Morgunblaðið - 02.07.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Jaðrakanungar fundust í stelks-
hreiðri í Önundarfirði þar sem
stelkurinn gætti öryggis þeirra og
hélt á þeim hita. Vaðfuglaungar
þurfa ekki meira en það til að lifa af
þó ólíklegt sé að það takist við
þessar aðstæður.
Þetta segir Böðvar Þórisson, for-
stöðumaður Náttúrustofu Vest-
fjarða, en það var hann sem gekk
fram á hreiðrið. Telur hann mestar
líkur á að jaðrakaninn hafi yfirgefið
eggin vegna kulda eða af því að
hann hafi ekki verið tilbúinn. „Það
var reglulega kalt vor núna.“
Egg í annarra hreiðri
Í hreiðrinu leyndust fjögur
jaðrakanegg og eitt stelksegg.
„Það klöktust út þrír jaðrakan-
ungar en það virðist sem stelks-
eggið og eitt jaðrakaneggið séu
ófrjó eða ekki verið legið nógu vel á
þeim,“ segir Böðvar. Er þetta í
fyrsta skipti sem hann sér eitthvað
þessu líkt. „Það þekkist meðal
fugla að þeir laumi eggjum í ann-
arra fugla hreiður en það er þá yf-
irleitt innan sömu tegundar, eins
og hjá gæsum,“ segir Böðvar. Hon-
um þykir ólíklegt að þetta hafi ver-
ið af mannavöldum því erfitt sé að
finna jaðrakanhreiður. „Þeir eru
lúmskir fuglar og hreiðrin því oft
vel falin.“
Í faðmi foreldranna
Jaðrakanungar eru þó alla jafna
á vegum foreldra sinna í réttu
hreiðri eins og kom í ljós á Siglu-
firði þar sem ungur drengur gekk
fram á jaðrakanhreiður þar sem
einn nýfæddur ungi hélt til ásamt
ófæddum systkinum sínum.
„Við ákváðum að heilsa upp á
þennan nýjasta íbúa fjarðarins,
sem beið eftir að systkinin tvö færu
nú einnig að brjóta sér leið og tak-
ast á við það sem lífið hefur upp á
að bjóða,“ segir Sigurður Ægisson,
fréttaritari Morgunblaðsins.
Hreiðrið sem jaðrakaninn býr
sér er að mestu ófóðruð laut ofan í
þúfnakolli og valinn staður í grón-
um mýrum, flóum með þurrum
blettum eða í röku graslendi.
Heimsborgari
Allflestar fuglategundir eru bún-
ar að unga út um þetta leyti, enda
stutt til haustsins. Jaðrakaninn
heldur af landi brott í september og
fer víða. Dvelur hann erlendis vetr-
arlangt áður en hann snýr aftur til
varpheimkynna sinna í apríl.
Ljósmynd/Böðvar Þórisson
Nýr Jaðrakanunginn heldur sig til hlés í stelkshreiðrinu þar sem hann var skilinn eftir ásamt systkinum sínum.
Stelkur fær óvænt
þrjá jaðrakanunga
Eggin Jaðrakanegg og stelksegg
eru svipuð en ólík að stærð.
Varp jaðrakananna
» Varpheimkynni Jaðrak-
ananna eru víða í Evrópu, á Ís-
landi og um miðbik Asíu.
» Egg þeirra eru yfirleitt 3-4
talsins, græn eða dökkbrún að
grunnlit en alsett svarbrúnum
doppum.
» Báðir foreldrar sjá um
áleguna en útungunartíminn er
22-24 dagar.
» Ungarnir eru hreiðurfælnir
og verða fleygir eftir 25-35
daga, ef þeir lifa af.
Jaðrakan viðskila við egg sín Óvíst er um afdrif þeirra
Samkomulag hefur náðst um að fresta viðræðum
Starfsgreinasambandsins við bæði ríkið og sveit-
arfélög um endurnýjun aðalkjarasamninga fram í
ágúst vegna starfsmanna í aðildarfélögum SGS sem
starfa hjá ríki og sveitarfélögum.
Gert er ráð fyrir að búið verði að ganga frá kjara-
samningum fyrir 1. október samkvæmt samkomulag-
inu og er út frá því gengið að ef samningar nást á
þessu tímabili verði þeir afturvirkir og gildi frá 1. maí
sl. samkvæmt upplýsingum Drífu Snædal, fram-
kvæmdastjóra SGS.
SGS, RÍKI OG SVEITARFÉLÖG FRESTA VIÐRÆÐUM FRAM Í ÁGÚST
Drífa Snædal
Ætla að semja fyrir 1. október
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Starfsmenn í stéttarfélögum Starfs-
greinasambandsins (SGS) sem
starfa hjá sveitarfélögum eiga von á
umtalsverðum kjarabótum vegna
endurskoðunar á starfsmati, sem
samkomulag hefur náðst um. Nið-
urstaðan varð sú að flest störf eru
metin til hærri stiga en þau voru áð-
ur og skilar það sér í hækkun á
launaflokkum.
