Bændablaðið - 23.10.2014, Qupperneq 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. október 2014
Fréttir
Stærstu 150 kúabú landsins
eiga 70% af þeirri framleiðslu-
aukningu sem orðið hefur í
mjólkurframleiðslunni síðustu 8
mánuði.
Innvigtun mjólkur á ársgrundvelli
er komin yfir 130 milljónir lítra sem
er 6,6% aukning á milli ára. Enn
er mikil aukning í fitusölu og ljóst
er að kúabændur þurfa að auka
framleiðsluna umtalsvert til þess að
svara kalli markaðarins í framtíðinni
miðað við söluspár.
Framleiðslan eykst hjá stórum
búum
Það sem af er þessu ári hefur aukning
í mjólkurframleiðslu verið mest á
þeim búum sem framleiddu mest
árið 2013. Á 50 stærstu búunum var
meðalframleiðslan ríflega 271 þúsund
lítra en fyrstu átta mánuði þessa árs
rúmlega 309 þúsund lítrar.
Framleiðsla búa sem skiluðu undir
50 þúsund lítrum árið 2013 dróst aftur
á móti saman um 4% fyrstu fimm
mánuði þessa árs og framleiðsla búa
sem skiluðu undir 24 þúsund lítrum
2013 hefur dregist saman um 14%
það sem af er þessu ári.
Árið 1990 voru 17 mjólkur vinnslur
í landinu en nú eru þær 5. Verðþróun
á mjólkurvörum hefði verið töluvert
undir hækkunum vísitölu neysluverðs
síðustu ár.
Minni búum fækkar
150 stærstu kúabú landsins eiga 70%
mjólkurkvótans í landinu og hefur
hann verið að færast á færri hendur
undanfarin ár.
Þróunin hér á landi er því svipuð
hér og í löndunum í kringum okkur
þar sem minni kúabúum hefur
fækkað og stærri bú verið að stækka
vegna hagræðingar í rekstri.
/VH
Minni kúabúum á Íslandi fer fækkandi:
Stærstu kúabúin auka
framleiðsluna mest
Undanfarin ár hafa kúabændur
á Bretlandseyjum sýnt
aukinn áhuga á að reisa stór
verksmiðjubú í stað þess að
rekin séu mörg lítil mjókurbú.
Ástæða þess er krafan um lægra
verð frá smásölufyrirtækjum og
neytendum. Bændurnir segja ekki
lengur borga sig að reka bú undir
ákveðinni stærð.
Árið 2009 sóttu kúabóndi
og ostaframleiðandi í Devon
sameiginlega um leyfi til að byggja
skýli sem átti að spanna níu hektara
og rúma 8.100 kýr sem áttu að gefa
250.000 lítra nyt á dag. Framkvæmdin
var harðlega gagnrýnd af almenningi,
samtökum dýraverndarsinna,
umhverfisverndarsinnum, samtökum
áhugamanna um verndun jarðvegs
og grunnvatns auk þess sem ríflega
170 þingmenn á breska þinginu
skrifuðu undir mótmælaskjal til að
stöðva framkvæmdina. Leikarar, fólk
í tónlistarheiminum og einstaklingar
frægir af endemum lögðu baráttunni
einnig lið í þeim tilgangi að stöðva
byggingu skýlisins. Slagorðið var:
Ekki út á kornflexið mitt. Hálfu ári
seinna var umsóknin dregin til baka.
Vendipunktur
Þrátt fyrir að umsóknin hafi verið
dregin til baka vakti hún forvitni
og breskir kúabændur fóru í
auknum mæli að að horfa vestur
um haf og leita fyrirmynda hjá
verksmiðjukúabúum í miðríkjum
Bandaríkjanna. Á þeim tíma
voru 32.000 mjólkurkýr á stærsta
verksmiðjubúinu í Bandaríkjunum.
Í stærstu hjörð mjólkurkúa í
Frakklandi á sama tíma töldust 350
dýr og umhverfisverndarsamtök þar í
landi voru að berjast gegn leyfi fyrir
skýli fyrir 1.750 mjólkurkýr.
Á árununum 2001 til 2010
fækkaði kúm sem gengu í haga
í Danmörku úr því að vera 85%
allra mjólkurkúa í landinu niður í
35%. Eldi kúa í skýlum var bannað
í Svíþjóð á þessum tíma og vegna
bannsins töldu sænskir bændur sig
ekki geta boðið mjólk á jafn lágu
verði og danskir.
Umsóknin endurnýjuð
Seinni hluta árs 2010 var umsóknin
fyrir skýlið í Devon endurnýjuð
en nú fyrir 3.700 mjólkurkýr.
Mótmælaaldan reis að nýju og þremur
mánuðum seinna var hún dregin aftur
til baka. Umsækjendurnir játuðu sig
sigraða, ekki vegna mótmælanna
heldur á þeim forsendum að allt
benti til að skýli fyrir svo marga gripi
myndi óhjákvæmilega valda mengun
í grunnvatni.
