Morgunblaðið - 02.07.2015, Page 55
MINNINGAR 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015
✝ Ragnheiður El-ín Jónsdóttir
Clark Cramer
fæddist á Kvía-
bryggju í Eyr-
arsveit 16. desem-
ber 1926. Hún lést á
sjúkrahúsi í Can-
ton, Ohio 8. júní
2015.
Foreldrar henn-
ar voru Jón Ólafs-
son og Hildur Sæ-
mundsdóttir. Systkini Elínar
eru Sigríður, f. 21. nóvember
1922, Kristfinnur, f. 19. maí
1924, d. 25. janúar 2007, Jó-
hanna, f. 21. mars 1928. Sam-
mæðra Svava Þórðardóttir, f.
13. maí 1930 og Málfríður Þórð-
ín átti 12 barnabörn, 32 barna-
barnabörn og fimm barnabarna-
barnabörn.
Elín flytur út til Ameríku
ásamt manni sínum og börnum
1945, búa þau þar til 1954 er þau
skildu, þá flutti Elín aftur til Ís-
lands með börnin sín sex.
Bjuggu þau í Keflavík og starf-
aði Elín á herstöðinni á Kefla-
víkurvelli á saumastofu og í
þvottahúsi. Elín flytur aftur til
Ameríku 1970 eftir að börnin
höfðu verið að flytja út aftur eitt
af öðru. 1981 giftist Elín Shel-
don L. Cramer, f. 29. júlí 1922,
d. 4. nóvember 2014, bjuggu þau
saman í Hollywood, Maryland til
æviloka. Elín starfaði á sauma-
stofu í herstöð í nágrenni við
heimilið og var einnig með
saumastofu heimafyrir og vann
ýmis önnur störf.
Minningarathöfn um Elínu
fór fram í Maryland 28. júní
2015.
ardóttir, f. 15. nóv-
ember 1933, d. 16.
september 2014.
Elín giftist Willi-
am Howard Clark
29. júlí 1943. Börn
þeirra: 1) Róbert
Jón Clark, f. 21. júlí
1943, d. 13. júní
2002. 2) Jóhanna
Guðrún Fortney, f.
3. janúar 1945. 3)
Hilda Louise
McMahon, f. 10. september
1946, d. 13. nóvember 2009. 4)
William Howard Clark, f. 22.
október 1947, d. 23. janúar 1970.
5) Edith Elín V. Spinner, f. 8.
ágúst 1949. 6) James Edward
Clark, f. 10. nóvember 1950. El-
Okkur langar að minnast Ellu
móðursystur og frænku í fáum
orðum en margs er að minnast.
Ella hafði gaman af að ferðast og
kom reglulega heim til Íslands að
heimsækja ættingja og vini á
ferðalögum sínum og kom þá
gjarnan færandi hendi með eitt-
hvað gott og fallegt, það var alltaf
eitthvað spennandi. Henni þótti
gaman að versla og þá sérstak-
lega fyrir litlu börnin í fjölskyld-
unni, barnaföt og þess háttar.
Það er óhætt að lýsa Ellu sem
glaðlyndri, gjafmildri og glys-
gjarnri konu sem naut þess að
klæða sig upp og með glingur og
hatt jafnvel. Það var gjarnan
slegið upp matarveislu þegar
fólkið kom saman hvort sem það
var hér á Íslandi eða þegar við
komum í heimsókn út til þeirra
og var þá mikið talað um mat og
uppskriftir og aðferðir. Það var
alltaf gaman að koma saman og
urðu samgöngur meiri eftir því
sem árin liðu og samskipti okkar
nánari með tímanum. Ella elskaði
íslenskan mat, bakaði hún oft ís-
lenskar pönnukökur og færði t.d.
nágrönnum og kirkjunni rjóma-
pönnukökur sem voru mjög vin-
sælar.
Ella var baráttukona sem
þrátt fyrir ýmis áföll, basl og
mótlæti á köflum og stóran
barnahóp stóð sterk af sér erfiða
tíma, hvetjandi, fylgin sér og
hafði skoðanir. Við minnumst
Ellu frænku okkar í Ameríku
með hlýju og þakklæti, minningin
lifir.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Ástar- og saknaðarkveðjur.