Hækkanirnar ná til rúmlega 1.000
starfsmanna, sem starfa m.a. í
umönnunarstörfum, mötuneytum og
áhaldahúsum, að sögn Drífu Snæ-
dal, framkvæmdastjóra SGS. Breyt-
ingarnar eru mismiklar eftir störf-
um og hækka grunnlaun að jafnaði
um tvö til tíu þúsund á mánuði.
Fá einnig leiðréttingu launa
heilt ár aftur í tímann
Leiðréttingar sem gerðar hafa
verið eiga að vera afturvirkar frá 1.
maí 2014. Því er ljóst að margir
starfsmenn sveitarfélaga, sem eru í
stéttarfélögum innan SGS, geta
vænst þess að fá leiðréttingu á sín-
um launum heilt ár aftur í tímann,
auk þess að raðast hærra í launa-
flokk í framtíðinni.
„Af því 161 starfsheiti sem er til í
mörgum sveitarfélögum hækka 150
um launaflokka, 10 standa í stað en
aðeins eitt lækkar um launaflokk,
viðkomandi starfsmaður mun þó
ekki lækka í launum. Mest hækkar
mat á einstaka starfi sem samsvarar
10 launaflokkum,“ segir í umfjöllun
um niðurstöðuna á vefsíðu SGS.
Raða á starfsmönnum í réttan
launaflokk út frá nýju starfsmati.
fyrir 1. ágúst, þó ekki síðar en 1.
september. Þar sem um töluverða
vinnu er að ræða er sveitarfélögum
gefið svigrúm til 1. október til að
leiðrétta launin aftur í tímann.
Samkomulagið nær til félags-
manna í félögum SGS sem ekki eru í
Flóafélögunum en Efling og
Reykjavíkurborg hafa einnig fyrir
nokkru lokið endurskoðun starfs-
mats vegna starfsmanna hjá borg-
inni.
Forsaga þessarar endurskoðunar
er sú að í næstsíðustu kjarasamn-
ingum var ákveðið að ráðast í end-
urmat á öllum störfum sem rúmast
innan kjarasamninga SGS og Sam-
bands Íslenskra sveitarfélaga.
Nú er þeirri endurskoðun lokið og
verður starfsfólki raðað upp á nýtt í
launatöflur auk þess að fá afturvirka
leiðréttingu greidda eins og fyrr
segir. Sveitarfélögin og stéttarfélög-
in hafa þegar fengið nýtt starfsmat í
hendurnar og eru að hefjast handa
við að raða starfsfólki í launa-
töflurnar.
Laun hækka
umtalsvert
Kjarabætur með nýju starfsmati SGS
Morgunblaðið/Eggert
SGS Nýtt starfsmat starfsfólks hjá
sveitarfélögum liggur fyrir.
Verð á notkun farsíma og netlykla í
reiki innan Evrópu lækkaði í gær
samkvæmt reglugerð Evrópusam-
bandsins um verðþök á notkun far-
síma og netlykla innan ríkja sam-
bandsins. Hrafnkell V. Gíslason,
forstjóri Póst- og fjarskiptastofnun-
ar, segir neytendur hér á landi njóta
góðs af reglugerðinni þar sem hún
taki einnig gildi á Íslandi með samn-
ingnum um Evrópska efnahags-
svæðið.
Ný hámarksverð munu gilda í eitt
ár, til 30. júní 2016. Er nú eftir breyt-
inguna hámarksverð fyrir send
SMS-skilaboð 10,99 krónur, fyrir að
hringja 34,83 krónur á mínútuna og
9,16 krónur á mínútuna fyrir að
svara. Hámarksverð gagnamagns er
nú orðið 36,66 krónur/MB. „Verð
fyrir farsímanotkun er nú mun hag-
kvæmara en áður var innan evr-
ópska efnahagssvæðisins. Þessi
gríðarháu reikigjöld, sem við upplif-
um til dæmis í Bandaríkjunum, eru
nú að mestu aflögð innan svæðisins,“
segir Hrafnkell.
„Roam like at home“
Næstu skref ganga svo enn lengra
og tekur sú breyting gildi innan evr-
ópska efnahagssvæðisins árið 2017.
„Þar er hugmyndafræðin „roam
like at home“, en þá borgar maður í
raun ekki aukalega fyrir það að vera
með símann erlendis innan Evr-
ópska efnahagssvæðisins,“ segir
Hrafnkell. Að sögn hans er hugsunin
hér sú að notandi farsíma sem stadd-
ur er erlendis og innan Evrópska
efnahagssvæðisins þurfi ekki að
greiða umframgjald fyrir hóflega
notkun á símtækinu. „Þetta mun þó
ekki gilda á heimsvísu,“ segir hann.
Reikigjöldin á útleið
Verð vegna notkunar farsíma og netlykla í reiki innan Evr-
ópska efnahagssvæðisins lækkar Gjöldin hverfa alveg 2017
Morgunblaðið/Ernir
Snjallsími Örar breytingar eru á
farsímamarkaði í Evrópu.
ÚTSALA
38
ÞREP
Laugavegi 49 / sími 561 5813