Bændablaðið - 23.10.2014, Qupperneq 26

Bændablaðið - 23.10.2014, Qupperneq 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. október 2014 Á vegum Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) hafa verið tekin saman gögn sem sýna að þeirra dómi þann árangur sem náðst hefur með hagræðingu hjá mjólkuriðnaðinum. Þessi gögn voru m.a. kynnt á fundi með mjólkurframleiðendum á Suðurlandi nýverið og eru birt hér að hluta eins og þau hafa verið lögð fram af SAM. Tímabil hagræðingaaðgerða Hagræðingaaðgerðir í mjólk- ur iðnaði hófust með þjóðar- sáttarsamningunum 1991. Árangri af þeim aðgerðum var skilað beint til neytenda í formi verðstöðvunar mjólkurvara á heildsölustigi á tímabilinu 1991–1996, eða í 5–6 ár. Á þessu tímabili var sett hagræðingarkrafa á mjólkuriðnaðinn og bændur, sem í kjölfarið leiddi til mikilla skipulagsbreytinga í mjólkurvinnslu, svo og í fyrirkomulagi sölu og dreifingar mjólkurvara. Kostnaðarlækkun náðist fram með fækkun afurða- stöðva og sérhæfingu þeirra. Á árunum þar á eftir, frá 1997–2003, var árangur skipulags- breytinga að koma æ betur í ljós, auk þess sem frekari fækkun og sérhæfing afurðastöðva átti sér stað. Í framhaldinu sköpuðu þær aðgerðir meðal annarra forsendur til að skila enn frekari árangri til neytenda. Það var framkvæmt með verðstöðvun á heildsöluverði mjólkur og mjólkurvara næstu fimm árin, það er að segja frá 1. janúar 2003 til 31. desember 2007, með einni verðhækkun á tímabilinu upp á 2,3% í janúar 2006. Í samráði við fulltrúa launafólks í verðlagsnefnd búvöru var ákveðið sameiginlega að hækka ekki verð á heildsölustigi út á markaðinn á tímabilinu. Hér var um að ræða aðgerð sem átti að skila rekstrarávinningi af fækkun kúabúa og vinnslustöðva til bænda og neytenda. Réttaróvissu eytt Sá hængur var þó á að á árinu 2002–2003 ríkti réttaróvissa um það hvort afurðastöðvar í mjólkuriðnaði hefðu heimild til þess að ná niður kostnaði með því að starfa saman að söfnun mjólkur, vinnslu, sölu og dreifingu mjólkurafurða. Óvissan snerist um það hvort þeim væri heimilt að skipta með sér verkum með sérhæfingu og jafna út tekjum og gjöldum í sinni starfsemi sem óhjákvæmilega þyrfti að koma til ef kostnaðarlækkun ætti að nást með sérhæfingu og verkaskiptingu þeirra í milli. Til þess að bregðast við þessu og eyða réttaróvissu um heimild til þessa samstarfs setti Alþingi sérákvæði í búvörulög nr. 99/1993 á árinu 2004. Það ákvæði heimilaði samstarf, sérhæfingu og verkaskiptingu með tilheyrandi sparnaði og kostnaðarlækkunum í rekstri. Að þessum tíma liðnum, frá byrjun 2003 fram á þennan dag 2014, er ástæða til þess að velta fyrir sér hvort árangur af þessum aðgerðum hafi orðið eins og til var ætlast. Skipulagsbreytingar Til að meta þann árangur er nærtækast að skoða í fyrsta lagi skipulagsbreytingar í mjólkur- vinnslu, sölu og dreifingu mjólkur- vara, og hvernig þróunin hefur orðið gagnvart neytendum. Í mynd 1 má sjá fjölda vinnslu- og dreifingarstöðva á tímabilinu 1990–2014. Samkvæmt mynd 1 var mjólkur- vinnsla á 17 stöðum árið 1990, sala og afgreiðsla mjólkurvara á 18 og dreifing mjólkurvara á 18 stöðum vítt og breitt um landið. Árið 2003 hafði mjólkurvinnslustöðvum fækkað í 9, sala og afgreiðsla mjólkurvara var þá á 10 stöðum og dreifing mjólkurvara á 10. Árið 2014 er mjólkurvinnsla á 5 stöðum, sala- og afgreiðsla mjólkur á 2 og dreifing mjólkurvara á 5 stöðum. Hér hefur því orðið mikil fækkun starfsstöðva á báðum tímabilum sem hefur haldist í hendur við þriðjungs fækkun starfsfólks. Þessi hagræðing hefur á margan hátt reynst erfið og sársaukafull en hefur skilað miklum kostnaðarlækkunum. Neytendur og bændur hafa fengið ávinninginn Til þess að meta árangur fyrrnefndra aðgerða, á tímabilinu 2003–2014, er eðlilegt að skoða verðþróun mjólkurvara. Allar tölur hér um verð mjólkurvara eru á heildsölustigi og án virðisaukaskatts. Verðþróun heildsöluverðs mjólkurvara er hér auk þess borin saman við þróun vísitölu launa (LVT) og vísitölu neysluverðs (NVT) á tímabilinu 2003–2014. Samanburður við NVT á sér nærtæka skýringu, ekki einungis m.t.t. þróunar einingarverðs mjólkurvara miðað við annað verðlag, heldur