Bændablaðið - 17.07.2014, Page 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
Fjórhjóladrifinn Mercedes‒Benz GLA Class:
Sportlegur, kraftmikill og lipur
Í undanförnum bílapistlum hef ég
verið að prófa ódýra og sparneytna
bíla til viðhalds og reksturs. Benz-
bílar hafa hingað til ekki verið
taldir fyrir hvern sem er en á
seinni árum hafa framleiðendur
Benz komið með bíla sem eru bæði
ódýrir og hagstæðir í rekstri. Benz-
bílar hafa ávallt verið taldir bílar
sem hafa mikla endingu og fremur
lága bilanatíðni. Á dögunum
prófaði ég Benz GLA Class 200,
sportlegan fjórhjóladrifin bíl sem
kostar ekki mikið.
Hættulega þægilegur
Ég hafði hugsað mér stuttan rúnt
austur fyrir fjall, en ég gat bara ekkert
að því gert að stutti rúnturinn endaði
á að vera á Flúðir og til baka af því
að það var svo skemmtilegt að keyra
bílinn.
Fljótlega skynjaði ég það að
maður varð að keyra GLA Class
í langkeyrslu með hraðastillinn
á (cruise control), án þess er
ökuskírteinið í hættu á góðum
vegi þar sem maður finnur lítið
fyrir hraðanum á þessum bíl (stóð
sjálfan mig nokkrum sinnum að
því að vera komin vel hægra megin
við hundrað haldandi mig vera á
löglegum hraða). Hins vegar er
fjöðrunin svo góð að eftir því sem
hraðinn eykst liggur bíllinn alltaf
betur og betur á veginum, hættulegt
gagnvart ökuskírteininu.
Margar útfærslur á vélum
í GLA Class
Bíllinn sem ég prófaði var með
smæstu vélinni (GLA 200, 136 hp.),
en val er um margar stærðir véla
með hestöfl frá 136 hestöflum upp
í 360 hestöfl. Fyrir mína parta var
þessi vélarstærð nægileg fyrir mig,
en ef maður er oft með aftanívagn
og fullhlaðin bíl mundi ég velja
GLA 220 sem er með 170 hestafla
vél. Hins vegar sá ég að samkvæmt
aksturstölvunni var ég að eyða 5,4
lítrum á hundraðið í langkeyrslu og
um 7,5 í innanbæjarakstri sem er
töluvert minna en ég hafði haldið
að svona þungur bíll ætti að eyða
á mínu aksturslagi.
Mjög vel hljóðeinangraður
gagnvart utanaðkomandi hljóðum
Eins og alla aðra bíla prófaði
ég bílinn á möl og kom það mér á
óvart hversu lítill hávaði af mölinni
sem kom undir bílinn heyrðist inn
í bílinn. Einnig í eitt skipti var ég
staddur á rauðu ljósi og við hliðina
á mér var Porsche sem gaf vel í
til að sýna mér kraftinn, en halda
hefði mátt að sá bíll hefði verið
rafmagnsbíll því að ekkert heyrðist
í honum fyrr en ég skrúfaði niður
rúðuna.
Varðandi malarvegaaksturinn
fannst mér fjöðrunin taka vel þessar
dæmigerðu pollaholur og veggrip
almennt mjög gott.
Verð og búnaður kemur á óvart
Eftir að hafa keyrt Benz GLA Class
rúma tvöhundruð kílómetra verð ég
að taka undir orð vinar míns sem
sagði:
„Eftir að þú hefur keyrt Benz er
allt annað eftirlíkingar.“
Ég get ekki neitað því að
þessi prufuakstur var einhver
sá þægilegasti sem ég hef tekið,
þvílíkur unaður að keyra þennan
bíl.
Þrátt fyrir að bíllinn hafi
verið góður fannst mér hann
ekki óaðfinnanlegur því að ég
hefði viljað sitja hærra í bílnum,
hliðarspeglarnir mættu vera stærri
og farangursrýmið mætti vera það
stórt að koma mætti fyrir tveim
golfsettum, en ekki bara smæstu
golfsettum. Einnig hefði ég viljað
hafa varadekk í stað loftdælunnar
og viðgerðarvökvans.
Verð er frá 6.750.000
Svo margar útfærslur á Benz GLA
er hægt að fá að ekki er pláss
fyrir að fara yfir það hér lið fyrir
lið (mismunandi vélar, innrétting,
öryggisbúnaður og fl. s.s. aukahluti),
en þess í stað vil ég benda á
sölumenn Öskju eða vefsíðuna hjá
Benz-umboðinu sem er Askja á
slóðinni www.askja.is.
Mercedes‒Benz GLA er rennilegur og sportlegur. Myndir / HLJ
Lengd: 4.417 mm
Hæð: 1.494 mm
Breidd með speglum: 2.022 mm
Þyngd, léttasta útgáfan: frá 1.395 kg
Verð frá 6.750.000 til rúmlega11.000.000 kr.
HELSTU MÁL:
Hátt undir bílinn og ekkert stendur
niður fyrir plötuna.
Rauði þríhyrningurinn merkir að ég
er of nálægt næsta bíl fyrir framan.
Farangursrýmið er aðeins of mjótt fyrir annað en lítil golfsett, 10 cm breikkun
Í mikilli sól dökknar glerið á hliðar-
speglunum, en þeir mættu vera
stærri.
Hefði heldur viljað varadekk í stað
pumpu og leðjuvökva.
Óveður
Nýtt prjónablað
frá Ístex komið út!
Meira en 40 nýjar uppskriftir
Sjá sölustaði á istex.is