Morgunblaðið - 02.07.2015, Síða 8

Morgunblaðið - 02.07.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015 Nýbirtur ríkisreikningur sýnirað ríkissjóður þreifst býsna vel í fyrra og af rekstrinum var góður tekjuafgangur, 46 milljarðar króna, sem eru mikil umskipti frá næstu árum á undan.    Þetta er ánægju-efni en um leið er ástæða til að hafa áhyggjur af ástæð- um þessarar batn- andi afkomu. Þær eru allar á tekju- hliðinni.    Heildartekjur ríkissjóðs jukustum nær 100 milljarða króna á milli ára og fóru upp í 689 milljarða í fyrra. Gjöldin jukust um 50 millj- arða króna.    Tekjuskattar á einstaklinga juk-ust um 4 milljarða króna og á fyrirtæki um 27 milljarða.    Virðisaukaskattur jókst um 11milljarða króna og vörugjöld um 2 milljarða króna.    Í ljósi minnkandi atvinnuleysisvekur enn fremur athygli að tryggingagjöld hækkuðu um 3,5 milljarða króna á milli ára.    Enginn af helstu skattstofnumskilar minni eða sömu tekjum og árið á undan.    Fyrir tveimur árum urðustjórnarskipti. Vinstristjórnin, sem staðið hafði fyrir linnulausum skattahækkunum, hrökklaðist frá völdum. Við tók stjórn sem þurfti að hreinsa til eftir þá atlögu að fólki og fyrirtækjum.    Þessar tölur sýna að þauhreinsunarstörf eru skammt á veg komin. Bjarni Benediktsson Mikið verk óunnið STAKSTEINAR ÚTSALAN ER HAFIN 30–50% afsláttur DIMMALIMM Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | www.dimmalimmreykjavik.is Opið mán.–fös. 10–18, lau. 10–17 Sendum frítt um land allt Iana Reykjavík Veður víða um heim 1.7., kl. 18.00 Reykjavík 12 alskýjað Bolungarvík 7 rigning Akureyri 8 rigning Nuuk 15 léttskýjað Þórshöfn 12 skúrir Ósló 26 heiðskírt Kaupmannahöfn 21 heiðskírt Stokkhólmur 23 heiðskírt Helsinki 22 heiðskírt Lúxemborg 32 heiðskírt Brussel 33 heiðskírt Dublin 22 skýjað Glasgow 25 heiðskírt London 33 heiðskírt París 37 heiðskírt Amsterdam 32 heiðskírt Hamborg 27 heiðskírt Berlín 26 heiðskírt Vín 29 léttskýjað Moskva 17 léttskýjað Algarve 23 heiðskírt Madríd 36 heiðskírt Barcelona 27 heiðskírt Mallorca 36 heiðskírt Róm 28 heiðskírt Aþena 25 léttskýjað Winnipeg 22 léttskýjað Montreal 18 skúrir New York 25 skýjað Chicago 18 alskýjað Orlando 32 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 2. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:08 23:57 ÍSAFJÖRÐUR 1:51 25:23 SIGLUFJÖRÐUR 1:20 25:20 DJÚPIVOGUR 2:24 23:39 „Umferð í nýliðnum júnímánuði jókst mikið miðað við sama mánuð á síðasta ári eða um 4,6% og var nýtt met slegið í umferðinni um hringveg- inn í sama mánuði, þ.e.a.s. aldrei hafa fleiri ekið um hringveginn í júnímánuði fram til þessa,“ segir í umfjöllun á vefsíðu Vegagerðarinnar um umferðina á hringveginum að undanförnu. Er þetta þriðja árið í röð þar sem umferð eykst á milli ára í júnímán- uði. Umferð jókst mest um mælisnið á Austurlandi eða 11% en minnst um Suðurland eða 1,9%. Þá hefur umferðin á hringvegin- um á þessu ári aukist um 2,2 prósent sem er minni aukning en í fyrra. Er aukningin áberandi minnst á Suður- landi. Í