Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Side 26

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Side 26
Múlaþing smíðina en Ingi á Háubökkum. Það gerði meðal annars Gunnlaugur Jónasson í viðtali við Svavar Gests um 1976 þegar hann talaði inn á segulband hjá Svavari frásögn sína af því hvar ljóð og lag urðu til og flutt var í Ríkisútvarpinu. Frá staðarvalinu sagði aðspurður Sigurður Amgrímsson, ljóðskáldið sjálft. Ekki efa ég það að dómnefndin hafi greitt skáldalaunin en hitt er annað mál að fáum, eða engum, dettur í hug að þessir snillingar hafi látið kaupa sig til skáldverka sinna fyrir brennivín. Nei, til þess voru þeir báðir of vandir að virðingu sinni fyrir ljóðagerð og lagasmíð að þeir hafi á nokkurn hátt viljað þakka það Bakkusi að þetta ágæta verk, ljóð og lag, varð til. Guðsdýrðarroðinn og þjóðhátíðin Jón Þórarinsson, tónskáld, segir í erindi sínu áðumefndu um veðrið á þjóðhátíðar- daginn að fyrir hádegi hafi verið „þungbúið veður - þokuslæðingur í hlíðum, en þegar Ingi kom á söngpallinn og kórinn, braust sólin í gegnum skýjaþykknið og var eftir þetta sólskin og hiti í marga daga með „guðs- dýrðarroða á tindum mærum“. Mér er enn í fersku minni þessi þjóðhátíð Austurlands. Hún var sú fyrsta þar sem ég var meðal þjóðhátíðargesta og þótti mér 12 ára dreng ntikið til koma um skemmtiatriðin sem voru margvísleg, bæði íþróttir, leiksýning auk ræðuhalda og söngs. Þá er mér í minni reip- drátturinn sem fram fór á samkomusvæðinu sem var knattspymuvöllurinn áðumefndi. Þennan dag voru fjölmargar færeyskar fiskiskútur, „slúppir" eins og Færeyingar nefna fiskiskútur sínar, inni á Seyðisfirði. Milli þeirra, Færeyinganna og Austfirðing- anna, var reipdrátturinn þreyttur. Færeyingar sigruðu í þessari þraut, enda nýkomnir af sjónum þar sem þeir daglega fengu þjálfun í tógatogi því í þá daga vom ekki vélar komnar í skipin þeirra til að drífa þau áfram, heldur aðeins segl sem alltaf þurfti að vera að hagræða eftir vindi. Mér er minnistæður sá færeyski skipstjóri sem hjá þeim var í enda- lykkjunni, ja, þvílíkt tröll á allan vöxt, en það er eitt aðalatriði í reipdrætti að enda- eða lykkjumaður sé þungur. Annars voru Aust- firðingamir ekki auðsigraðir því þar vom líka með kraftamenni en ég er helst á að skófatn- aður Færeyinganna, sem var leðurklossar með trébotnum, hafi ráðið þama nokkm um því þeir beittu óspart hælunum sem negldu þá fasta við jörðina en Austfirðingamir voru á venjulegum leðurskóm sem áður voru kallaðir „dönsku skómir“, víst til aðgreiningar frá íslensku skónum sem þá vom ýmist gerðir úr leðri af nautgripum, hrosshúð, sauðaskinni eða selskinni. Svo má ekki gleyma skráps- eða roðskinnsskóm, sem sjaldan sáust. Best hefði verið að allir hefðu verið berfættir en þessi úrslit voru víst ekki tekin svo alvarlega, a.m.k. engin stig gefin eða verðlaun, einungis hrópað húrra fyrir sigurvegumnum ásamt lófaklappi. Að loknum reipdrættinum sýndu Fær- eyingamir sína þjóðlegu dansa og lögðu þar með sinn skerf til hátíðahaldanna. Þessir þætt- ir samkomunnar, sem Færeyingamir tóku þátt í, em mér einkar minnistæðir. Innanhús- skemmtunin fór fram með leiksýningu og dansi. A þessum ámm vom danssamkomur haldnar í bamaskólahúsinu. Eg minnist þess, þótt ekki tæki ég þátt í dansinum, að þar var dansað af miklu fjöri. Fyrir dansinum lék Ingi Lár af miklu fjöri og enn minnist ég hreyfinga hans við píanóið, þar var leikið af líft og sál; hann vaggaði sér til hægri og vinstri og fylgdi hljómfallinu eftir með líkama sínum, fr á hæstu til lægstu tóna, og fingraleiknin stórkostleg. En sveittur var snillingurinn, enda vel hlýtt í danssalnum. Ingi vakti þama mesta athygli mína, 12 ára snáðans. 24
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.