Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2001, Page 191
Kýnikear og kanónar: Heimspeki í skugga Platóns
og ein og samfelld frásögn þar sem allar þessar baráttufrásögur fovera guð-
spjallamannsins áttu að vera löngu fallnar í dá! En eins og Platón þá á Mark-
ús sér margan kanón sem sífellt rís eins og kreddukór aftur úr forneskjunni
ef aðeins til að minna á að það voru einmitt slíkir forkólfar kerfisins og hefð-
arinnar sem heimspekingar af flokki Kýnikea storkuðu í orði og á borði í leit
að fegurra mannlífi á grundvelli samúðar og hljómfalli náttúrunnar þar sem
yfirborðsmennskan og mannhatrið á engan samastað.
Ófáir eru þeir sérfræðingarnir sem leitast hafa við að finna hliðstæðum úr
verkum Kýnikea allt til foráttu. Kloppenborg bendir á margar þessar mótbár-
ur sem fram hafa komið á síðastliðnum árum (einkum í tengslum við saman-
burð á Ræðuheimildinni). Þar hefir verið bent á vandann varðandi heimildir
um Kýnikea (aldur þeirra og flokkun), útbreiðslu Kýnikea (eins og t.d. í Gali-
leu), og loks mælikvarða á stef sem telja má kýníkísk og hliðstæður þeirra í
þessum fornu heimildum.34 En eins og Kloppenborg heldur réttilega fram þá
er eðli þessara heimilda úr verkum Kýnikea síður en svo flóknara heldur en
margra annarra heimilda sem notaðar hafa verið til samanburðarannsókna á
textum Nýja testamentisins án allra þeirra fyrirvara sem hafðir hafa verið um
kýníkískar heimildir. Eftir að hafa rakið mótbárur gegn notkun hliðstæðna úr
verkum Kýnikea til heimahúsanna þá kemst Kloppenborg að þeirri niðurstöðu
að þær hafi einmitt lotið valdi kanónanna sem reist hafa rök sín á kreddum
en ekki sannleiksleit.35 Aðrir sérfræðingar hafa tekið hliðstæður úr heimspeki
Kýnikea alvarlega og borið saman á ábyrgan hátt og vissulega komist að ólík-
um niðurstöðum. John Dominic Crossan heldur því t.d. fram að Kýnikear hafi
ekki takmarkað gagnrýni sína á menningunni við Aþenu eða Róm heldur
einmitt gjörvalla heimsmenninguna og í því telur hann sig sjá mun á samfé-
laginu á bak við Ræðuheimildina. Og um útbúnað þeirra segir Crossan að
hann beri ekki saman við Kýnikea. Staf til varnar og ölmusutuðru gátu læri-
sveinar Jesú ekki borið því þeir voru, að hans skilningi, ekki borgarinnar börn
heldur úr sveit og var uppálagt að fara með friði á milli bæja og þiggja það
sem fyrir þá var lagt.36
Heimildir þær að baki ritun guðspjallanna hafa í síauknu mæli verið rann-
sakaðar á undanförnum árum og hliðstæðna þeirra leitað jafnt á meðal
apokrýfra bóka Nýja testamentsisns og í samtímabókmenntum öðrum frá öld-
unum í kringum hið nútímalega tímatal. Hvergi hefir goðsögnin um uppruna
kristindómsins eins og Markúsarguðspjall í heild sinni gefur til kynna að átt
34 „Dog among the Pigeons," 84-85.
35 Ibid., 116.
36 Jesus: A Revolutionary Biography (San Francisco, CA: HarperSanFrancisco, 1995), 118-
119.
189