Morgunblaðið - 02.07.2015, Blaðsíða 84
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég kynntist Múmínfjölskyldunni
fyrst fyrir fjórum árum þegar ég las
fyrstu teiknimyndabókina um hana
sem hafði komið út í Frakklandi árið
2007. Ég hef því ekki, eins og margir,
verið aðdáandi frá unga aldri. Ég er
hins vegar alltaf að leita að góðu efni
til að auðga teiknimyndaflóruna hér-
lendis og fannst því tilvalið að gefa út
fyrstu Múmínmyndasögurnar í ár
þegar þess er minnst að 70 ár eru síð-
an Tove Jansson sendi frá sér sína
fyrstu skáldsögu um Múmín-
fjölskylduna,“ segir Jean Antoine Po-
socco, sem á og rekur Frosk útgáfu.
Alls 73 Múmínsögur á 21 ári
Útgáfufyrirtæki hans sendi nýver-
ið frá sér tvær teiknimyndasögur um
Múmínfjölskylduna sem nefnast
Múmínfjölskyldan á Rívíerunni (sag-
an er númer 3 í röðinni) og Múmín-
snáðinn verður ástfanginn (númer 9)
í þýðingu Anítu K. Jónsson, en geta
má þess að í fyrra var frumsýnd
frönsk/finnsk teiknimynd í fullri
lengd sem byggir á fyrrnefndu sög-
unni. „Sú mynd hefur enn ekki verið
sýnd hérlendis en verður það von-
andi,“ segir Jean og tekur fram að þá
sé gaman að hafa geta gefið bókina út
á undan bíómyndinni.
Teiknimyndasögurnar samdi Tove
Jansson á árunum 1955 og 1956, en á
fimm ára tímabili frá 1954 til 1959
samdi Jansson teiknimyndasögur
fyrir fullorðna um Múmínfjölskyld-
una sem birtust upphaflega í breska
dagblaðinu Evening News en rötuðu
einnig víðar. Þegar vinsældir teikni-
myndanna náði hámarki voru þær
birtar í yfir 120 dagblöðum í meira en
40 löndum og áætlað er að 20 milljón
lesendur hafi lesið þær daglega, en
engin önnur finnsk teiknimyndasería
hefur náð annarri eins útbreiðslu. Á
árunum frá 1954 til 1958 samdi Tove
Jansson alls 18 teiknimyndasögur en
á árinu 1959 samdi hún þrjár í
samvinnu við bróður sinn Lars
Jansson, sem í framhaldinu tók við
skrifunum og samdi fram til ársins
1975 alls 52 sögur.
Alls urðu teiknimyndasögur
þeirra systkina því 73 talsins, en
fyrsta 41 sagan hefur verið endur-
útgefin í alls níu bókum í A4-broti á
árunum 2006 til 2014 auk þess sem
stakar sögur hafa verið gefnar út í
A5-broti. „Um jólin er væntanleg hjá
Froski fyrsta bókin í seríunni í A4-
brotinu, sem inniheldur fyrstu fjórar
teiknimyndasögur Tove,“ segir Jean
og bendir á að þær sögur séu svart/
hvítar meðan sögurnar í A5
brotinu hafi verið litaðar. „Ég
stefni síðan að því að gefa út
tvær bækur í A5-brotinu
strax á næsta ári,“ segir
Jean.
Viggó viðutan snýr aftur
Nýverið sendi Froskur einnig frá
sér sína fyrstu bók um Viggó viðutan,
sem kemur úr smiðju André Fran-
quin eins og Svalur og Valur sem
Froskur hefur gefið út síðustu miss-
eri. Um er að ræða bók númer 4 sem
nefnist Viggó viðutan – Gengið af
göflunum og þýdd er af Anítu K.
Jónsson. „Bækurnar um Viggó við-
utan komu fyrst út á íslensku á ár-
unum 1978-1988 á vegum Iðunnar,
alls tólf bækur. Þar var sögum Fran-
quin raðað í tilviljunarkennda röð,
líkt og við átti um útgáfuna erlendis.
