Morgunblaðið - 02.07.2015, Blaðsíða 60
HJÓLREIÐAR
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Hjól, eins og öll önnur farartæki,
þarfnast reglulegs viðhalds. Það
mæðir á ýmsum pörtum og endrum
og sinnum þarf að stilla, herða,
strekkja og skipta um.
Árni Davíðsson segir að hjól-
reiðaviðgerðir séu ekki erfiðar en
margir séu samt hikandi við að
spreyta sig á þeim. Með réttri leið-
sögn er hægt að brjóta ísinn og er
fólki þá ekkert að vanbúnaði að
halda hjólinu í góðu standi og spara
sér ferðir á reiðhjólaverkstæðið.
Árni kennir námskeið í reið-
hjólaviðgerðum sem haldið verður
hjá Tækniskólanum laugardaginn
29. ágúst. Fer námskeiðið fram í
gamla Stýrimannaskólanum frá kl.
9-16 og kostar 19.000 kr. Nemenda-
fjöldinn er takmarkaður og er ætl-
ast til þess að þátttakendur komi
með sín eigin hjól á námskeiðið.
Verða þar til reiðu bæði viðgerð-
arstandar og helstu verkfæri.
Þekkir hjólin út og inn
Margir þekkja Árna undir
nafninu Dr. Bæk, en hann hefur
lengi kennt reiðhjólaviðgerðir og
verið virkur í reiðhjólahreyfingunni.
Var hann meðal annars formaður
Landssamtaka hjólreiðamanna frá
2009 til 2013 og hefur starfað við
verkefnið Hjólafærni.
„Við byrjum námskeiðið á
fyrirlestri sem tekur um klukku-
stund. Þar verður fjallað um hjól-
reiðar almennt, um hjólið sem sam-
göngutæki og hvað þarf að hafa í
huga þegar hjólið er notað í um-
ferðinni. Því næst fáum við okkur
kaffi og hefjumst svo handa við að
læra hinar ýmsu tegundir smávið-
gerða sem hjólið getur þarfnast.“
Árni lætur nemendur vinna
saman tvo og tvo og fer kerfis-
bundið í gegnum helstu hluta reið-
hjólsins.
„Við byrjum á því að skoða
hvernig á að stilla hjólið fyrir not-
andann svo að hann sitji rétt.
Vitaskuld þarf að hækka eða lækka
hnakkinn í rétta stöðu en einnig
getur verið þörf á að fínstilla
hnakkinn, færa hann framar eða
aftar, og síðan stilla stýrið í
samræmi við líkamsbygginguna.“
Einnig læra nemendur hvernig
má bilanagreina hjólið. „Bilana-
greining er ekki flókin og felst í því
að gaumgæfa hjólið, sjá hvort allt
hreyfist eðlilega, hvort hlutir eru
lausir eða vart verður við undarleg
hljóð.“
Þegar hjólið er notað byrja
sumir fletir að slitna og óhjá-
kvæmilegt er að þurfi t.d. á ein-
hverjum tímapunkti að skipta um
dekk. Fer Árni vandlega í saumana
á dekkjaskiptunum, hvernig finna
má og laga göt sem komið hafa á
slönguna og svo setja bæði dekk og
slöngu aftur upp á gjörðina. „Æ
fleiri hjóla líka á nagladekkjum yfir
veturinn og því eru dekkjaskipti
haust og vor orðin fastur liður í við-
haldi hjólsins hjá mörgum,“ segir
hann.
„Nemendurnir læra líka að
skipta um hefðbundna bremsupúða
og strekkja á bremsuvírunum en þá
getur þurft að strekkja þegar
bremsupúðinn slitnar.“
Hárnákvæmir gírar
Margir kannast við það að vera
í miðri hjólaferð og uppgötva sér til
gremju að gírskiptingin er ekki eins
nákvæm og hún eitt sinn var, svo að
brösuglega gengur að skipta gír-
unum upp eða niðir. Árni kennir
líka hvernig má stilla gírana. „Á
námskeiðinu lærir fólk að greina
hvort gírarnir þurfa endurstillingu
eða hvort eitthvað annað er að. Að
fínstilla gírskiptinguna er alls ekki
svo vandasamt.“
Allir hjólreiðamenn ættu að
kunna undirstöðuatriði reiðhjóla-
viðgerða. Þannig fá þeir mest út úr
hjólinu sínu og þurfa ekki að missa
af skemmtilegum hjóladögum á
meðan gert er við reiðhjólið á verk-
stæði. Árni segir tilganginn með
námskeiðinu líka þann að koma í
veg fyrir að smávægilegar bilanir
haldi fólki frá því að nota hjólið
reglulega. Það geti verið stór sál-
rænn þröskuldur að vera með bilað
hjól í geymslunni því það kallar
óneitanlega á umstang að koma
hjólinu fyrir í skottinu á bíl og
skutla því niður á næsta verkstæði.
„Ef öll fjölskyldan stundar
hjólreiðarnar saman geta viðgerð-
irnar líka verið skemmtileg iðja
sem foreldrar geta deilt með börn-
unum. Í dag gefast fjölskyldum
ekki mörg tækifæri til að gera eitt-
hvað verklegt saman og það er
gaman að geta miðlað verkþekking-
unni á planinu heima og haldið svo
af stað í hjólreiðatúr.“
Reiðhjólaviðgerðir eru ekki flóknar
Morgunblaðið/Golli
Slit Jafnvel sterkbyggðustu hjól þarfnast viðhalds endrum og sinnum. Á flugi í Öskjuhlíð á fjallahjólum.
Morgunblaðið/Eggert
Kunnátta Árni Davíðsson er mikill reynslubolti og lipur í viðgerðunum.
Með því að kunna undirstöðuatriðin má spara sér ófáar heimsóknirnar á reiðhjólaverkstæðið
Ekki verður hjá því komist að
reiðhjólin óhreinkist við notk-
unina eða safni ryki ef þau sitja
óhreyfð inni í geymslu.
Skemmtilegra er að hjóla á
hreinu og glansandi hjóli en
óhreinu en Árna finnst hæfilegt
að hreinsa hjólið tvisvar á ári.
„Ég set vatn í fötu og smá
uppþvottalög eða bílasápu ofan
í og þríf hjólið mitt með
svampi. Byrja efst þar sem
óhreinindin eru minnst, vinn
mig niður þar sem óhreinindin
eru meiri og þríf gjarðirnar síð-
ast.“
Árni varar við mjög kröftug-
um þvotti og t.d. ekki ráðlegt
að notast við háþrýstisprautu.
„Er þá hætta á að vatnið finni
sér leið inn í legurnar á hjólinu
og byrji þar að valda skemmd-
um.“
Þvotturinn
einfaldur