Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Page 12

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Page 12
Múlaþing Eiríkur Sigurðsson 1976. Jón segir þar um fyrsta lag Inga: „Eitt sumar á unglingsárum sínum var Ingi við vegavinnu á Fljótsdalsheiði. Það vakti athygli að hann hafði í farangri sínum, fyrir utan venjulegt hafurtask vega- vinnupilta, tösku eina mikla. 1 henni reynd- ist vera lítið ferðaorgel, sem faðir hans hafði gefið honum. Það er haft fyrir satt að þarna í heiðinni og við þetta orgel hafi orðið til fyrsta lag hans sem víðkunnugt varð „Ó, blessuð vertu sumarsól“, við Ijóð Páls Ólafssonar. Ingi mun síðan strax hafa æft lagið með félögum sínum þarna í tjöld- unum og um næstu helgi fór allur hópurinn til kirkju á Valþjófsstað. Þar var þá prestur séra Þórarinn Þórarinsson, faðir þess Þórarins skólastjóra, sem setti þessa samkomu. Óll fjölskylda séra Þórarins var mjög söngvin, og hefur vafalaust fagnaðþví afheilum hug, þegar þetta nýja og Ijúfa lag barst henni óvœnt ofan úr heiðinni. Það var fyrst œft inni í stofu á Valþjófsstað; en eftir messu á sunnudaginn var kirkjuorgelið flutt út á tún, og heimafólk og kirkjugestir tóku lagið í blessaðri sumarsólinni þarna undir kirkjuveggnum. Lagið var prentað í tímaritinu Óðni, sem Þorsteinn skáld Gíslason gaf út, og síðar; árið 1915, þegar Ingi var á 23. ári, birtist það í Islenzku söngvasafni þeirra Sigfúsar Einarssonar og Halldórs Jónassonar frá Eiðum, en það safnfór inn á hvert heimili í landinu, þar sem nokkuð var sungið eða spil- að. Síðan hefur lagið verið á hvers manns vörum, og ég held það láti nærri, að það megi kallast gallalaus perla. “ Og enn bætir Jón við: „Ingi var enn í Verslunarskólanum þegar hann samdi „Ó, blessuð vertu sumarsól". Eftir hann lauk námi þar 1913, var hann um hríð á Seyðisfirði og tók þá við stjórn Karlakórsins Braga af Kristjáni Kristjáns- syni. “ Eftir þessu að dæma bendir ártalið 1913 til þess að Ingi hafi verið um eða innan við tvítugsaldur þegar hann samdi margnefnt lag, því árið 1913 varð hann 21 árs. Hér að framan eru framkomnar frásagnir tveggja heiðursmanna um fyrsta lagið „sem vakti athygli“ segir Eirrkur en „fyrsta lag hans, sem víðkunnugt varð“ segir Jón, en báðir nefna þeir þar til lagið „O, blessuð vertu sumarsór. Það felst því í orðum beggja að Ingi muni, eða kunni að hafa gert einhver önnur og minni háttar lög á undan þessu. Það má nærri geta, eftir tímasetn- ingum, sem þeir Eiríkur og Jón setja, hvenær fyrsta lag Inga varð til, „15 ára gamall“ segir Eiríkur eða árið 1907, „á unglingsárum sínum“ segir Jón, eða á þeim árum sem Ingi var við nám í Verslunarskólanum, (en þar lauk hann námi 1913, þá á 21. ári). Vissulega hlýtur annar eins snillingur í laga- smíði, og Ingi var, að hafa byrjað ungur, já 10
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.