Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2008, Page 10

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2008, Page 10
astliðin tuttugu ár. Tilgangurinn með því á þessum tímamótum er fyrst og fremst að benda á þann mikla brunn þekkingar og fræða sem áfram er hægt að sækja í þar sem öll heftin eru enn fáanleg. Nýjir áskrifendur geta því eign- ast Ritröðina í heild sinni og er það von ritstjórnar að glæða megi áhuga fleiri á Ritröðinni með því að gera þetta efni sýnilegt með þessum hætti. Fyrstu tvær greinar þessa heftis koma frá erlendum guðfræðiprófessorum sem sóttu Island heim fyrr á árinu. Sú fyrri fjallar um trú, trúleysi og guð- leysi og í samtímanum og byggir á fyrirlestri enska prófessorsins Alister E. McGrath. Óhætt er að fullyrða að það efni hefur verið ofarlega á baugi bæði hérlendis og eriendis um nokkra hríð. Síðari erlenda greinin sem skrifuð er af bandaríska prófessornum Gordon W. Lathrop fjallar um hlutverk prests- ins sem leiðtoga í samtímanum með vísun í Nýja testamentið og til þeirrar gagnrýni sem þar kemur fram á leiðtogahlutverkið. Gordon Lathrop sem er lútherskur sérfræðingur í lítúrgískum fræðum hélt námskeið á vegum guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og þjóðkirkjunnar síðastliðið sumar í Skálholti en hann hefur oft komið til Islands á liðnum árum, haldið nám- skeið og flutt fyrirlestra. Sagnfræðingurinn Auður Ingvarsdóttir ræðir hvernig merkja megi breyt- ingar á kristnum trúarskilningi, í átt að meiri réttrúnaði, eftir því sem lengra leið frá lögleiðingu kristins siðar í grein sinni „Kristni magnast - ritskoðun og bragarbót á miðöldum“. Ásdís Egilsdóttir, dósent í íslenskri miðaldasögu, fjallar um kraftaverkasögur og ljóð sem tengjast Maríu mey í greininni „Drottning dýrðar“. Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor í gamlatestament- isfræðum, veltir fyrir sér hvort og þá hvers konar guðfræðileg hugsun liggi til grundvallar niðurröðun sálmanna í Saltaranum í greininni „Frá leiðsögn til lofsöngs“. Hjalti Hugason, prófessor í kirkjusögu, ræðir um vísanir og lífssýn í ljóðum Snorra Hjartarsonar í greininni „Blær vertu, ljóð mitt, í sefmu við Styx“. Sr. Sigurður Árni Þórðarson fjallar um guðsmyndir í Vídalínspostillu í greininni „Guð og Vídalínspostilla". Að lokum skrifar Bjarni Randver Sigurvinsson, mastersnemi í guðfræði, ítarlegan ritdóm um bókina Ranghugmyndir Richards Dwarkins eftir Alistair McGrath og Joanna Collicut McGrath. Hér er því um fjölbreytilegt efni að ræða og er það von mín að lesendur finni allir eitthvað við sitt hæfi. Sólveig Anna Bóasdóttir ritstjóri 8
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.