Morgunblaðið - 02.07.2015, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 02.07.2015, Blaðsíða 76
VIÐTAL Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Stærsta breytingin frá því í fyrra, fyrir utan listamennina sem koma fram, er eflaust sú að í ár verður ekk- ert plötusnúðatjald á svæðinu. Við munum þess í stað gera meira úr sviðinu í The Officers Club,“ segir Barry Hog- an, stofnandi tónlistarhátíðar- innar All Tomor- row’s Parties sem hefst á Ásbrú í Keflavík í kvöld og stendur um helgina. Þetta er í þriðja skiptið sem hátíðin er hald- in hér á landi og meðal þeirra sem koma fram eru Iggy Pop, Public Enemy, Belle & Sebastian og God- speed you! Black Emperor. Erfitt að fá fólk til Keflavíkur Tónlistarhátíðin var upphaflega sett á laggirnar í London á Englandi og hefur síðan þá fært út kvíarnar og hafa viðburðir á vegum hennar verið settir upp víðsvegar um heiminn síð- astliðinn áratug, oft í tengslum við aðrar tónlistarhátíðir. Til að byrja með var hugmyndin að hátíðinni sú að hvert ár fengi ein hljómsveit það hlutverk að stýra hátíðinni, þ.e.a.s. ákveða hvaða sveitir kæmu fram. Hogan segist hafa fengið hugmynd- ina að ATP þegar meðlimir Belle & Sebastian stýrðu hátíðinni Bowlie Weekender árið 1999 og segir hann að hátíðin væri ekki til ef ekki væri fyrir skosku sveitina. Eitt af meg- inmarkmiðum hátíðarinnar var að halda nánd á milli þeirra listamanna sem komu fram og þeirra gesta sem lögðu leið sína á tónleikana og hefur það nokkurn veginn haldist að mati Hogans, þrátt fyrir að hátíðin hafi hýst mörg af stærstu nöfnun indí- rokksenu síðustu tveggja áratuga. „Hátíðargestir voru þrjú þúsund árið 2001. Ég held að þessi nánd hald- ist ef áhorfendafjöldinn er einhvers staðar á bilinu þrjú til fimm þúsund manns, þá sérstaklega ef þú ert með fleiri en eitt svið í gangi á sömu hátíð- inni. Andinn breytist um leið og gestafjöldinn verður meiri, þá verður stemningin líkari því sem finna má á útihátíðartónleikum. Við höfum núna selt helmingi fleiri miða utan Íslands en við gerðum í fyrra. Ég veit ekki hversu marga miða við verðum búin að selja að lokum en ég held að það sé óhætt að segja að Íslendingar vilji bíða þar til á síðustu stundu með að kaupa sér miða á svona viðburði. Sal- an lítur engu að síður vel út og við er- um að vona að fjögur til fimm þúsund manns mæti á svæðið,“ segir Hogan og grínast með það að erfitt sé að fá Reykvíkinga til Keflavíkur. Mogwai stýrir kvikmyndunum „Á árunum 2009 og 2010 vorum við að selja tíu til fimmtán þúsund miða á ýmsa viðburði. Markaðurinn hefur þó breyst síðan þá og við erum að fara aftur í þessa nánu stemningu sem við lögðum upp með. Einhverjir gætu séð það sem skref aftur á bak en ég tel það meira spennandi. Það þýðir að maður getur aftur farið að vinna með ótrúlegum grasrótarlistamönnum auk þess sem það verða alltaf einhver mjög stór nöfn á svæðinu,“ segir Hogan. Hann segir ástæðuna fyrir því að skipuleggjendur ATP ákváðu að setja hátíðina upp á Íslandi marg- þætta, en íslensk menning hafi spilað þar stóra rullu. „Tómas Young hafði samband við okkur og spurði hvort við vildum færa ATP til Íslands. Hann sagði Ásbrú kjörinn vettvang fyrir hátíð- ina. Ég hef alltaf verið hrifinn af ís- lenskri tónlist og mig hafði alltaf langað til að koma til landsins. Það eru heldur ekkert rosalega margar tónlistarhátíðir á Íslandi fyrir alþjóð- lega listamenn og því var þetta spennandi kostur. Það hafa allir verið mjög hjálpsamir og við vonumst til þess að geta byggt ofan á hátíðina til framtíðar og komið til Íslands ár eftir ár,“ segir hann og bætir við að mikið verði lagt í hljóðið um helgina auk þess sem ýmsar krásir verði í boði á Kraftmikill Bandaríski reynsluboltinn Iggy Pop er eitt stærsta nafnið á hátíðinni í ár. Hann kemur fram í kvöld. Nennir ekki neinu Drake  Tónlistarhátíðin All Tomorrow’s Parties fer fram í þriðja skiptið á Ásbrú í Keflavík um helgina  Stofnandi hátíðarinnar vonast til þess að hún sé komin til að vera Barry Hogan 76 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015 ATP á Íslandi 2015 Iggy Pop Þrátt fyrir að Iggy Pop sé orðinn 68 ára virðist hann vera í fullu fjöri. Ef marka má myndbandsklippur frá nýlegum tón- leikum hans virðist líkaminn enn standa undir þeirri kröft- ugu sviðsframkomu sem kappinn er svo þekktur fyrir. Hljómsveitin sem hann gerði garðinn frægan með í fyrstu, The Stooges, verður ekki með honum í för að þessu sinni en þess má geta að hún hlaut inngöngu í Frægðarhöll rokksins í Bandaríkjunum árið 2010. Þá setti tímaritið Rolling Stone hljómsveitina í 78. sætið yfir bestu sveitir allra tíma í nýlegri úttekt sinni. Gaman væri ef kappinn tæki slagara á borð við „The Passen- ger“ og „I Wanna Be Your Dog“ á ATP í kvöld. Belle & Sebastian Skoska sveitin Belle & Sebastian er meðal áhrifamestu ind- ípoppsveita síðustu tveggja áratuga og hafa þær níu plötur sem hún hefur gefið út unnið til fjölda verðlauna. Plötur á borð við Tigermilk, If You’re Feeling Sinister og The Boy with the Arab Strap hafa lifað góðu lífi þrátt fyrir að þær hafi ef til vill ekki skilað sköpurum sínum gríðarmiklum tekjum. Belle & Sebastian gaf snemma á þessu ári út plötuna Girls in Peacetime Want to Dance. Á plötunni má meðal annars finna lagið „The Party Line“ sem hefur fengið nokkra spilun á net- veitum sem og útvarpsstöðvum. Ljóst er að nýja platan er heldur dansvænni en þær eldri og því áhugavert að sjá hvern- ig stemningin verður í Ásbrú þegar sveitin stígur á svið. Public Enemy Bandarísku rappararnir Chuck D og Flavor Flav nutu hvað mestrar hylli á síðustu tveimur áratugum síðustu aldar en hafa engu að síður haldið orðsporinu nokkuð vel. Þessir lit- ríku menn eru þekktir fyrir einkar skemmtilega nærveru, þá sérstaklega Flavor Flav sem ávallt ber stóra klukku um háls- inn, og þrátt fyrir að þeir séu orðnir fimmtugir er ekki von á öðru um helgina. Árið 2013 varð sveitin fjórða hiphop-sveitin til þess að fá inngöngu í fyrrnefnda Frægðarhöll rokksins en Grandmaster Flash and the Furious Five, Run D.M.C. og The Beastie Boys voru á undan. Það er því nokkuð ljóst að hér er ein áhrifamesta hiphop-sveit allra tíma á ferðinni og lög á borð við „Fight the Power“ orðin nær ódauðleg. Brot af því besta á ATP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.