Bændablaðið - 17.07.2014, Side 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 17. júlí 2014
Þó að sumarið hafi verið hlýtt á köflum
þá styttist í haustið og gott að hafa
hlýjan mjúkan galla þegar börnin sofa
úti eins og allflest börn gera á Íslandi.
Stærð: 3-6, 9-12 mánaða
Efni: Merino ull frá Kartopu nr k838, 100
g x 3 dokkur. Alpaca frá Garn.is blátt til að
hekla með í kring.Merino ullin er til í hvítu,
beige, rauðu, svörtu, eplagrænu, bleiku og
dökkfjólubláu. Sjá www.garn.is
Fæst í Bjarkarhóli, Nýbýlavegi 32 í Kópavogi
og í vefversluninni.
Prjónar: Nr 5 sokkaprjónar og hringprjónar
60 cm.
Prjónfesta: 18 L og 23 umferðir gera 10x10x
cm.
Tölur: No 4985052 frá Bjarkarhóli.
Aðferð: Prjónað neðan frá og upp.
Skálmarnar prjónaðar þannig að fyrstu 4 cm
eru prjónaðir perluprjón (1sl, 1 br í næstu
umferð er prjónuð sl yfir brugðna og brugðin
yfir slétta) í hring á sokkaprjóna nr 5.
Bolur er prjónaður fram og til baka sléttprjón
nema 6 l í byrjun og enda hvers prjóns
er prjónaðar með perluprjóni. Gerð eru
hnappagöt annaðhvort á vinstri eða hægri
lista eftir því sem við á með jöfnu millibili.
Vinstri skálm. Prjónuð á sokkaprjóna nr 5.
Fitjið upp 36-40 l og skiptið á 4 prjóna. Prjónið
nú perluprjón í hring 4-5 cm.
Að því loknu er prjónað slétt í hring en í fyrstu
umferðinni eru sett merki í byrjun umferðar
innanfótar.
Þegar skálmin mælist 10-12 cm er aukið út sitt
hvoru megin við merkið og það endurtekið 2-3
hvern cm alls 4-6 sinnum, samtals eiga þá að
vera 44-52 l á prjónunum.
Þegar skálmin mælist 26-30 cm eru felldar af 3
l vinstra megin við merkið (aftan á skálminni),
þá eiga að vera 41-49 l á prjónunum.
Geyma skálmina og prjóna hægri skálmina
eins nema fella af 3 l í lokin hægra megin við
merkið þ.e. aftan á þeirri skálm.
Bolur:
Fitja upp 4 l sem er miðjan á bolnum að
framan á hringprjón nr 5, prjónið hægri fótinn
slétt upp á hringprjóninn, prjónið síðan vinstri
fótinn inn á og að lokum eru fitjaðar upp 4 l
sem er listinn hinum megin á flíkinni. Þessi
listi er síðan prjónaður í perluprjóni 6 l alla
leið upp og muna að setja 5-6 hnappagöt
með jöfnu millibili alla leið upp þeim megin
sem við á.
Nú eiga að vera alls 90-106 l á hringprjóninum.
Prjónið nú slétt prjón fram og til baka með 6 l
perluprjón í byrjun og enda hverrar umferðar
fyrir lista.
Fyrsta hnappagatið kemur eftir 5 umferðir og
síðan í 14 hverri umferð.
Hnappagat: Prjónið 3 l frá kanti slá uppá
taka 2 saman.
Þegar bolurinn mælist 51-64 cm eru
framstykkin sett á hjálparprjóna og bakstykkið
prjónað sér.
Setjið merki eftir framstykki, 21-26 sl l frá lista,
42-54 l bak og 21-26 sl l að lista.
Bakstykki:
Bakstykkið er nú 42-54 l. Fitjið laust upp í enda
umferðar báðum megin 5 l, 2-3 sinnum og
15-21 l einu sinni þá eiga að vera
92-126 l á prjóninum eftir síðustu uppfitjun
báðum megin. Prjónað fram og til baka
sléttprjón en munið að prjóna alltaf ystu 5
l báðum megin perluprjón, það er fremst á
hvorri ermi.
Þegar allur bolurinn frá byrjun skálmar mælist
58- 77 cm eru felldar af miðjulykkjurnar fyrir
hálsinn 8-12 l og hvor öxl prjónuð fyrir sig.
Fellt af aftur 1-2 l fyrir hálsinn.
Næsta umferð er prjónuð brugðin þannig
að það myndast garðaprjónsrönd. Annars
prjónað áfram sléttprjón.
Þ e g a r
flíkin mælist 60-79 cm frá
skálm eru lykkjurnar settar á hjálparprjón
og geymdar. Prjónið hina öxlina eins.
