Morgunblaðið - 02.07.2015, Side 72
72 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015
Jón Sigurður Gunnarsson fagnar í dag 23 ára afmæli sínu. Að-spurður segist hann ekki búast við að geta haldið upp á afmæliðþví að í dag liggur leið hans til Vestmannaeyja, þar sem hann
mun skemmta ásamt félögum sínum í Sirkus Íslands.
Í sumar stefnir sirkusinn á að ferðast um landið. „Við verðum í
Vestmannaeyjum fram á sunnudag og svo munum við fara til Blöndu-
óss, Siglufjarðar og Fáskrúðsfjarðar eftir það,“ segir Jón glaður í
bragði í samtali við Morgunblaðið.
Eftirminnilegasta afmælisdaginn segir Jón hafa átt sér stað fyrir
þremur árum þegar hann fagnaði tvítugsafmæli sínu. „Það var ein-
staklega góður afmælisdagur því ég hélt vel heppnaða veislu þar sem
vinir mínir gátu fagnað tímamótunum með mér.“
Að sumri liðnu setur Jón stefnuna á borgina Glasgow í Skotlandi
þar sem fram mun fara á heimsmeistaramótið í fimleikum, en Jón hef-
ur átt sæti í fimleikalandsliði Íslands frá árinu 2009. „Ég byrjaði í
unglingalandsliðum þegar ég var 13-14 ára. Síðan keppti ég fyrst í
fullorðinsflokki fyrir sex árum,“ segir Jón og bætir við að hann búist
við að mótið verði erfitt að þessu sinni.
„Þetta er auðvitað mjög stórt mót auk þess sem þetta er síðasta
mótið fyrir Ólympíuleikana sem verða næsta sumar. Það besta sem
gæti gerst væri að ná að uppfylla skilyrðin til að keppa á úrtökumóti
fyrir Ólympíuleikana.“
Morgunblaðið/Ómar
Afmælisbarnið Jón mun ferðast um Ísland í sumar með Sirkus Íslands.
Engin veisla, bara
sirkus og fimleikar
Jón Sigurður Gunnarsson er 23 ára í dag
Á
gústa Guðmundsdóttir
fæddist í húsi Þuríðar
Þórarinsdóttur lang-
ömmu sinnar á Hverf-
isgötu 32 2. júlí 1945.
Þaðan flutti hún tveggja ára gömul á
Vesturgötu 46. Æskuslóðirnar voru
gamli Vesturbærinn með Örfirisey,
hafnarsvæðið og miðbærinn. Á
sumrin bjó fjölskyldan í sumar-
bústað sínum í Grafarvogi þar sem
móðurforeldrar hennar áttu einnig
bústað. „Á báðum heimilum var
stöðug nýsköpun í gangi, afi Þór-
arinn samdi tónlist, pabbi og félagar
hans tefldu og mamma sinnti list-
sköpun. Mér finnst ég hafa verið
sérlega lánsöm að fá að alast upp hjá
skapandi fólki. Pabbi var góður
skákmaður og á Vesturgötunni, sem
og í sumarbústaðnum í Grafarvogi,
tefldu flestir þekktustu skákmenn
landsins, ungir sem aldnir. Þangað
komu líka margir erlendir skák-
menn.“
Ágústa bjó í Noregi, Kanada og
Bandaríkjunum ásamt eiginmanni
og börnum á árunum 1964-1971 áður
en hún hóf nám við öldungadeild
MH. Hún segir að þessi tími að
heiman hafi verið gott og mótandi
þroskatímabil í lífi sínu.
Ágústa gekk í Melaskóla, Gaggó
Vest, Öldungadeild MH, lauk BS-
prófi í matvælafræði (1980), fram-
haldsnámi í lífefnafræði (1983) frá
Háskóla Íslands og doktorsgráðu í
örverufræði og sameindalíffræði frá
University of Virginia í Charlottes-
ville í Bandaríkjunum (1984-1988).
Ágústa hefur starfað við rann-
sóknir frá árinu 1980, á Raunvís-
indastofnun Háskólans 1980-1984 og
síðar en einnig í doktorsnámi 1984-
1988. Hún var skipuð dósent í mat-
vælaefnafræði árið 1989 og prófess-
or í sömu grein árið 1993. Jafnframt
hefur hún verið rannsóknastjóri líf-
tæknifyrirtækisins Zymetech um
árabil. Hún hefur hlotið fjölmarga
rannsókna- og þróunarstyrki frá
innlendum og erlendum rann-
sóknasjóðum allt frá árinu 1989.
Zymetech hlaut Nýsköpunarverð-
laun Íslands árið 2015.
Ágústa er höfundur fjölda rit-
rýndra vísindagreina og bókarkafla,
einkaleyfa og hefur flutt erindi um
vísindi, nýsköpun og önnur málefni.
Ásamt kennslu BS-nema hefur
Ágústa leiðbeint fjölda meistara- og
doktorsnema í rannsóknaverk-
efnum.
Ágústa er formaður stjórnar
Landsbókasafns Háskólabókasafns,
forseti Rótarýklúbbs Reykjavíkur,
formaður vísindaráðs Zymetech,
formaður stjórnar rannsóknastofu í
næringarfræði LSH/HÍ, í stjórn
Miðstöðvar framhaldsnáms við Há-
skóla Íslands, í Fagráði iðnaðar og
þjónustu hjá Íslandsstofu, í stjórn
Matís, í stjórn Hátækni- og sprota-
vettvangs hjá Samtökum iðnaðarins.
Auk þess situr hún í stjórn Félags
sjálfstæðismanna í Nes- og Mela-
hverfi. Ágústa var áður m.a. formað-
ur Samtaka íslenskra líftæknifyr-
irtækja, sat í stjórn Nýsköpunar-
sjóðs atvinnulífsins og Manneldis-
ráði.
Helstu áhugamál Ágústu tengjast
störfum hennar í vísindum, tækni-
Ágústa Guðmundsdóttir, prófessor og rannsóknastjóri – 70 ára
Prófessorinn „Starfið við HÍ hefur verið sérlega gefandi, áhugavert og skemmtilegt. Samskiptin við nemendur
mína og samstarfsfólk á öllum sviðum skólans hefur sannarlega veitt mér mikla gleði og innblástur.“
Lánsöm að hafa alist
upp hjá skapandi fólki
Hafnarfjörður Magnús
Darri Hallgrímsson fædd-
ist á Landspítalanum í
Reykjavík 21. ágúst 2014.
Hann vó 3.740 g og var
51,5 cm langur. Foreldrar
hans eru Hallgrímur
Ólafsson og Matthildur
Magnúsdóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is