Morgunblaðið - 02.07.2015, Side 26
SVIÐSLJÓS
Brynja D. Guðmundsd. Briem
brynjadogg@mbl.is
Undirbúningur fyrir eldfjalla- og
jarðskjálftamiðstöð á Hvolsvelli
hefur tafist og er fyrirsjáanlegt að
hún verði ekki opnuð vorið 2016.
„Opnuninni mun fyrirsjáanlega
seinka eitthvað, þetta er búið að
taka lengri tíma en við áformuðum
í upphafi. Opnunin verður allavega
ekki snemmsumars en ég vona að
við séum enn að horfa til 2016. Ég
er nokkuð bjartsýnn á það,“ segir
Ásbjörn Björgvinsson, fram-
kvæmdastjóri miðstöðvarinnar.
Ásbjörn segir hönnunarferlið
hafa tekið lengri tíma en áætlað
var en samningaumleitanir og við-
ræður séu enn í gangi við bygging-
arverktaka og miði vel. Hönnunar-
vinnan sé í sífelldri þróun en eftir
að samningar nást sé næsta skref
að klára verkfræðiteikningar,
sækja um byggingarleyfi og hefja
framkvæmdir. Vinnan taki sinn
tíma en taka þurfi tillit til sum-
arleyfa o.fl.
Fjármögnun langt komin
Ásbjörn segir fjármögnunarþátt-
inn að mestu frágenginn. „Það er
kominn meirihlutinn af þessu
hlutafé. Það hefur verið gefið vil-
yrði, að því gefnu að allt annað
gangi upp, um að byggingarfram-
kvæmdir og annað standist og falli
undir þau áform sem við höfum
kynnt. Við ljúkum ekki endanlega
viðræðum við bankastofnanir um
lán og annað fyrr en við erum búin
að semja við byggingarverktaka, en
hlutafjársöfnun hefur gengið afar
vel,“ segir hann.
Hann segir að það hafi komið
skemmtilega á óvart að tölur um
fjölda ferðamanna sem fara gegn-
um svæðið hafi verið áætlaðar full-
hóflega í viðskiptaáætlun. „Það er
miklu meiri umferð um svæðið en
við höfum gert ráð fyrir og það gef-
ur okkur byr undir báða vængi.
Það er þörf á aukinni afþreyingu
fyrir erlenda ferðamenn á landinu.
Ef ferðamenn hafa ekki nóg að
gera er ekki víst að þeim fjölgi jafn
hratt og verið hefur undanfarið,“
segir Ásbjörn.
Að sögn Ásbjörns er grundvöll-
urinn fyrir því að verkefnið gangi
svona vel sá góði vilji sem finna
megi hjá Rangárþingi eystra.
„Deiliskipulag og annað er tilbúið
hjá sveitarfélaginu, það hefur geng-
ið eftir og lítur vel út. Það er gott
að finna að það er samhljómur við
samfélagið fyrir austan, allir eru
sammála um þessa stefnu. Fólk
bíður spennt eftir að sjá eldfjalla-
miðstöðvarnar rísa upp úr jörðinni
og verða að þessum ævintýragarði
sem við ætlum að gera þarna.“
Opnun eldfjalla- og jarð-
skjálftamiðstöðvar seinkar
Eldfjallamiðstöð Á myndinni má sjá hvernig Eldfjalla- og jarðskjálftamiðstöðin kemur til með að líta út.
Undirbúningur hefur tafist en vonast er til að miðstöðin verði opnuð á næsta ári
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015
Þegar þú kaupir bökunardropa frá
Kötlu, styður þú fjölfötluð börn til náms.
Sunnusjóður hefur í meira en 30 ár
aukið námsmöguleika fjölfatlaðra
barna. Katla er helsti bakhjarl sjóðsins.
DROPAR SEM
LOFA GÓÐU
www.sunnusjodur.is www.katla.is/dropar
Eldfjalla- og jarðskjálftamiðstöðin við Hvolsvöll
verður fræðasetur með skemmtigarðsívafi. Í mið-
stöðinni verður boðið upp á ýmiskonar afþreyingu
en þar verður til dæmis hægt að upplifa eldgos, sjá
norðurljós, horfa ofan í jörðina með aðstoð
speglatækni, finna hita frá möttulstrók og fara í
jarðskjálftahermi.
