Morgunblaðið - 02.07.2015, Page 46
46 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015
Mikið úrval vélorfa - bensínmótor, rafmótor eða rafhlöðudrifin -
Vélorf
ÞÓR HF
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 -18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Róm. AFP. | Hópur kafara í landi
pastaréttanna og pestósins hefur
fundið upp leið til að rækta basil
neðansjávar og vonar að rækt-
unartilraunir hans leiði til byltingar
í krydd- og matjurtaframleiðslu á
ófrjóum strandsvæðum.
Hópurinn er undir forystu kaf-
arans Sergios Gamberini og starfar
í Liguria, ítölsku héraði sem er
þekkt fyrir stórbrotna strandlengju
og gómsætar pastasósur. Kaf-
ararnir hafa ræktað basil í stórum
plasthvolfum sem eru fest við
sjávarbotninn um 100 metra undan
ströndinni og átta metrum undir
sjávarborði. Ræktunartilraunin er
kölluð „Nemó-garðurinn“.
Gamberini byrjaði á því að nota
einfalda kúlu, setti í hana ker með
kryddjurtafræjum í safnhauga-
mold. Kafararnir hafa nú ræktað
basil í þrjú ár í neðansjávargarði
með þrjú „lífhvolf“ sem þeir mega
hafa í sjónum í þrjá mánuði á ári í
tilraunaskyni.
Gamberini segir að mikil upp-
gufun tryggi 80-90% rakastig inni í
plasthvolfunum og rakaþéttingin
skapi hentug skilyrði til ræktunar.
Þótt garðurinn sé átta metrum
undir sjávarborði sé sólarbirtan
nægileg til að tryggja Ijóstillífun,
efnaferlið þar sem blaðgræna virkj-
ar sólarorku til að framleiða líf-
ræna næringu úr koldíoxíði og
vatni.
Byrjunin lofar góðu
Gamberini segist nú hafa sannað
að hægt sé að beita þessari aðferð
en nú þurfi hann að sanna að hægt
sé að beita henni til að framleiða
krydd og grænmeti þannig að
ræktunin standi undir kostnaði.
„Ég veit ekki hvort hún á framtíð-
ina fyrir sér vegna þess að við þurf-
um að sanna að hún beri sig,“ sagði
hann. „Ef salatið, ræktað neðan-
jarðar, er of dýrt þá verður þessari
aðferð ekki beitt í framtíðinni.“
Gamberini segir þó að byrjunin
lofi góðu, basilplantan sem hann
ræktar neðansjávar sé mjög lauf-
þétt og henti mjög vel til fram-
leiðslu á ekta Leguria-pestói. „Til
lengri tíma litið gæti þetta verið
góð lausn fyrir ófrjó strandstæði.“
Stöðugur hiti í sjónum er helsti
kosturinn við neðansjávarræktun,
að sögn Giannis Fontanesi, sam-
starfsmanns Gamberinis. „Í sjónum
er hitamunur dags og nætur lítill.“
Plöntunum, sem eru ræktaðar
neðansjávar, stafar ekki hætta af
skordýrum og sníklum sem herja á
basilplöntur á landi í sumarhitanum
á Ítalíu.
Kafararnir hafa hafið ræktun á
salati í tilraunaskyni og ætla að
reyna að rækta sveppi, tómata og
baunaplöntu í sumar.
AFP
Nemó-garður Ítalski kafarinn Gianni Fontanesi kannar „lífhvolf“ í neðansjávargarði við strönd Liguria-héraðs á norðanverðri Ítalíu.
Jurtir ræktaðar neðansjávar
Kafarar vona að tilraunir þeirra
leiði til byltingar í matjurtaræktun
Hæfilegur raki Kafari kannar rakaþéttingu í einu „lífhvolfanna“.
Tugir manna biðu bana í hörðustu
árásum sem liðsmenn Ríkis íslams,
samtaka íslamista, hafa gert til
þessa á Sínaískaga í Egyptalandi.
Fyrstu fregnir hermdu að víga-
mennirnir hefðu orðið að minnsta
kosti 70 manns að bana. Flestir
þeirra sem létu lífið voru hermenn
en á meðal þeirra voru einnig nokkr-
ir óbreyttir borgarar, að sögn AFP.
Fréttaveitan hafði eftir hátt-
settum egypskum herforingja að
þetta væru hörðustu árásir sem liðs-
menn Ríkis íslams hefðu gert til
þessa í Egyptalandi. Árásarmenn-
irnir hefðu verið fleiri en í fyrri árás-
um og beitt öflugri vopnum. Þeir
beittu meðal annars bílsprengjum í
árásum á um fimmtán eftirlits-
stöðvar hermanna á Sínaískaga og
skutu sprengjum á lögreglustöð.
Hermt er að minnst 38 vígamenn
íslamistasamtakanna hafi legið í
valnum eftir átök við her- og lög-
reglumenn.
Hundruð hafa fallið
Að minnsta kosti 600 lögreglu- og
hermenn hafa beðið bana í Egypta-
landi í árásum íslamista frá því að
herinn steypti íslamistanum Moha-
med Morsi af stóli forseta fyrir
tveimur árum. Hundruð liðsmanna
samtaka hans, Bræðralags múslíma,
hafa látið lífið í aðgerðum hersins
gegn þeim og hundruð til viðbótar
hafa verið dæmd til dauða.
Tugir liggja
í valnum á
Sínaískaga
Mestu árásir Ríkis
íslams í Egyptalandi
Kínverjar hafa
stækkað síðustu
ár vegna auk-
innar hagsældar
en hún hefur
einnig orðið til
þess að þeir hafa
fitnað enn meira.
Um 9,6% fullorð-
inna Kínverja
voru of feit árið
2012, tvöfalt
fleiri en áratug áður. Meðalþyngd
fullorðinna kínverskra karla var
66,2 kíló árið 2012, 3,5 kílóum meiri
en tíu árum áður. Kínverskar kon-
ur þyngdust um 2,9 kíló að meðal-
tali á tímabilinu og meðalþyngd
þeirra var 57,3 kíló árið 2012.
Meðalhæð kínverskra karlmanna
var 167,1 cm og kvenna 155,8 árið
2012. Karlarnir hækkuðu um 0,4
cm og konurnar 0,7 cm á tíu árum,
að því er fram kemur í nýrri
skýrslu kínverskra heilbrigðisyfir-
valda.
KÍNA
Kínverska þjóðin
stækkar og fitnar
Kínversk börn í
megrunarátaki.
Stjórnvöld í
Bandaríkjunum
og Kúbu hafa
náð sam-
komulagi um að
bandarískt sendi-
ráð verði opnað í
Havana og kúb-
verskt í Was-
hington. Barack
Obama Banda-
ríkjaforseti stað-
festi þetta í yfirlýsingu í gær. Lönd-
in náðu samkomulagi fyrr á árinu
um að taka upp formlegt stjórn-
málasamband að nýju.
Bandarísk stjórnvöld slitu stjórn-
málasambandi við Kúbu og lokuðu
sendiráði sínu í Havana í janúar
1961, eftir byltinguna á Kúbu undir
forystu Fidels Castro 1959.
BANDARÍKIN OG KÚBA
Samið um að opna
sendiráð að nýju
Barack Obama
Bandaríkjaforseti.