einnig vegna áhrifa mjólkurvara á hækkun vísitölunnar sjálfrar. Litlar verðbreytingar mjólkurvara stuðla að lægri vísitölu en ella. Þannig hefur verðlag mjólkurvara bein áhrif á vísitölu neysluverðs og þar með á hag almennings í landinu í gegnum verðtryggingu lána og annarra fjárskuldbindinga. Verðþróun stærstu vöruflokka mjólkurvara til neytenda Í mynd 2 má sjá verðþróun helstu mjólkurvara sem verðlagðar eru af verðlagsnefnd búvöru. Í mynd 3 er tekin fyrir verðþróun nokkurra mjólkurvara sem ekki eru verðlagðar af verðlagsnefnd. Heildaráhrif hagræðingaaðgerða 2003–2014 sem skilað var til neytenda Til að meta þann árangur sem náðst hefur með hagræðingaaðgerðum sl. áratug, þarf að svara þeirri spurningu hvert heildsöluverð mjólkurvara hefði þurft að vera ef ekki hefði komið til breytinga í fjölda og skipulagi afurða- og dreifingarstöðva. Þær þjónusta almenning á öllum þéttbýlisstöðum landsins með þessar nauðsynjavörur. M.ö.o. þá þarf að meta árangur af þeirri leið sem valin var af stjórnvöldum á árunum 2003–2004, og staðfest var með breytingu búvörulaga á vormánuðum 2004. Án efa hefðu aðrar leiðir getað verið til staðar en þessi skipulagða leið, með öllum sínum réttindum og skyldum, var valin. Það er mat á árangri þeirrar ákvörðunar sem er hér til skoðunar. Hvort sem hagræðing í mjólkuriðnaði á tímabilinu er metin út frá tekjuforsendum heildsöluverðs eða greiningu á kostnaðarforsendum rekstrarliða á tímabilinu, kemur í ljós að vinnslu- og dreifingarkostnaður – þ.e. rekstrarkostnaður mjólkuriðnaðarins – hefði þurft að hækka um 90%– 93% á tímabilinu 2003–2014, til að standa undir kostnaðarhækkunum þeirra þátta sem rekstrarkostnaður afurðastöðva samanstendur af. Þetta hefði verið reyndin ef ekki hefði komið til skipulagsbreytinga í mjólkuriðnaðinum. Hafa ber í huga að erlend aðföng, svo sem olía, orka, umbúðir, vélar og annað sem er háð gengi, eru veigamest í rekstri afurðastöðva mjólkuriðnaðarins, og þeim kostnaðarþáttum er torvelt að stjórna. Að teknu tilliti til rekstrarþátta afurðastöðva á tímabilinu hafa um 2.000 millj. kr. á ársgrunni verið skilað til neytenda með hagræðingu í mjólkuriðnaði í gegnum heild- söluverð mjólkurvara. Til að setja það í samhengi samsvarar það 20 kr. pr. lítra af nýmjólk og um 200 kr. pr. kg af brauðosti. Heildaráhrif hagræðingaaðgerða 2003–2014 sem skilað var til bænda Á umræddu tímabili, 2003–2014, Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði: Árangri skilað til neytenda og bænda – Segja að heildarkostnaður við mjólkurframleiðslu hafi hækkað um 108% en lágmarksverð um 98,9% Heimild SAM. Unnið úr vísitölum Hagstofu Íslands og verðskrám verðlagsnefndar búvöru birtum í Lögbirtingablaðinu. 0% 50% 100% 150% 200% 250% 300% Lágmarksverð til bænda KOSTNAÐUR ALLS FASTUR KOSTNAÐUR ALLS 12. Laun 11. Vextir 10. Afskriftir FASTUR KOSTNAÐUR BREYTILEGUR KOSTNAÐUR ALLS 8. Ýmis gjöld 7. Viðhald 6. Þjónusta 5. Flutningur 4. Vélar 3. Rekstrarvörur 2. Áburður (1) 1. Kjarnfóður (1) BREYTILEGUR KOSTNAÐUR Hluti hækkunar sem velt var út í verðlag í gegnum heildsöluverðshækkun. Hluti hækkunar sem greidd var af afurðastöðvum Samtals: Á verðlagi Áverðlagi Meðaltals viðkomandi árs 2014 greiðslumark Dagsetning kr/ltr NVT kr/ltr millj. ltr millj. Kr Janúar 04 1,00 230 1,84 110 202 Janúar 05 1,46 239 2,58 110 284 Október 06 2,00 266 3,18 110 349 Júlí 07 1,19 273 1,84 110 203 Nóvember 07 0,62 280 0,94 110 103 September 2014 6,27 10,4 1.141 kr/ltr millj kr/ár Hækkun til bænda greitt með hagræðingu afurðastöðva 10,4 1.141 Hækkun á vinnslu- og dreifing- arkostnaði (rekstrarkostnaður afurðastöðva) sem sett var út í verðlag mjólkurvara á tímabil- inu 2003–2014 nam um 38% á sama tíma og almennt verðlag (NVT) hækkaði um 88%. Á tímabilinu janúar 2003 til desember 2007, eða á 5 ára tímabili, hækkaði launavísitala um 37,8% og almennt verðlag í landinu um 25,4%. Vinnslu- kostnaður mjólkurvara sem verðlagsnefnd ákvað að setja út í heildsöluverð mjólkurvara hækkaði einungis um 2,3% á sama tíma. Kostnaðaraukning 38% frá 2003 til 2014 Aðeins 2,3% fór út í verðlagið 2003–2007

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.