Bændablaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Utan úr heimi
Fundur samstarfsvettvangs afurðarstöðva í mjólkuriðnaði á Norðurlöndum:
Mjólkurframleiðsla á Norðurlöndunum
hefur ekki verið meiri í rúman áratug
Í byrjun júní var haldinn
ársfundur samtakanna NMSM
(samstarfsvettvangur afurðastöðva
í mjólkuriðnaði á Norðurlöndunum
um mjólkurgæði) en fundurinn
var haldinn í Hamra í Svíþjóð.
Á þessum fundi var að vanda
farið yfir helstu sameiginlegu
hagsmunamál afurðastöðva
Norðurlandanna þegar horft
er til mjólkurframleiðslunnar,
mjólkurgæða, mjaltatækninnar
og dýravelferðar og -heilbrigðis.
Eitt af eftirtektarverðustu
verkefnum þessara samtaka er
að taka saman tölfræði um helstu
grunnþætti mjólkurframleiðslu
Norðurlandanna en síðasta ár
framleiddu löndin til samans
11,7 milljarða lítra mjólkur, en
innvigtun mjólkur hefur ekki verið
meiri á þessari öld.
28 þúsund kúabú
Árið 2013 varð þróunin á fjölda kúabúa
áþekk því sem sést hefur undanfarin
ár og fækkaði framleiðslueiningunum
um 1.279 bú. Alls var fjöldi kúabúa
Norðurlandanna um áramótin 27.831
bú en til samanburðar má nefna það
að árið 1993 voru starfrækt 97.552
kúabú á Norðurlöndunum. Flest
búanna, 34,0%, eru í Noregi en þar
voru samtals 9.464 bú um síðustu
áramót og svo kemur Finnland
rétt á eftir með 9.292 bú. Í báðum
þessum löndum varð einnig langmest
hlutfallsleg fækkun búa á árinu, en
af þeim 1.279 sem hættu búskap á
Norðurlöndunum varð hlutfallsleg
fækkun um 5,4% í Finnlandi og 5,2%
í Noregi á meðan þetta hlutfall var t.d.
lægst hér á Íslandi (2,2%).
1,4 milljónir kúa
Á síðasta ári dró heldur úr fjölda
mjólkurkúa á Norðurlöndunum en alls
voru skráðar 1.446.288 mjólkurkýr
um áramótin og fækkaði þeim um 18
þúsund frá árinu 2012 og alls hefur
mjólkurkúm fækkað um rúmlega
hálfa milljón á síðustu 20 árum.
Langflestar kýrnar eru í Danmörku
eða 567 þúsund talsins og þar á eftir
kemur Svíþjóð með 346 þúsund. Vart
kemur á óvart að hér á landi eru fæstar
kýr, eða um 24 þúsund.
Meðalbúið nú með 52,0 árskýr
Fyrir 20 árum var meðalstærð
kúabúanna 20,4 árskýr en um síðustu
áramótin voru búin að jafnaði með
52,0 árskýr og stækkaði meðalbúið
um 1,7 árskú frá árinu 2012. Líkt
og fyrri ár eru kúabúin í Danmörku
langstærst og eru þar nú að jafnaði
154,0 kýr á hverju búi og hefur
meðalbúið fjórfaldast að stærð á
síðustu 20 árum. Næststærstu búin
er svo að finna í Svíþjóð þar sem eru
73,0 árskýr að jafnaði. Minnstur er
fjöldinn í Noregi, þar sem eru ekki
nema 24,2 árskýr að meðaltali. Sé hins
vegar horft til meðal bústærðar búa í
skýrsluhaldskerfum Norðurlandanna
verður þessi munur enn meiri en
meðal skýrsluhaldsbúið í Danmörku
er með 161,8 kýr á meðan meðal
norska kúabúið er með 24,2 kýr.
11,7 milljarðar lítra
Árið 2013 var einkar gott fram-
leiðslu ár á Norðurlöndunum og
nam heildarinnvigtun mjólkurinnar
11,735 milljörðum lítra og þarf að
fara allt aftur til ársins 2000 til þess að
finna álíka mjólkurframleiðslu. Alls
jókst framleiðslan um 102 milljónir
lítra miðað við árið 2012 sem eru
vissulega góð tíðindi og segir sitt um
þann kraft sem búgreinin býr yfir á
sama tíma að kúabúunum og kúnum
fækkaði.