Vinstra framstykki:
Framstykkið sem er núna 21-26 l er prjónað
slétt fram og til baka.
Fitjið upp í enda umferðar eins og á
bakstykkinu nema bara öðrum megin þar
sem listinn er ekki og þá eiga að vera á
prjóninum 46-62 l munið að prjóna listann
áfram upp með perluprjóni og ekki gleyma
hnappagötunum þeim megin sem þau eru.
Þegar flíkin mælist 56-75 cm frá skálm er fellt
af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar
hálsmegin, 6 l einusinni og 1 l 2-3 sinnum.
Næsta umferð er svo prjónuð brugðin þannig
að það myndast garðaprjónsrönd eins og á
bakstykkinu. Þegar flíkin mælist 60-79 cm frá
skálm eða er jafn löng og bakstykkið. Geymið
nú lykkjurnar á hjálparprjóni.
Prjónið hægra framstykki eins nema speglað.
Samsetning:
Lykkja fallega saman fram og bakstykki á
öxlunum gott er að hekla þau saman með þvi
að draga eina lykkju af bakstykki gegnum eina
lykkju af framstykki sitt á hvað og draga síðan
endann gegnum síðustu lykkjuna og ganga vel
frá honum.Ganga frá öllum endum.Sauma
saman undir ermum, leggið listana að framan
saman þannig að hnappagötin verði ofaná og
saumið fast neðst ásamt því að sauma opið á
milli skálmanna. Betra samt að sauma listana
eftir að búið er að hekla meðfram þeim.
Saumið tölurnar í á móti hnappagötunum.
Kragi:
Takið upp 36-40 lykkjur kringum hálsmálið
en sleppið listanum.
Prjónið perluprjón fram og til baka.
Setjið merki við axlarsaumana báðum megin
og aukið út sitthvoru megið við merkið í 4
hverri umferð þar til kraginn mælist 5-7 cm
Fellið laust af.
Nú er heklað með bláu eða þeim lit sem þið
veljið fastahekl meðfram kraganum og báðum
listunum. Gætið þess að réttan á fastaheklinu
snúi eins á kraga og lista.
Inga Þyri Kjartansdóttir.
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Hlýr og mjúkur galli í vagninn
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-
þrautirnar er að setja réttar
tölur frá 1-9 í eyðurn ar.
Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og
lóð rétt og heldur ekki innan
hvers reits sem afmarkaður
er af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar,
sú sem er lengst til vinstri er
léttust og sú til hægri þyngst
en sú í miðjunni þar á milli.
Létt ÞungMiðlungs
5 3 7
9 1 2
3 8 9 6
7 8 6 1 2
2 7
2 5
1
5 8
4 6 7 8
8 7 4 9
9
6 3 4
2 4 9 1
1 5 8 7
2 9
3 6 4
5 1 2
9 4 7
1 8 4
2 7
9 6 8
7 3
5 4 1
5 1
6 1 3
8 2 4
Reyndi að rækta risaeðlur
Matti er 11 ára naut sem býr í
Vesturbæ Reykjavíkur. Hann
gerði heiðarlega tilraun til að
rækta risaeðlur fyrir nokkrum
árum en eitthvað gekk það
brösulega. Hann æfir taekwondo,
ætlar að verða bóndi og það fyrsta
sem hann man eftir er að hafa séð
„karl í kjól“.
Nafn: Matthías Kristinsson Schram.
Aldur: 11 ára.
Stjörnumerki: Naut.
Búseta: Vesturbær Reykjavíkur.
Skóli: Vesturbæjarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast
í skólanum? Mér finnst
skemmtilegast í sérgreinum, t.d.
myndlist, smíðum og heimilisfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Pandabirnir (og kötturinn minn hann
Rebbi og hundurinn Rökkvi).
Uppáhaldsmatur: Kjötsúpa.
Uppáhaldshljómsveit: Bítlarnir.
Uppáhaldskvikmynd: Skyfall.
Fyrsta minningin þín? Þegar ég
sá sekkjapípuleikara í Skotapilsi í
Edinborg. Ég skellti upp úr, benti
og kallaði: „Karl í kjól.“
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi Taekwondo og
er með appelsínugula beltið.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Bóndi.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Þegar ég ætlaði að rækta
risaeðlur en þær reyndust vera hæna,
hani og gæs.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Að taka til í herberginu
mínu.
Gerðir þú eitthvað sérstakt
í sumar? Ég fór á Esjuna, í
sumarbústað í Brekkuskógi og á
tökustað kvikmyndar á Þingvöllum.
PRJÓNAHORNIÐ garn@garn.is