Bændablaðið - 23.10.2014, Síða 10

Bændablaðið - 23.10.2014, Síða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. október 2014 Fréttir Stærstu 150 kúabú landsins eiga 70% af þeirri framleiðslu- aukningu sem orðið hefur í mjólkurframleiðslunni síðustu 8 mánuði. Innvigtun mjólkur á ársgrundvelli er komin yfir 130 milljónir lítra sem er 6,6% aukning á milli ára. Enn er mikil aukning í fitusölu og ljóst er að kúabændur þurfa að auka framleiðsluna umtalsvert til þess að svara kalli markaðarins í framtíðinni miðað við söluspár. Framleiðslan eykst hjá stórum búum Það sem af er þessu ári hefur aukning í mjólkurframleiðslu verið mest á þeim búum sem framleiddu mest árið 2013. Á 50 stærstu búunum var meðalframleiðslan ríflega 271 þúsund lítra en fyrstu átta mánuði þessa árs rúmlega 309 þúsund lítrar. Framleiðsla búa sem skiluðu undir 50 þúsund lítrum árið 2013 dróst aftur á móti saman um 4% fyrstu fimm mánuði þessa árs og framleiðsla búa sem skiluðu undir 24 þúsund lítrum 2013 hefur dregist saman um 14% það sem af er þessu ári. Árið 1990 voru 17 mjólkur vinnslur í landinu en nú eru þær 5. Verðþróun á mjólkurvörum hefði verið töluvert undir hækkunum vísitölu neysluverðs síðustu ár. Minni búum fækkar 150 stærstu kúabú landsins eiga 70% mjólkurkvótans í landinu og hefur hann verið að færast á færri hendur undanfarin ár. Þróunin hér á landi er því svipuð hér og í löndunum í kringum okkur þar sem minni kúabúum hefur fækkað og stærri bú verið að stækka vegna hagræðingar í rekstri. /VH Minni kúabúum á Íslandi fer fækkandi: Stærstu kúabúin auka framleiðsluna mest Undanfarin ár hafa kúabændur á Bretlandseyjum sýnt aukinn áhuga á að reisa stór verksmiðjubú í stað þess að rekin séu mörg lítil mjókurbú. Ástæða þess er krafan um lægra verð frá smásölufyrirtækjum og neytendum. Bændurnir segja ekki lengur borga sig að reka bú undir ákveðinni stærð. Árið 2009 sóttu kúabóndi og ostaframleiðandi í Devon sameiginlega um leyfi til að byggja skýli sem átti að spanna níu hektara og rúma 8.100 kýr sem áttu að gefa 250.000 lítra nyt á dag. Framkvæmdin var harðlega gagnrýnd af almenningi, samtökum dýraverndarsinna, umhverfisverndarsinnum, samtökum áhugamanna um verndun jarðvegs og grunnvatns auk þess sem ríflega 170 þingmenn á breska þinginu skrifuðu undir mótmælaskjal til að stöðva framkvæmdina. Leikarar, fólk í tónlistarheiminum og einstaklingar frægir af endemum lögðu baráttunni einnig lið í þeim tilgangi að stöðva byggingu skýlisins. Slagorðið var: Ekki út á kornflexið mitt. Hálfu ári seinna var umsóknin dregin til baka. Vendipunktur Þrátt fyrir að umsóknin hafi verið dregin til baka vakti hún forvitni og breskir kúabændur fóru í auknum mæli að að horfa vestur um haf og leita fyrirmynda hjá verksmiðjukúabúum í miðríkjum Bandaríkjanna. Á þeim tíma voru 32.000 mjólkurkýr á stærsta verksmiðjubúinu í Bandaríkjunum. Í stærstu hjörð mjólkurkúa í Frakklandi á sama tíma töldust 350 dýr og umhverfisverndarsamtök þar í landi voru að berjast gegn leyfi fyrir skýli fyrir 1.750 mjólkurkýr. Á árununum 2001 til 2010 fækkaði kúm sem gengu í haga í Danmörku úr því að vera 85% allra mjólkurkúa í landinu niður í 35%. Eldi kúa í skýlum var bannað í Svíþjóð á þessum tíma og vegna bannsins töldu sænskir bændur sig ekki geta boðið mjólk á jafn lágu verði og danskir. Umsóknin endurnýjuð Seinni hluta árs 2010 var umsóknin fyrir skýlið í Devon endurnýjuð en nú fyrir 3.700 mjólkurkýr. Mótmælaaldan reis að nýju og þremur mánuðum seinna var hún dregin aftur til baka. Umsækjendurnir játuðu sig sigraða, ekki vegna mótmælanna heldur á þeim forsendum að allt benti til að skýli fyrir svo marga gripi myndi óhjákvæmilega valda mengun í