Morgunblaðið - 02.07.2015, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/RAX
Kvikmyndagerðarkonan Ásdís Thoroddsen segir að hlutverk Söndru hafi kennt sér heilmargt um leikstjórn.
ist sem skrifta eða sem aðstoðarleik-
stjóri. M.a. var hún aðstoðarleik-
stjóri í Nóa albínóa, þar sem hún var
jafnframt í annað skipti á ævinni
fyrir fr, man tökuvélarnar, en þá í
aukahlutverki. Þá hefur Ásdís skrif-
að handrit, leikstýrt og klippt
nokkrar stuttmyndir.
Í einkalífinu gerðist það helst að
hún eignaðist soninn Grímkel fyrir
átján árum með frönskum manni.
Sambandið stóð stutt, en hún segir
Grímkel í góðum tengslum við
pabba sinn og heimsæki hann oft til
Frakklands.
Aðalhlutverkin í
lífinu og listinni
Aðalhlutverk Ásdísar í lífinu og
listinni eru fleiri en í Skilaboðum til
Söndru. „Ég fékk ekki góða dóma
fyrir leikinn og var fundið mér til
foráttu að ég væri ekki lærður leik-
ari. Hins vegar fékk ég annað að
heyra frá útlendingum sem sáu
myndina. En með hlutverkinu lærði
ég heilmargt um leikstjórn, ekki síst
hvernig á að vinna með amatörum
og þá kannski helst að krefjast mik-
ils af þeim,“ segir Ásdís og rifjar
upp að hún hafi fengið smápening til
að kaupa sér pils til að vera í þegar
myndin var kynnt á kaupstefnu
Berlinale-kvikmyndahátíðarinnar.
Hún kveðst hvorki hafa fengið sér-
staka athygli kringum frumsýn-
inguna né hafi þótt tiltökumál að
hún var berbrjósta í einu atriðinu.
„Hippaáhrifanna gætti ennþá í þjóð-
félaginu, ber brjóst þóttu ekkert
merkileg fyrr en klámbylgjan reið
yfir nokkru síðar.“
Aftur í núið. Auk þess að fram-
leiða sveppi og leikstýra Veðra-
brigðum er Ásdís að skrifa sitt ann-
að leikrit, en hún er höfundur
Ástandsins, sem fjallar um ástir ís-
lenskrar stúlku og bresks hermanns
og var útvarpað í tveimur hlutum
fyrir nokkrum árum. Hún er einnig
byrjuð á handriti að heimildamynd
um gerð íslenska kvenbúningsins.
„Mig langaði að gera andstæðu
heimildamyndarinnar Súðbyrðingur
– Saga báts frá 2011, sem fjallar um
fjóra karla sem koma saman til að
smíða bát og rekur sögu norrræna
súðbyrðingsins eftir því sem smíð-
inni vindur áfram,“ segir Ásdís, sem
skrifaði handritið, leikstýrði, klippti
og var sögumaður. Henni finnst
hannyrðir kvenna verðskulda að
gerð sé um þær heimildamynd.
Allir voru svo grannir
Að öllu samanlögðu er Ásdís
ánægð yfir að hafa komið börnunum
til manns, yfir kvikmyndunum sín-
um og því sem hún er að skrifa og
gera hverju sinni. „Það er vegna
þess að ég geri bara það sem mér
finnst skemmtilegt, kvikmyndagerð
er eitt af því skemmtilegasta.“ Hún
hefur tvisvar horft á Skilaboð til
Söndru, í annað skipti um aldamótin
og ætlar að að kaupa sér dvd-
diskinn. „Ég held að fólk hafi gaman
af að sjá hversu margt hefur breyst í
þjóðfélaginu síðan 1983 – til dæmis
hve allir voru grannir.“ vjon@mbl.is
Móttleikarinn Bessi Bjarnason ,
einn reyndasti leikstjóri landsins
lék aðalhlutverkið á móti Ásdísi.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015
Engjateigi 5 • Sími 581 2141
Útsalan er hafin
Yfirskrift göngunnar
Reykjavík – Safarí sem
Borgarbókasafn, Borgar-
sögusafn og Listasafn
Reykjavíkur efna til í
kvöld hefur óneitanlega
yfir sér svolítið útlenskan
ævintýraljóma. Ekki að
ósekju því söfnin þrjú
hafa sameinast um að
kynna starfsemi sína og
helstu menningarstofn-
ana borgarinnar á mörg-
um ólíkum tungumálum.
Leiðsögumenn munu
leiða hópana og segja frá
menningarlífinu í Reykja-
vík á sex tungumálum;
ensku, arabísku, pólsku,
portúgölsku, víetnömsku
og taílensku.
Fyrir þá sem tala og
skilja lítið eða ekkert í ís-
lensku eða eru einfald-
lega illa áttaðir í borginni
er því kjörið að slást í
þann hóp sem best hent-
ar. Einnig gæti verið
skemmtilegt fyrir borna
og barnfædda Reykvík-
inga að krydda tilveruna
og sjá kannski borgina í
nýju ljósi. Ekki er endilega víst að þeir
viti fremur en þeir sem nýfluttir eru
hingað til lands hvar bókasöfnin og
önnur söfn eru og hvað þar er boðið
upp á. Eða leikhúsin, stytturnar, lista-
verkin og allir skemmtilegu staðirnir.
Hvað er ókeypis? Hvaða viðburðir
eru efst á baugi? Hvað gerist um
helgar? Hvað er í boði fyrir börn, fjöl-
skyldur og fullorðna? Leiðsögumenn-
irnir verða ekki í vandræðum með að
svara slíkum og áþekkum spurn-
ingum.
Lagt verður upp í göngutúrinn frá
Borgarbókasafninu í Grófinni,
Tryggvagötu 15, kl. 20 í kvöld. Gert er
ráð fyrir að gangan taki einn og hálf-
an tíma. Í lokin hittast hóparnir á
upphafsreit þar sem boðið verður
upp á hressingu og lifandi tónlist.
Þátttaka er ókeypis, allir eru vel-
komnir.
Borgarbókasafn, Borgarsögusafn og Listasafn Reykjavíkur
Safari í Reykjavík á sex tungu-
málum á þriggja safna vegum
Morgunblaðið/Eggert
Hvað er í boði í borginni? Þátttakendur í kvöld-
göngunni geta orðið margs vísari.