Marta og fjölskylda.
Ragnheiður Elín Jóns-
dóttir Clark Cramer
✝ Kristján K.Hall fæddist á
Blönduósi þann 2.
apríl 1935. Hann
lést á deild 11G á
Landspítalanum
við Hringbraut að
kvöldi 16. júní
2015.
Foreldrar Krist-
jáns eru Karl Theó-
dór Kristjánsson
Hall, f. á Blönduósi
3. júní 1911, d. 8. janúar 1945 og
Klara Jakobsdóttir Hall, f. á
Blönduósi 5. ágúst 1911, d. 7.
febrúar 1997.
Kristján átti eina systur, Jak-
obínu Guðnýju Hall Iaguessa, f.
19. júní 1936, d. 6. mars 2010.
Kristján kvæntist 26. október
1957 Eddu Konráðsdóttur, f. í
Reykjavík 4. apríl 1939. Þau
eignuðust 6 börn:1) Reynir Karl
Kristján Hall, f. 3. febrúar 1978,
maki Karen Edda Bergmann
Benediktsdóttir, f. 1982.
Kristján bjó fyrstu æviárin á
Blönduósi, en flutti ungur að ár-
um til Reykjavíkur með for-
eldrum sínum og systur. Að lok-
inni hefðbundinni
grunnskólagöngu fór hann í
Verzlunarskóla Íslands og út-
skrifaðist þaðan með versl-
unarpróf.
Kristján vann ýmis störf um
ævina, starfaði mikið sem bíl-
stjóri, bæði sem leigubílstjóri
hjá Steindóri og eins sem sendi-
herrabílstjóri hjá vesturþýska
sendiráðinu í Reykjavík. Mest-
alla starfsævi sína starfaði hann
sem bókari, m.a. hjá álverinu í
Straumsvík, var hjá Varnarlið-
inu á Keflavíkurflugvelli í 14 ár
og síðustu 15 starfsárin vann
hann hjá Olíuverzlun Íslands.
Hann lét af störfum hjá Olís árið
2003 vegna veikinda.
Útför Kristjáns fór fram í
kyrrþey frá Fossvogskapellu.
Hall, f. 4. janúar
1958, d. 17. febrúar
2014; 2) Íris Hall, f.
19. júlí 1961, henn-
ar synir: a) Almar
Örn Ívarsson, f.
1985 og b) Aron
Örn Ívarsson, f.
1986, dóttir b1) Íris
Ósk, f. 2010; 3) Arn-
ar Hall, f. 5. júní
1966, hans synir: a)
Jóhann Bjarki, f.
1992, b) Grétar, f. 1998 og c)
Valgeir Þór, f. 2000; 4) Þyri
Hall, f. 15. nóvember 1970, maki
Eyþór Gunnarsson, f. 1960,
þeirra börn: a) Haukur, f. 1992,
b) Orri, f. 1994, c) Edda, f. 2000
og d) Erla, f. 2012; 5) Konráð
Hall, f. 13. nóvember 1973, maki
Rakel Jóhannsdóttir, f. 1977,
þeirra börn: a) Flóki Kristján, f.
2004 og b) Hilda Lóa, f. 2010; 6)
Elsku hjartans Kiddi minn.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Ástarþakkir fyrir allt.
Þín
Edda.
Það er margar minningar sem
koma upp í hugann þegar ég
hugsa um hann pabba minn.
