Morgunblaðið - 02.07.2015, Blaðsíða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015
HJÓLREIÐAR
2.495KR
BRÖNS
Í hádeginu laugardaga,
sunnudaga og rauða daga
frá 11:30 – 15:00
g e y s i r b i s t r o . i s
Aðalstræti 2
517 4300
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Að skipuleggja reiðhjólaferðalag
um landið á hjóli kallar á allt aðr-
ar upplýsingar en ef farið er á bíl.
Hjólreiðafólk fer hægar yfir, þarf
að velja sér leið-
ir með tilliti til
umferðar og
vegarhalla og
stólar á að geta
með reglulegu
millibili fundið
gistingu og
nauðsynlega
þjónustu. „Síð-
ast en ekki síst
eru hjólreiða-
menn sísvangir,
og alltaf á höttunum eftir stað til
að kaupa eins og eina pylsu eða
hamborgara,“ segir Sesselja
Traustadóttir, framkvæmdastjóri
Hjólafærni. Að sögn hennar hefur
mikið vantað upp á upplýsingagjöf
fyrir hjólandi ferðalanga. Úr varð
að búa til nýtt kort af Íslandi,
Cycling Iceland-kortið, sem búið
er að laga sérstaklega að þörfum
hjólreiðafólks.
Hefur verið lengi í þróun
Gerð kortsins hefur haft langan
aðdraganda og tengist m.a. verk-
efni um kortlagningu svokallaðrar
EuroVelo-reiðhjólaleiðar frá
Keflavík út á Seyðisfjörð. Euro-
Velo er verkefni sem vottar góðar
hjólaleiðir sem bjóða upp á við-
unandi þjónustustig og aðstæður
til hjólreiða. Eru margar slíkar
hjólaleiðir í Evrópu en engin á Ís-
landi.
Sesselja ritstýrði árið 2013
fyrstu útgáfunni af kortinu og
lagði þar mikla vinnu í að leita
uppi hvers kyns hjólatengda starf-
semi hringinn í kringum landið.
Fann hún jafnvel áhugamenn sem
voru tilbúnir að bjarga ferða-
mönnum ef þeir lentu í vandræð-
um í afskekktum landshlutum. Í
annarri útgáfu kortsins kom Ómar
Smári Kristinsson hjólabókahöf-
undur með í verkefnið. „Hann er
mikill áhugamaður um hjólaleiðar
og hefur varið ógrynni stunda í að
gera kortið sem læsilegast og eins
upplýsandi og orðið er,“ segir
Sesselja og tiltekur einnig Andr-
eas Macrander, sem hjálpaði til
við að bæta kortið enn frekar.
Á myndinni hér til hliðar má sjá
stækkaðan hluta af suðvesturhorn-
inu eins og það birtist á kortinu.
Íslandskort gert
sérstaklega með
hjólreiðafólk í huga
Á Cycling Iceland-kortinu er meðal annars búið að merkja
brekkur og vegi þar sem er minni umferð til að létta ferðalagið
Kortið sýnir hvaða þjónustu má kaupa í þéttbýliskjörnum um
land allt og hvar finna má reiðhjólaverkstæði og -verslanir
Morgunblaðið/Ómar
Praktískt Útlendingum og heimamönnum þykir mörgum upplifun að sjá
landið á hjóli. Mynd úr safni af pari á ferð við Kirkjubæjarklaustur.
Sesselja
Traustadóttir
Gagnlegt Sýnis-
horn af Cycling
Iceland-kortinu.
Alls kyns nytsam-
legar upplýsingar
er þar að finna.
Í umræðunni um hjólandi ferða-
menn vill stundum bera á nei-
kvæðni og tali um að þessi hóp-
ur sé ekki jafnverðmætur og
aðrir gestir. Betra sé að fá til
landsins sterkefnaða og eyðslu-
glaða gesti sem fara út að
borða á dýrum veitingastöðum
og verja nóttinni á lúxushót-
elum. Ekki verra ef þeir leigja
þyrlu og fara í laxveiði með heil-
um her leiðsögumanna. Minna
sé að hafa upp úr hjólandi fólki
sem gistir á tjaldstæðum og
kaupir sér nesti á næstu bens-
ínstöð.
Sesselja segir þetta viðhorf
byggt á misskilningi. Það er rétt
að hjólandi ferðamenn eyða
minni peningum á dag en þeir
heimsækja landið þeim mun
lengur, oft fjórar til sex vikur í
einu. „Þetta fólk er líka meira en
tilbúið að eyða peningum en oft
er þjónustan ekki til staðar. Sjálf
skrapp ég austur á firði fyrir
skömmu og hjólaði þar skemmti-
lega leið. Bæði þurfti ég að
fljúga á staðinn, sem kostaði
sitt, en alls staðar þar sem völ
var á þjónustu eyddi ég pen-
ingum með glöðu geði, ekki síst
þar sem matur var í boði.“
Bendir Sesselja á að reið-
hjólafólk ferðist hægt yfir og
komi víða við. „Þetta er líka
hópur sem spænir ekki upp mal-
bikið okkar og umgengst náttúr-
una af virðingu og tillitssemi.“
Reiðhjólafólk hefur lengi
kvartað yfir skorti á tillitssemi á
vegum úti. Bílarnir aki of hratt
og allt of nálægt reiðhjólunum.
Sesselja segir að á undanförnum
árum hafi þetta breyst mjög til
batnaðar, sennilega vegna þess
að æ fleiri hafa reynt það á eig-
in skinni að hjóla í umferðinni
og vita hversu óþægilegt það er
fyrir hjólandi fólk ef ökumenn
sýna ekki nægilega nærgætni.
Að sögn Sesselju ættu öku-
menn að hægja á sér áður en
komið er að hjólreiðamanninum
og reyna að gefa honum sem
mest svigrúm á veginum, með
því ýmist að fara út á miðjan
veginn eða jafnvel alla leið yfir á
hina akreinina ef aðstæður
leyfa.
„Bílstjórar stóru flutningabíl-
anna ættu alveg sérstaklega að
gæta sín á því að aka ekki of
geyst í kringum hjólreiðafólk.
Þeir skilja eftir sig svakalegt
lofthögg sem getur valdið slys-
um. Það ætti ekki að kosta bíl-
stjórana mikið að hægja vel á
ferðinni þegar hjólreiðamaður er
á veginum.“
Verðmætir gestir sem
sýna þarf tillitssemi