Skírnir - 01.01.1984, Blaðsíða 97
SKÍRNIR SYRPA UM KRISTjÁN FJALLASKÁLD 93
urðu mér, Bensi! Aldrei hefði jeg trúað að það væri svona
Helskoti erfitt." En jeg er nú kominn út í Pólitík en það átti
þó ekki að verða.
Jeg hripa sjera Gunnari til í þetta skipti ef jeg ekki leggst.
Jeg fjekk brjef frá honum, sem var daterað 17. oct. en síðan hef
jeg hvorki heyrt til hans stun nje hósta.
Jeg enda þessar línur með því að biðja þig velvirðingar á
þeim, þú verður að taka viljann fyrir verkið, bestu kveðju mína
í Laufás. Það er óvíst hvort jeg get skrifað í Höfðah. en — taktu
nú eptir, þú átt að kyssa konuna þína fyrir mig 6 (segi sex kossa)
einn strax, annan þegar þið gangið til rekkju í kveld, og hina 4
svona eptir hentugleikum einhverntíma fyrir morgundaginn.
Svo margsigni jeg þig í kross, og fel þig drottni á vald.
Kr. Jónsson
Reykjavík á Góuþrælinn 1868
Elskulegi vinur.
Hjartanlega þakka jeg þjer fyrir tilskrifið, auk alls annars
góðs og gamals, að ógleymdri sendingunni, sem mjer kom í beztu
þarfir, enda þótt það hafi raknað von betur fram úr fyrir mjer,
hvað peninga snertir en eigi hirði jeg, að skýra þjer nákvæm-
ar frá því að sinni. Það er nógur tími til þess ef mjer auðn-
ast einhverntíma að sjá þig, þú hinn tryggvasti allra Tryggva.
En hvað brjefið þitt var gott, það var af því bezta kognaksbragð,
og þú veizt að jeg citera ávallt í það bezta, því jeg er enginn
undirhyggjumaður, guð sje oss næstur. Mjer líður vel, og hefur
liðið það í allan vetur. Jeg veit samt ekkert hvernig jeg er.
Stundum er jeg eins og einhver voldug heimshetja sem hef fyr-
ir framan mig allan heiminn og stend boðinn og búinn til
þess að leggja hann undir mig svo sem eins og Alexander þegar
hann var kominn yfir Hellusund, stundum er jeg eins og ein-
hver fallin lietja sem lít á liðnar sigurvinningar og fáránleg um-
brot stórvirkrar æfi, svo sem eins og Napóleon á Elínarey. Hvað
heldur þú jeg sje? Jeg veit ekki en mjer er nær að halda að jeg
sje ekki annað en Kristján Jónsson, þessi gamli hrokkinskinni
með bratta nefið, sem bráðum verður eins kunnugt í veraldar-
söguna eins og Hekla í Geographiunni; en jeg kæri mig nú