Bændablaðið - 17.07.2014, Page 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Núverandi ábúendur á
Gunnarsstöðum eru síðan 2009
Axel Jóhannesson og Valgerður
Friðriksdóttir ásamt börnum
og síðan 2013 Júlíus Þröstur
Sigurbjartsson og Sigríður
Jóhannesdóttir ásamt börnum.
Núverandi fyrirkomulag á
búrekstrinum er síðan 1. janúar
2013. Er þetta fimmti ættliðurinn
sem býr á jörðinni en það var árið
1888 sem forfeður ábúenda hófu
búskap á Gunnarsstöðum.
Býli: Gunnarsstaðir.
Staðsett í sveit: Í botni Þistilfjarðar
í Svalbarðshreppi.
Ábúendur: Á Gunnarsstöðum
er rekið fjölskyldubú. Jóhannes
Sigfússon og Fjóla Runólfsdóttir
búa á jörðinni en hafa dregið sig
út úr búskapnum síðustu ár. Við
búrekstrinum hafa tekið tvær
fjölskyldur, börn Jóhannesar Axel
og Sigríður ásamt fjölskyldum
sínum.
Fjölskyldustærð (og gæludýr):
Axel Jóhannesson og Valgerður
Friðriksdóttir ásamt þremur börnum,
Friðrik Ágúst 16 ára, Ómari Val 11
ára og Ragnari Geir 3 ára. Einnig á
Axel tvær dætur fyrir, Andreu Birtu
og Berghildi Ýr, en þær eru búsettar
í Reykjavík.
Júlíus Sigurbjartsson og Sigríður
Jóhannesdóttir ásamt 3 börnum,
Berghildi Ösp 10 ára, Ásgerði Ólöfu
7 ára og Dagbjörtu Laufeyju 2 ára.
Stærð jarðar: Ræktað land er
rúmlega 120 ha. Heildar stærð
jarðarinnar um 2.400 ha.
Gerð bús: Sauðfjárbú.
Fjöldi búfjár og tegundir: Um
1200 fjár, 14 hross, tveir hundar,
einn köttur, endur og hænur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Það er gengið til verka hver svo sem
þau eru en það fer eftir árstíma. Á
bænum eru tvenn fjárhús og skipta
Axel og Júlíus með sér gegningum
í þeim. Inni á milli koma svo
tarnir eftir árstímum. Sigríður og
Valgerður vinna utan bús.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin?
Skemmtilegustu búverkin eru
sauðburðarstörf á góðu vori,
heyskapur í góðri tíð, göngur í góðra
vina hópi. Leiðinlegustu verkin er
þegar illa gengur t.d. vegna bilana
og tíðarfars.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir fimm ár?
Með svipuðu sniði og í dag.
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda? Félagsmálin
skipta miklu máli fyrir bændur
og það þarf að sinna þeim vel.
Félagskerfi bænda er flókið og þyrfti
að einfalda það til muna.
Hvernig mun íslenskum
landbúnaði vegna í framtíðinni?
Við teljum að íslenskur landbúnaður
muni blómstra í framtíðinni. Í
honum felast ótal tækifæri, það
er bara spurning um að nýta þau
vel. Fyrir íslenskan landbúnað er
mikilvægt að tryggja nýliðun til að
tryggja framtíð hans.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Stefna á smáa en dýra markaði,
markaði sem íslenskur landbúnaður
ræður við.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, egg, smjör, skyr og ostar.
Hver er vinsælasti maturinn
á heimilinu? Lambakjöt og
heimareykt hangikjöt.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Smalamennskur
síðastliðið haust voru nokkuð
eftirminnilegar. Fyrstu göngur
voru farnar í góðu veðri, einmuna
hitagöngur en þær seinni voru
snjósleðagöngur.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Kjúklingaborgarar með tómatyndi og hakkbollur
Kjúklingaborgarar með
„tómatyndi“ (e. relish) eru flottir á
grillið eða á grilli pönnu. Þegar fólk
fer að nota tómatyndi á hamborgara
er erfitt að snúa aftur í vegabúllu-
majóneshamborgarasósuna.Og
ef fólk notar gróft brauð ætti
samviskan ekki að skemma fyrir
þessum bragðgóða borgara.
Í þennan rétt er hægt fara 4 stk.
úrbeinuð kjúklingalæri, gott að slá
létt með buffhamri og fylla með osti,
það er bæði hægt að nota skinnið eða
sleppa því ef fólk vill hollari rétt.
Tómatyndi
Hráefni:
2 saxaðir plómutómatar
1 stk. saxaður rauðlaukur
½ búnt söxuð steinselja
1 jalapeno-pipar, fræhreinsaður og
saxaður
1 matskeið gott edik
½ tsk. kóríanderfræ mulin
½ tsk. sinnepsfræ
¼ tsk. salt
ferskur pipar úr kvörn
Aðferð
Hrærið saman í skál, tómat, lauk,
steinselju, jalapenopipar ,ediki,
kóríander og sinnepsfræjum, salt
og pipar.
Grillið hamborgara á olíubornu
grilli á miðlungsháum hita; Lokið
grillinu og eldið þangað til ekki
er lengur bleikur safi inni kjötinu
og hitamælir sýnir 85 °C, um 15
mínútur.
Raðið auka meðlæti að eigin
vali, til dæmis salat, paprikur og
ögn af sýrðum rjóma.
Tilvalið að hugsa um heilsuna
og sleppa frönsku kartöflunum
og skera kaldar bökunarkartöflur
í svipaðar stærðir og frönsku
kartöflurnar og krydda með
ólífuolíu og límónusafa, og
framreiða með lárperu og
kóríander til að fá sumarbragð
og ferskleika.
Hakkbollur úr alifuglakjöti
Hráefni:
450g alifuglahakk (hægt að taka
kjúklinga kjöt í matvinnsluvél)
2 stk. skalottlaukar
1 egg
½ dl heilhveitibrauð raspur
Extra virgin ólífuolía
Ögn af hakkaðri myntu
¼ tsk. salt
Ferskmalaður pipar
Aðferð
Blandið saman egg, brauð
rasp, myntu, salt og pipar. Bætið
í kjúkling og blandið vel. Með
blautum höndum skiptið hrærunni
í fjórðunga og búið til 4 bollur.
Pressið niður í kringlótt form eða
bolla og gott er að hafa plastfilmu
eða poka yfir. Hver bolla á að vera
um 1 cm þykkt. Setjið í kæli í allt
að 4 klst. eða vefjið í plastfilmu
og frystið í loftþéttum umbúðum
í allt að 2 vikur.
MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Gunnarsstaðir