tengja
þannig garðinn og skálann.
Plöntur og ræktun
Það eru einkum fimm þættir sem
fólk þarf að huga að þegar fengist
er við ræktun í gróðurskálum,
jarðvegur, áburður, vökvun,
sjúkdómar og staðsetning.
Mold er mjög breytileg að eðli
og gerð, hægt að fá sendna mold,
leirkennda mold og mýrarmold.
Moldin getur verið þétt eða gljúp,
súr eða basísk. Best er að nota
góða pottamold og blanda hana að
þriðja hluta með sandi. Einnig er
nauðsynlegt að gæta vel að sýrustigi
jarðvegsins. Hætt er við að mold í
kerum og pottum verði of þétt í og
loftlítil. Því er gott að setja grjót eða
hraun í botninn, við það myndast
loftrými milli steinanna og ræturnar
geta andað. Gott er að skipta um
mold á 4 til 5 ára fresti, jafnvel þótt
hún sé stunginn upp og blönduð
áburði á hverju ári.
Í gróðurskálum á að notast við
fljótandi og lífræna áburðarlausn
en ekki kornaðan áburð eins og
utanhúss. Fljótandi áburður er
auðleystari og skolast fyrr út og því
minni hætta á að áburðarsölt safnist
fyrir í moldinni og brenni ræturnar.
Erfitt er að benda á einhverja eina
tegund eða einn styrkleika af
áburður sem hentar öllum plöntum.
Hver planta hefur sína sérvisku og
heilavænlegast er að eiga góða
handbók til að fletta upp í.
Það á alltaf að vökva með volgu
vatni, um 18°C og ekki mikið í einu.
Þótt plöntur vilji hafa háan loftraka
er ekki þar með sagt að þær vilji
standa í blautum jarðvegi. Hver
tegund þarf sína sérstöku vökvun
og það getur verið verra að vökva
of mikið en of lítið. Reglan er því
lítið í einu en oft.
Loftslag í gróðurskálum er
kjörið fyrir sjúkdóma og meindýr
af öllu tagi og má því reikna með að
þurfa að fást við slíkt frá upphafi.
Flestir sjúkdómar berast í skálann
með plöntunum og því verður að
skoða hverja plöntu gaumgæfilega
áður en hún er sett í skálann. Gott
er að fylgjast vel með nývexti og
ungum plöntum. Allra best er að
beita fyrirbyggjandi aðgerðum,
hreinlæti er nauðsynlegt svo og
að fjarlægja fallin blóm og visnuð
blöð. Græðlinga skal einungis
taka af heilbrigðum plöntum og
nota smitfría mold. Ef upp koma
skordýraplágur skal beita lífrænum
vörnum sé þess nokkur kostur.
Breytilegt er hvað hver tegund
vill mikla birtu og það verður því að
taka tillit til þess þegar plöntunum
er valinn staður í skálanum. Plöntur
með stór blöð þola yfirleitt skugga
betur en plöntur með smá blöð.
Kaktusar og mjólkurjurtir þurfa
mikla sól en jurtir eins og rifblaðka
kjósa skugga. Hæð plantna ræður
einnig miklu um staðsetningu
þeirra, háar plöntur eiga að vera
innarlega í beðum en þær lægri
fremst. Með þessu njóta lágu
plönturnar sín betur og minni hætta
er á að þær falli í skugga þeirra
stærri.
Laufa byggja skyldi skála
Sólstofa í Bretlandi.