Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Page 24

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Page 24
Múlaþing þessa þjóðhátíð sem tileinkað væri Austur- landi. Tíminn var orðinn afar stuttur til þess- ara andlegu starfa. Fyrst þurfti að semja ljóðið og síðan lagið og einhver tími myndi fara í að æfa lagið til flutnings á hátíðinni. Hvorki Sigurður né Ingi höfnuðu alfarið þessari hugmynd og var hún þó vissulega freistandi fyrir báða. Bara að tíminn væri lengri til starfa, þá væri þetta auðsótt til þeirra en svo var nú ekki. Það var aðeins tæp vika til þjóðhátíðar. Sigurður og Ingi ræddu málið sín á milli í skyndi, fóru svo á fund formanns hátíðarnefndar, Sveins Arnasonar, yfir- fiskmatsmanns, og töldu tímann of nauman. En við svo búið varð að standa, tímanum var ekki hægt að breyta úr því sem komið var. Sagan segir að þá hafi nefndarformaður brugðið á það ráð að heita þeim hvorum um sig, Sigurði og Inga, 2 pelum af spíritus ef þeir tækju verkið að sér, þó með þeim skil- yrðum að þeir fengju annan pelann strax, áður en þeir tækju til starfa en hinn að verki loknu, ef það stæðist mat þar til kjörinnar dómnefndar. Annar fyrirvari var sá að þegar Sigurður hafði skilað ljóði sínu, og skyldi hann gera það strax að verki loknu, þá átti dómnefndin að fjalla um það hvort það stæðist mat hennar til flutnings á hátíðunum og ef svo yrði þá væri Inga strax tilkynnt það. A þessi skilyrði féllust bæði skáldin. Þeir hétu að reyna við verkefnið þó ekki vegna pelanna heldur af áhuga. Nú þurfti að bregðast skjótt við. Veðurblíða var um þessar mundir. Strax eftir að samið var um tilraun- ina, sem var seinni hluta mánudagsins 1. ágúst, hélt Sigurður út á Háubakka svonefnda sem eru milli Fjarðaröldu og Vestdalseyrar. Hafði hann þá verið búinn að hugsa efnislega um ljóðið eftir að beiðnin barst um samningu þess. Hann tók með sér þann hluta skálda- launanna sem greiddur var fyrir fram, segir sagan. Úti á Háubökkum settist Sigurður niður á blómum skrýddum bala, í logni og sólskini. Við augum hans blasti Strandar- tindur handan fjarðarins í allri sinni tign og fram undan lá fjörðurinn spegilsléttur, í glampandi sól og tignarleg umgerð fjalla þessa veðursæla fjarðar, fjarðarmynnið og hafið blátt, byggðin út með firðinum beggja vegna að nokkm. Kaupstaðurinn handan fjarðar, undan Strandartindi og Sölvabotnum, svo og Fjarðaraldan undan Bjólfi við fjarðar- botninn, Suðurfjallgarðurinn með Dagmála- tindi og vestar Litlitindur, Gullþúfa, Mið- degistindur, Nónstindur, Miðaftanstindur, allt eyktamörk frá landnámsjörðinni Firði, Fjallsendi, Gagnheiði og Fjarðardalur, svo eitthvað sé nefnt. Allt þetta blasti við augum skáldsins og meira til, hinir undraverðu Þrítindar í Strandarfjalli utanverðu. Ekki má gleyma hinum fögru fossum Fjarðarár sem eru um 20 talsins frá Efri-Staf að Fjarðar- selsfossi sem er neðsti fossinn í ánni. Fossar þessir hafa óefað blasað við innri sjónum skáldsins þegar hann orti ljóðið, ásamt öðrum fossum Austurlands, þó ekki sæjust þeir allir af Háubökkum. En nóg um náttúrulýsingu að sinni. Sigurður lauk við ljóðið þennan eftir- miðdag og skilaði því til dómnefndarinnar sem strax dæmdi það fullgilt og fagurt átthagaljóð. Um kvöldmatarleytið, þann sama dag, færði Sigurður Inga sín „Atthagaljóð“ sem fullgild til flutnings á væntanlegri Austfjarða- hátíð. Ingi las þegar ljóðið yfir öll erindin fjögur, vel og vandlega og segir þá við Sigurð: „Eg verð víst að vanda mig núna við lagið ef það á að hæfa ljóði þínu, Sigurður minn. En ertu búinn úr pela þínum?“ „Nei, ekki alveg“, sagði Sigurður og rétti Inga pelann sem enn var ósnertur. „Hafðu þetta með ef þeir skyldu ekki koma með pelann þinn í tæka tíð. Þó mér þyki sopinn góður þorði ég ekki að þessu sinni að gera honum þau skil sem ég annars 22
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.