Hann var mikið snyrtimenni, ár-
risull og bar hag fjölskyldunnar
ávallt fyrir brjósti. Hann var ein-
staklega góður við barnabörnin
og elskaði fátt meira en að fá þau
í heimsókn, enda urðu þau ekki
svikin af þeim heimsóknum;
fengu að heyra missannar trölla-
sögur, fóru yfirleitt heim með
smáaur í vasa og nammi frá
ömmu Eddu. Mínar fyrstu minn-
ingar af pabba eru þegar hann
var að gera við bíla úti á plani, í
hvernig veðri sem var. Hann
hafði einstakt dálæti á Citroën-
bílum en þeir áttu það til að vera
ansi bilanagjarnir, en það var
engin fyrirstaða, þetta voru hinir
mestu gæðagripir í augum
pabba. Og ef það varð hraða-
hindrun á vegi okkar var frekar
bætt í hraðann og fjöðrunin
reynd til hins ýtrasta, þetta gátu
engir aðrir en Citroën. Á mínum
yngri árum vann hann uppi á velli
hjá hernum og sá staður var
sveipaður miklum töfraljóma, ég
gleymi því aldrei þegar ég fékk
að fara með honum í vinnuna, lík-
lega átta ára gamall. Þarna voru
sælgætissjálfssalar, teiknimynd-
ir í sjónvarpi um miðjan dag og
þar hitti ég í fyrsta skipti þel-
dökkan mann. Eftir fermingu út-
vegaði hann mér mína fyrstu
vinnu, og þá naut ég þess að
vinna í sama fyrirtæki og hann í
eitt sumar.
Við pabbi fórum saman og
keyptum minn fyrsta bíl og á 17
ára afmælisdaginn fékk ég bíl-
prófið, þá var farið á rúntinn. Ég
náði þó aðeins að keyra út botn-
langann, en þá missti ég aftur-
hjóladrifinn bílinn í tómt rugl í
hálkunni og klessti á staur. Pabbi
gat ekki leynt vonbrigðunum
með þennan vonlausa árangur
hjá mér, og næstu mánuðir voru
markaðir af lélegri frammistöðu í
umferðinni.
Hann var samt alltaf til í að að-
stoða mig og hjálpa en líklega
hefði ég ekki átt að fá bílpróf fyrr
en 25 ára. En þarna er pabba rétt
lýst, hann þreyttist ekki á að taka
upp hanskann fyrir okkur og síð-
ar átti hann stóran þátt í því að
bjarga mínum námsferli í
menntaskóla með því að redda
mér endurendurupptektarpróf-
um í þeim fögum sem ég hafði tví-
fallið í og var á góðri leið með að
vera rekinn úr skólanum. Ég hef
alltaf verið honum óendanlega
þakklátur fyrir það.
Pabbi var gríðarlega mikill
græjukall. Hann var alltaf að
pæla í nýjum sjónvörpum, heima-
bíógræjum, tölvum og símum.
Allt fram á síðasta dag var hann
með iPhone-inn að spjalla við
okkur systkinin á Facebook, taka
við tölvupósti í símann, senda
myndir af innkaupalistum, versla
á netinu, nokkuð sem flestir um
áttrætt vita ekki hvað er. Hann
prentaði svo út nýjustu fjöl-
skyldumyndirnar af Facebook og
hengdi upp á ísskáp til að sýna
mömmu. Ég vona að ég verði líka
að spá í nýjustu tækni ef ég næ
þessum aldri.
Pabbi barðist hetjulega við
krabbamein síðustu 12 árin og
hann steig sterkur upp úr hverj-
um veikindunum á fætur öðrum,
þvílíkt hörkutól sem hann var í
þessari baráttu.
Að lokum hlaut þó að koma að
því að hann léti undan. Hans dvöl
á meðal okkar lauk á fallegu sum-
arkvöldi, núna er hann kominn til
hans Reynis okkar. Pabbi minn,
afi Kiddi, takk fyrir allt og allt.
Konráð Hall.
Elsku pabbi okkar er dáinn.
Þegar við sitjum hér og minn-
umst pabba rifjast upp allar
skemmtilegu stundirnar sem við
áttum með honum. Öll ferðalögin,
fróðleikurinn um landið og sög-
urnar. Hversu góður hann var,
jákvæður og réttsýnn.
Pabbi var mjög laghentur og
leysti öll verkefni, stór og smá, af
kostgæfni.
Hann var mjög listrænn og
teiknaði mikið á árum áður, einn-
ig hafði hann gaman af að skraut-
skrifa og liggja eftir hann ófáar
biblíur, bækur og tækifæriskort
sem hann tók að sér að skrifa inn
í. Hann var ættfróður mjög og
þótti gaman að því að fræða okk-
ur systkinin um ættir okkar.