Sé horft til framleiðslu
einstakra landa þá trónir danska
mjólkurframleiðslan á toppnum að
vanda en þar voru vigtaðir inn 5,026
milljarðar lítra í fyrsta skipti í sögunni
og jókst framleiðslan þar í landi um 97
milljónir lítra frá fyrra ári. Danmörk
er eina landið á Norðurlöndunum
þar sem framleiðslan hefur aukist
ár frá ári síðasta áratug. Næstmesta
framleiðsluaukningin kom fram í
Finnlandi, en þar jókst innvigtun
um 14 milljónir lítra og endaði
hún í 2,202 milljörðum. Í Noregi
varð 7 milljón lítra samdráttur í
framleiðslunni en heildarinnvigtunin
nam 1,780 milljörðum lítra. Í Svíþjóð
stóð framleiðslan í stað á milli ára og
endaði í 2,860 milljörðum lítra, en
hér á landi var örlítill samdráttur og
endaði innvigtunin í 123 milljónum
lítra.
Meðalbúið jók framleiðsluna
um 5,5%
Sé horft til innvigtunar mjólkur og
fjölda kúabúa hvers lands kemur
fram gríðarlegur munur á framleiðslu
búanna á milli Norðurlandanna.
Meðalbúið á Norðurlöndum lagði inn
í afurðastöð á síðasta ári 422 þúsund
lítra, sem er 5,5% meira en árið
2012. Það eru þó einungis bændur í
tveimur löndum sem eru fyrir ofan
meðaltalið, þ.e. í Danmörku með
1,365 milljónir lítra og í Svíþjóð með
702 þúsund lítra. Finnskir bændur
eru þriðju í röðinni með 264 þúsund
lítra, þá kúabændur hér á landi með
194 þúsund lítra og skammt undan
eru norskir kúabændur með 188
þúsund lítra.
Meðalkýrin skilar 8.114 lítrum
í afurðastöð
Þegar meðalafurðir kúa eru metnar
er ýmist litið til skýrsluhaldsafurða
eða meðalafurða sem lagðar
eru í afurðastöð. Þarna munar
verulega miklu enda má vænta
þess að þau kúabú sem ekki eru
með í skýrsluhaldi hafi lægri
meðalafurðir auk þess sem reiknaðar
meðalafurðir kúa miðað við innlagða
mjólk verða alltaf töluvert lægri
en skýrsluhaldsafurðir vegna
heimanota mjólkur og mögulega
rangra afurðamælinga svo dæmi sé
tekið. Miðað við innlagðar afurðir
þá jukust meðalafurðir norrænna
kúa um 169 lítra á síðasta ári og
skilaði meðalkýrin 8.114 lítrum í
afurðastöð. Afurðamestu kýrnar
standa í sænskum fjósum, þar sem
9.621 lítrar skila sér að jafnaði eftir
kúna inn í afurðastöð en kýrnar
hér á landi mjólka allra norrænna
kúa minnst og skila sér ekki nema
5.289 lítrar í afurðastöð eftir kúna.
Næstminnstar afurðir eru meðal
norskra kúa en þær skila þó 47%
meira í afurðastöð en hinar íslensku
frænkur þeirra, alls 7.759 lítrum.
Mestar skýrsluhaldsafurðir í
Danmörku
Þegar skoðaðar eru meðalafurðir
kúa í skýrsluhaldi landanna fimm
kemur í ljós að meðalafurðirnar hér
á landi, 5.555 kg af orkuleiðréttri
mjólk, eru áberandi lægstar. Bilið í
næstafurðaminnstu kýrnar, í Noregi,
eru 2.113 kíló. Afurðamestu kýrnar
voru hins vegar í Danmörku en
meðalnyt þeirra (orkuleiðrétt) var
9.603 kg og vantar því 4.048 kg
upp á afurðirnar hér á landi til þess
að ná að jafna þær dönsku. Vegin
meðalnyt allra skýrslufærðra kúa
á Norðurlöndunum árið 2013 var
9.101kg af orkuleiðréttri mjólk, sem
er aukning um 72 kg frá árinu 2012.
Lægsta frumutalan enn í Noregi
Undanfarin 20 ár hefur frumutala
tankmeðaltals verið lægst í Noregi