umfjöllun Vegagerðarinnar er vakin athygli á því að umferð á hringveginum um Suðurland eykst ekki jafn mikið og á öðrum land- svæðum. „Þetta er athyglisvert í ljósi þess að mikið er rætt um fjölg- un ferðamanna um Suðurland, t.d. á Gullna hringnum, en hringvegurinn er hluti þeirrar leiðar. Umferðin á Hellisheiði jókst t.d. aðeins um 1,9% milli júnímánaða og hefur hún dreg- ist saman um 0,7% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Hugsanlega er þetta vísbending um breytt leiðarval á Suðurlandi og/eða að umsvif á þessu landsvæði hafi aukist hóflegar en á öðrum land- svæðum. En erfitt er að meta það ná- kvæmlega. Hugsanlega fer nú líka hluti umferðar um Suðurstrandar- veginn sem áður fór um hringveg- inn,“ segir þar ennfremur. Að mati Vegagerðarinnar stefnir nú í að umferðin á hringveginum, geti aukist um rúmlega 2% í ár mið- að við árið á undan. Gangi þessi spá eftir myndi gamla metið, frá árinu 2007, verða slegið svo um munar. Þegar mælingar á umferð eftir vikudögum eru skoðaðar kemur í ljós að hún hefur aukist alla viku- daga nema sunnudaga, það sem af er ári. „Hlutfallslega eykst umferðin mest á mánudögum og þriðjudögum en dregst saman um 1% á sunnudög- um. Þar sem Suðurland var gert að umræðuefni þá sker það landsvæði sig úr varðandi aukningu eftir viku- dögum. Meðan umferð eykst alla vikudaga á öðrum landsvæðum, nema á sunnudögum við höfuðborg- arsvæðið, þá hefur umferð dregist saman frá föstudögum til sunnudaga á Suðurlandi.“ omfr@mbl.is Umferðarmet var slegið í júní  Umferð á hringvegi jókst um 4,6% í júní  Metið frá 2007 gæti fallið í ár Morgunblaðið/Ómar Fleiri bílar Umferðin á hringveginum hefur aldrei áður verið meiri en í ný- liðnum júnímánuði. Umferðin jókst um 4,6 prósent frá því í júní í fyrra Faðir Dorritar Moussai- eff forsetafrúar, Shlomo Moussaieff, er látinn á nítugasta aldursári. Hann lést 29. júní sl. og var jarðsettur í Jerúsal- em í gær. Ólafur Ragnar Gríms- son var viðstaddur at- höfnina og flutti þar ræðu. Shlomo lætur eftir sig eiginkonu sína, Alisu, dætur þeirra; Dorrit, Ta- möru og Sharon og barnabörn. Shlomo rak keðju skartgripaversl- ana í Bretlandi og Sviss en lét af störfum fyrir aldurs sakir fyrir rúm- um áratug. Hann hafði alla tíð sér- staka ástríðu á fornmunum frá tím- um Biblíunnar og átti eitt stærsta einkasafn slíkra muna í heiminum. Shlomo átti litríkan feril að baki. Hann var næstelstur tólf barna en afi hans og nafni var einnig farsæll kaup- maður sem er talinn einn af stofnendum Bukharim-hverfisins í Jerúsalem. Faðir Shlomo, Rehavia, var einnig skartgripasali og fékk Shlomo þannig snemma innsýn í þá iðn. Hann barðist fyrir breska herinn í seinna stríði og fyrir sjálfstæðu Ísrael í stríðinu þar 1948. Þá var hann tek- inn til fanga af Jórdönum í eitt ár. Honum farnaðist þó vel í fangavist- inni, en í henni hóf hann að versla með fornmuni og efnaðist nokkuð á þeirri iðju. Shlomo Moussaieff Shlomo Moussaieff jarðaður í Jerúsalem
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.