Pabbi og mamma hafa eytt síð-
ustu 60 árum saman, og eignuð-
ust þau okkur systkinin 6. Elsti
bróðir okkar lést í fyrra og var
það okkur öllum erfiður tími. Tók
það sérstaklega mikið á pabba
þar sem hann lá inni á spítala á
sama tíma.
Barnabörnin eru orðin 12 auk
langafabarns og voru þau honum
öll undurkær. Afi Kiddi hafði ein-
staklega gaman af því að segja
krökkunum sögur og lauma að
þeim ýmsu góðgæti og mátti vart
á milli sjá hvort honum eða
krökkunum fannst meira gaman.
Pabbi hafði mikinn áhuga á fé-
lagsstörfum alla tíð. Sem ungur
maður var hann í skátunum, ferð-
aðist með þeim innanlands og ut-
an. Hann var formaður starfs-
mannafélags Olís í nokkur ár og
starfaði mikið í kringum AA-
samtökin, m.a. stóð hann fyrir
stofnun Grafarvogsdeildar sam-
takanna.
Pabbi barðist í mörg ár við
krabbamein, átti góðan tíma á
milli meðferða, svo góðan að oft
voru veikindin ekki rædd í langan
tíma.
Alltaf var hann jafn bjartsýnn
og leit á hverja lyfjameðferð sem
verkefni sem þyrfti að leysa, og
það gerði hann. Frá upphafi veik-
inda pabba hefur Sigrún Reykdal
læknir verið hans stoð og stytta
og viljum við færa henni hug-
heilar þakkir fyrir. Einnig viljum
við þakka starfsfólkinu á blóð-
meinadeild 11G á Landspítalan-
um við Hringbraut fyrir einstaka
umhyggju í garð pabba og okkar
allra.
Englar Guðs þér yfir vaki og verndi
pabbi minn
vegir okkar skiljast núna, við sjáumst
ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í hjörtum hér
því hamingjuna áttum við með þér.
Þökkum kærleika og elsku, þökkum
virðingu og trú
þökkum allt sem af þér gafstu, okkar
ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góð-
leg var þín lund
og gaman var að koma á þinn fund.
Með englum Guðs nú leikur þú og lítur
okkar til
nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það
ég skil.
Og þegar geislar sólar um gluggann
skína inn
þá gleður okkur minning þín, elsku
pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú
á braut
gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem
förunaut.
Og ferðirnar sem förum við um landið
út og inn
er fjársjóður okkar pabbi minn.
Hvíl þú í friði, elsku pabbi okk-
ar.
Þínar dætur,
Íris og Þyri.
Kristján K. Hall
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
KORMÁKUR KJARTANSSON
loftskeytamaður,
Brúnavegi 9,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum 26. júní.
Útför hans verður frá Áskirkju föstudaginn 3. júlí kl. 13.
.
Hólmfríður Friðsteinsdóttir,
Ingvi Þór Kormáksson, Dagrún Ársælsdóttir,
Ársæll Þór Ingvason, Hólmfríður Sunna,
Þórður Kormáksson.
Ástkær sambýliskona mín, móðir, amma,
systir og mágkona,
GUÐLAUG ÁGÚSTA ÞORKELSDÓTTIR,
Æsuborgum 14,
Reykjavík,
lést á heimili sínu 25. júní.
Útför hennar verður frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 3. júlí kl. 13.
.
Hafsteinn Auðunn Hafsteinsson,
Þorkell Þórður Pálsson,
barnabarn, systkini og makar.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRGVIN MAGNÚSSON
vélstjóri,
Hraunbæ 103,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 21. júní. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna. Þökkum sýnda samúð.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
.
Áslaug Birna Einarsdóttir.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
HELGU MAGNÚSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks
á deild 13G á Landspítalanum og HSS og
Heimahjúkrunar HSS fyrir einstaka
umönnun.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
.
Þórður Bergmann Þórðarson.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HULDA ÞORGRÍMSDÓTTIR,
Hraunvangi 3,
Hafnarfirði,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
27. júní, verður jarðsungin
frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 9. júlí kl. 13.
.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gunnar Hermannsson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið
í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóð-
ina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Minningargreinar