grunnvatni. Í yfirlýsingu frá aðstandendum umsóknarinnar sagði að breskir kúabændur og almenningur yrðu að gera sér grein fyrir því að ekki væri lengur fjárhagslega hagkvæmt að reka lítil kúabú, þar sem kýr ráfuðu um haga, fyrir það verð sem fengist fyrir mjólkina. Á Bretlandseyjum finnast í dag að minnsta kosti tíu stór skýli fyrir mjólkurkýr með hátt í þúsund gripum. Mjólkurbúum fækkað gríðarlega Frá árinu 1995 til 2013 hefur mjólkurbúum í Bretlandi fækkað úr 35.000 í rúm 13.000 og þeim fer enn fækkandi. Helsta ástæða fækkunarinnar er að framleiðslan svarar ekki lengur kostnaði og í mörgum tilfellum eru bændur farnir að borga með mjólkinni. Fjögur mjólkursamlög á Bretlandseyjum, Arla, Müller Wiseman, First Milk og Dairy Crest, höndla með stóran hluta mjólkur þar í landi og hafa þau öll, auk stórmarkaða og neytenda, gert kröfu um að bændur lækki mjólkurverð undanfarin ár. Til að mæta þessum kröfum hafa bændur því haft úr tvennu að velja. Annars vegar stækka búin og auka hagræðingu eða hætta búskap. 50% hærri nyt Markmið kúabúa er að framleiða mjólk og samkvæmt rökunum um að það svari ekki kostnaði að reka lítil bú er hugmyndin um stærri bú þar sem fóðrið er borið í kýrnar í stað þess að þær sæki það út í haga fýsileg. Til þess að kúm líði vel og gefi góða nyt þurfa þær gott fóður, hvíld og samneyti við aðrar kýr og allt þetta fá þær í skýlunum og því um rökrétta ræktunaraðferð að ræða að sögn þeirra sem vilja ala kýrnar í skýlum. Auk þess sýnir reynslan að kýr sem ræktaðar eru í skýlum og mjólkaðar þrisvar á dag gefi að minnsta kosti 50% meiri nyt en kýr sem ganga í haga og eru mjólkaðar tvisvar á dag. Almenningur vill kýr í haga Á Bretlandseyjum eru um 1,8 milljónir mjólkurkúa og meðalstærð kúahjarða er 125 kýr, innan við 10% hjarða telja meira en 500 gripi, og stórum hluta þeirra er sleppt á beit á vorin og teknar í hús yfir veturinn. Talsmenn verksmiðjubúa á Bretlandseyjum segja að víða um heim sé talið sjálfsagt að ala kýr í skýlum en svo sé ekki þar í landi. Hugmyndin um kýr á beit í haga er almenningi þóknanleg og þannig vill fólk hafa það og þannig fer ræktunin fram að stærstum hluta í dag. /VH Krafa almennings og smásala um ódýrari mjólk krefst aukinnar hagkvæmni í rekstri mjólkurbúa sem leiðir til stækkunar eininga: Kúabændur á Bretlandseyjum hallast í auknum mæli að verksmiðjubúskap Stærsta kúabú landsins verður með 230 kýr: Áformað að stækka mjólkur- búið í Flatey um helming Selbakki, dótturfyrirtæki útgerðarfyrirtækisins Skinney- Þinganes, stefnir að því að stækka mjólkurbú sitt að Flatey á Mýrum um helming og yrði búið stærsta kúabú landsins með um 230 mjólkurkýr. Gunnar Ásgeirsson, stjórnar- formaður Skinney-Þinganess, segir að í dag séu á milli 100 og 115 mjólkurkýr á búinu en það sé í skoðun að stækka búið um helming. „Á búinu eru tveir mjaltaróbótar og hugmyndin er að þeir verði fjórir og kýrnar milli 200 og 230. Uppbygging af þessu tagi tekur tíma þar sem það er ekki nóg að byggja fjósið því það verður að byggja stofninn upp líka en við stefnum að því að vera búnir að því á næsta eða þarnæsta ári.“ Í dag er Selbakki með greiðslumark fyrir 700 þúsund lítra og er gert ráð fyrir að það tvöfaldist þegar stækkuninni er lokið. Gunnar segir að mjólkinni sé ekið á Egilsstaði og hún unnin þar og að svo verði áfram. Samkvæmt því sem fram kemur í fundargerð bæjarráðs Hafnar 27. maí síðastliðinn er tekið vel í hugmyndina um stækkun búsins og felur bæjarráð byggingafulltrúa að gefa út viðeigandi leyfi til stækkunar mjólkurbúsins. Útgáfa byggingarleyfis verður gefið út þegar öll gögn varðandi stækkunina liggja fyrir. /VH

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.