Ásbjörn telur eldfjallamiðstöðina munu laða
að erlenda ferðamenn en þar verður einnig
gott úrval af hollum íslenskum mat. Áformað
sé að byggingin verði allt að 2.500 fermetrar
að flatarmáli og er vonast til þess að opnun
náist á árinu 2016.
Góð skemmtun í fræðslusetri
HÆGT AÐ UPPLIFA ELDGOS OG JARÐSKJÁLFTA
Ásbjörn
Björg-
vinsson
Yfir 250 hjúkr-
unarfræðinemar
á 1., 2. og 3. ári
við Háskóla Ís-
lands og Háskól-
ann á Akureyri
hyggjast ekki
ráða sig til starfa
sem hjúkr-
unarfræðingar
að lokinni út-
skrift nema betri
samningar náist. Þetta kemur fram
í yfirlýsingu sem íslenskir hjúkr-
unarnemar sendu fjölmiðlum og
heilbrigðisráðherra.
Segir þar að skortur á
hjúkrunarfræðingum verði óhjá-
kvæmilega meiri nema gripið verði
til róttækra aðgerða. „Dragi hjúkr-
unarfræðingar ekki uppsagnir sín-
ar til baka, fari þeir hjúkrunar-
fræðingar sem geta á eftirlaun og
ráði nýútskrifaðir hjúkrunar-
fræðingar sig ekki til starfa gæti
farið svo að allt að helmingur stétt-
arinnar verði óstarfandi eftir nokk-
ur ár,“ segir í yfirlýsingunni.
250 nemar ráða sig
ekki til starfa fáist
ekki betri kjör
Kjör Nemarnir vilja
róttækar aðgerðir.
Sigurður Ingi
Jóhannsson,
sjávarútvegs- og
landbún-
aðarráðherra,
hefur skipað
nýja verðlags-
nefnd búvara.
Ráðherra til-
nefndi Ólaf Frið-
riksson, sem
jafnframt verður formaður nefnd-
arinnar.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytinu.
Nefndin er skipuð til eins árs í
senn og eru tveir fulltrúar til-
nefndir af samtökun launþega,
tveir af Bændasamtökum Íslands
og tveir af Samtökum afurðastöðva
í mjólkurframleiðslu.
Samtök launþega ákváðu að nýta
sér ekki rétt sinn til tilnefningar og
féll það því í hlut ráðherra vinnu-
markaðar að tilnefna tvo fulltrúa í
nefndina
Ný verðlagsnefnd
búvara skipuð
Ólafur Friðriksson
Unnið er þessa dagana að end-
urbótum á flugvellinum á Gjögri í
Árneshreppi á Ströndum. Skipt er
um burðarlag vallarins, ný klæðning
lögð á flugbraut og lendingarljós
verða endurnýjuð. Það eru starfs-
menn á verkum Borgarverks hf. sem
annast framkvæmdir sem á að vera
lokið seinnipartinn í ágúst. „Þetta er
allstórt verkefni og við verðum
þarna með 5 til 10 karla í sumar,“
segir Óskar Sigvaldason, fram-
kvæmdastjóri Borgarverks. Flug-
brautin á Gjögri liggur frá norðri til
suðus og er 800 metra löng. Yfir
vetrartímann er þangað reglulegt
áætlunarflug tvisvar í viku. Er það
afar þýðingarmikið, enda er land-
leiðin úr Steingrímsfirði fljót að
teppast í snjóum á veturna og er yf-
irleitt lokuð langt fram á vor.
Tólf tímar á dag
„Verkið gengur vel. Þarna erum
við með fínan mannskap sem vinnur
oft tólf tíma á dag,“ segir Óskar Sig-
valdason sem lagði inn 95 milljóna
króna tilboð í verkið sem Isavia ohf.
gekk að. Í Árneshreppi segja menn
að endurbætt flugbraut verði fyrsti
spottinn þar í sveit með slitlagi.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Ívar Benediktsson
Flug Vinnuvélar við völlinn. Byrgisvíkurfjall sést handan Reykjafjarðar.
Endurbæta flugbraut
Framkvæmdir á Gjögri Slitlag í
Árneshreppi Borgarverk á staðnum