Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Blaðsíða 49
Björn Björnsson
skyldu, þó í kaupstað byggi, að eiga kú til
þess að tryggja næga mjólk handa börn-
unum. Björn tók landspildu á leigu (til
50 ára) hjá Jóni Jónssyni bónda á Orms-
stöðum, þar sem heitir Ingunnarveita
niðri við leirurnar, og byggði þar skýli
sem var í senn sumarbústaður og viðlegu-
hús um sláttinn. Stundum voru tvær kýr á
Bakka, löngum tveir reiðhestar, oftast
reglulegir gæðingar, og um tíma vagn-
hestur. Bílar voru enn ekki komnir í
spilið þegar Björn byrjaði verslun sína á
Norðfirði.
Faðir Björns á Bakka, Björn Bjöms-
son, elstur fjögurra ættliða og alnafna,
dvaldist hjá þeim Málfríði á Norðfirði á
efri árum sínum og andaðist þar 1936.
Hann vann að heyskapnum með syni
sínum og annaðist gripina meðan heilsan
leyfði.
Björn á Bakka verslaði með ýmis
konar varning. Hann fékkst ekki við
útgerð en um tíma keypti hann fisk og
verkaði í salt fyrir Suður-Evrópumarkað.
Fiskreitir hans munu hafa verið fyrir utan
Bakkalæk og framan í Þórhólnum. Björn
átti jafnan bát, róinn í fyrstu en seinna
vélknúinn. Hygg ég að hann hafi notað þá
farkosti eins oft til að leita uppi myndefni.
Man ég að hann kom þeirra erinda til
Mjóafjarðar oftar en einu sinni í kringum
1950.
Bjöm Björnsson tók ekki beinan þátt í
sveitar- og síðar bæjarstjórnarmálum á
Neskaupstað. En hann var einn af stofnend-
um og fyrstu ábyrgðarmönnum Sparisjóðs
Norðfjarðar og í varastjórn Sparisjóðsins
um hríð. Til gamans má geta þess að á
yngri árum var Bjöm í skotfélagi og vann til
verðlauna fyrir skotfimi.
Arið 1946 fluttist Björn Bjömsson til
Reykjavíkur og settist að á Sjafnargötu 5, í
rishæð, en fyrir bjuggu í húsinu börn hans,
Björn Björnsson ungur maður
Ari og Jóhanna og þeirra fjölskyldur. Hann
átti þá enn þrjátíu ár „til góða“ og helgaði
nú hugðarefnum, náttúruskoðun og ljós-
myndun, tíma sinn og atorku.
Dvöl Björns á Norðfirði hafði snemma
auðkennst mjög af þessum viðfangsefnum
öðrum þræði. Hann rækti dagleg störf af
fullri alúð og aldrei heyrði ég íað að því að
hann léti arka að auðnu með atvinnurekstur
sinn og afkomu. En nýtti hvert tækifæri
sem gafst til að horfa í kringum sig og taka
myndir á vettvangi. Sá vettvangur náði
raunar frá flæði að tjallseggjum eins og
myndir hans bera með sér. Nálægðin við
47