Ekki alls fyrir löngu voru Viggó-
bækur gefnar aftur út í Belgíu og
Frakklandi sem innihalda allar sög-
urnar sem Franquin teiknaði í réttri
tímaröð, en alls eru bækurnar nítján
talsins,“ segir Jean til útskýringar og
tekur fram að hann hafi þegar fengið
fyrirspurn frá eldheitum aðdáanda
Viggóbókanna um það hvers vegna
sögurnar í bókum Frosks séu ekki
þær sömu og í sömu röð og í bókum
Iðunnar, sem löngu eru ófáanlegar
hérlendis.
Athygli vekur að kápan á Viggó-
bókunum er mött en ekki glans. „Ég
valdi líka að hafa kápuna matta á Ást-
ríksbókinni sem ég gaf út í fyrra. Mér
fannst það koma svo vel út og gera
bókina miklu eigulegri sem bók en
þegar teiknimyndabækur eru glans-
andi og æpandi,“ segir Jean og upp-
lýsir að von sé á nýrri Ástríksbók eft-
ir René Goscinny og Albert Uderzo
fyrir jólin. „Í fyrra gaf ég út Ástrík og
víkingana, sem var númer 9 úr
smiðju Goscinny og Uderzo, en í ár
gef ég út Ástrík og Kleópötru, sem er
númer 6 í röðinni. Fyrir jólin eru
einnig væntanlegar tvær bækur um
Sval og Val, önnur er alveg ný og hin
er eldri. Markmiðið er að geta árlega
gefið út bæði gamalt og nýtt efni um
Ástrík og Sval og Val.“
Langar að bjóða upp á fjöl-
breyttara efni fyrir fullorðna
Spurður hvort hann skynji aukinn
áhuga á teiknimyndasögum hér-
lendis svarar Jean því játandi. „Ég
fæ mjög jákvæð viðbrögð við því að
gefa út teiknimyndasögur á íslensku.
Margir eru ánægðir að geta lesið
þessar bækur á eigin tungumáli. Mér
finnst mjög mikilvægt að augða flór-
una og bjóða ekki bara upp á belg-
ískar sögur úr smiðju Franquin,
Goscinny og Uderzo. Þess vegna
finnst mér svo gaman að geta bætt
Jansson í hópinn. Í næstu viku bætist
síðan við bókin Skósveinarnir – Ban-
ana eftir Renaud Collin og Didier Ah-
Koon, en skósveinarnir eru betur
þekktir sem „minions“ úr teikni-
myndinni Aulinn ég,“ segir Jean og
tekur fram að snemma á næsta ári sé
væntanleg fjórða bókin um Tíma-
flakkarana og fjórða bókin um Lóu.
„Á næsta ári væri líka gaman að
kynna til sögunnar nýja bók með
stelpu í aðalhlutverki. Ég hefði einnig
áhuga á að bjóða upp á fjölbreyttara
efni fyrir fullorðna lesendur, en sá
markaður er hins vegar mun minni.
Það er alltaf gaman að kynna eitt-
hvert nýtt efni fyrir lesendum og út-
gefendur verða að taka áhættu með
nýtt efni. Það er ekki nóg að bjóða
bara upp á velþekkt efni, en auðvitað
er það að lokum lesandinn sem ræð-
ur.“
„Ég fæ mjög
jákvæð
viðbrögð“
Froskur útgáfa gefur út teikni-
myndabækur um Múmínfjölskylduna
„Alltaf að leita að góðu efni til að
auðga teiknimyndaflóruna hérlendis“
Morgunblaðið/Kristinn
Áhætta „Það er alltaf gaman að kynna eitthvert nýtt efni fyrir lesendum og útgefendur verða að taka áhættu með
nýtt efni. Það er ekki nóg að bjóða bara upp á velþekkt efni,“ segir Jean Antoine Posocco bókaútgefandi.
Á ströndinni Brot úr Múmínfjölskyldunni á Rívíerunni eftir Tove Jansson.
Nýtt í bland við gamalt Kápur
Múmín-bókanna tveggja ásamt
Viggó viðutan og Skósveinunum.
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Ert þú búin að prófa
nýja súrdeigsbrauðið okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
84 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2015