Í yfirlýsingu frá aðstandendum
umsóknarinnar sagði að breskir
kúabændur og almenningur yrðu að
gera sér grein fyrir því að ekki væri
lengur fjárhagslega hagkvæmt að
reka lítil kúabú, þar sem kýr ráfuðu
um haga, fyrir það verð sem fengist
fyrir mjólkina.
Á Bretlandseyjum finnast í
dag að minnsta kosti tíu stór skýli
fyrir mjólkurkýr með hátt í þúsund
gripum.
Mjólkurbúum fækkað gríðarlega
Frá árinu 1995 til 2013 hefur
mjólkurbúum í Bretlandi fækkað
úr 35.000 í rúm 13.000 og þeim
fer enn fækkandi. Helsta ástæða
fækkunarinnar er að framleiðslan
svarar ekki lengur kostnaði og í
mörgum tilfellum eru bændur farnir
að borga með mjólkinni.
Fjögur mjólkursamlög á
Bretlandseyjum, Arla, Müller
Wiseman, First Milk og Dairy Crest,
höndla með stóran hluta mjólkur
þar í landi og hafa þau öll, auk
stórmarkaða og neytenda, gert kröfu
um að bændur lækki mjólkurverð
undanfarin ár.
Til að mæta þessum kröfum hafa
bændur því haft úr tvennu að velja.
Annars vegar stækka búin og auka
hagræðingu eða hætta búskap.
50% hærri nyt
Markmið kúabúa er að framleiða
mjólk og samkvæmt rökunum um
að það svari ekki kostnaði að reka
lítil bú er hugmyndin um stærri bú
þar sem fóðrið er borið í kýrnar í
stað þess að þær sæki það út í haga
fýsileg.
Til þess að kúm líði vel og gefi
góða nyt þurfa þær gott fóður, hvíld
og samneyti við aðrar kýr og allt
þetta fá þær í skýlunum og því um
rökrétta ræktunaraðferð að ræða
að sögn þeirra sem vilja ala kýrnar
í skýlum. Auk þess sýnir reynslan
að kýr sem ræktaðar eru í skýlum
og mjólkaðar þrisvar á dag gefi að
minnsta kosti 50% meiri nyt en kýr
sem ganga í haga og eru mjólkaðar
tvisvar á dag.
Almenningur vill kýr í haga
Á Bretlandseyjum eru um 1,8
milljónir mjólkurkúa og meðalstærð
kúahjarða er 125 kýr, innan við 10%
hjarða telja meira en 500 gripi, og
stórum hluta þeirra er sleppt á beit
á vorin og teknar í hús yfir veturinn.
Talsmenn verksmiðjubúa á
Bretlandseyjum segja að víða um
heim sé talið sjálfsagt að ala kýr í
skýlum en svo sé ekki þar í landi.
Hugmyndin um kýr á beit í haga er
almenningi þóknanleg og þannig vill
fólk hafa það og þannig fer ræktunin
fram að stærstum hluta í dag. /VH
Krafa almennings og smásala um ódýrari mjólk krefst aukinnar hagkvæmni í rekstri mjólkurbúa sem leiðir til stækkunar eininga:
Kúabændur á Bretlandseyjum hallast
í auknum mæli að verksmiðjubúskap
Stærsta kúabú landsins verður með 230 kýr:
Áformað að stækka mjólkur-
búið í Flatey um helming
Selbakki, dótturfyrirtæki
útgerðarfyrirtækisins Skinney-
Þinganes, stefnir að því að stækka
mjólkurbú sitt að Flatey á Mýrum
um helming og yrði búið stærsta
kúabú landsins með um 230
mjólkurkýr.
Gunnar Ásgeirsson, stjórnar-
formaður Skinney-Þinganess,
segir að í dag séu á milli 100 og
115 mjólkurkýr á búinu en það sé í
skoðun að stækka búið um helming.
„Á búinu eru tveir mjaltaróbótar
og hugmyndin er að þeir verði
fjórir og kýrnar milli 200 og 230.
Uppbygging af þessu tagi tekur tíma
þar sem það er ekki nóg að byggja
fjósið því það verður að byggja
stofninn upp líka en við stefnum að
því að vera búnir að því á næsta eða
þarnæsta ári.“
Í dag er Selbakki með
greiðslumark fyrir 700 þúsund lítra
og er gert ráð fyrir að það tvöfaldist
þegar stækkuninni er lokið. Gunnar
segir að mjólkinni sé ekið á
Egilsstaði og hún unnin þar og að
svo verði áfram.
Samkvæmt því sem fram kemur
í fundargerð bæjarráðs Hafnar
27. maí síðastliðinn er tekið vel í
hugmyndina um stækkun búsins
og felur bæjarráð byggingafulltrúa
að gefa út viðeigandi leyfi til
stækkunar mjólkurbúsins. Útgáfa
byggingarleyfis verður gefið út þegar
öll gögn varðandi stækkunina liggja
fyrir. /VH