Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1998, Síða 179
Náttúrustofa Austurlands
Náttúrustofa Austurlands hefur starfað í Neskaupstað frá því í júní 1995. Hlutverk Náttúrustofunnar er
víðtækt á sviði náttúrufræða en má í grófum dráttum skipta í 3 meginþætti sem eru: Rannsóknir, söfnun
og varðveisla heimilda og gagna og fræðsla.
Allmörg verkefni hafa verið unnin hjá Náttúrustofu Austurlands frá upphafi og nokkur eru í
undirbúningi. Meginþorri verkefnanna eru umhverfisrannsóknir vegna framkvæmda og fræðsluverkefni.
Ekki hefur verið nægilega mikið unnið í gagnasöfnun um náttúru Austurlands og auka þyrfti rannsóknir af
fræðilegum toga. Aætlað er að gera sérstakt átak í söfnun gagna og heimilda um náttúru Austurlands þegar
stofan verður komin í framtíðar húsnæði.
Miðað við verkefni sl. árs er ljóst að bæta þyrfti við föstum starfsmanni til að geta sinnt þeint
þjónusturannsóknum sem bjóðast en jafnframt sinnt einhverju þróunar- og uppbyggingarstarfi.
Stjórn
Yfir náttúrustofunni starfar stjórn skipuð af umhverfisráðherra. Hlutverk hennar er að fjalla um og
samþykkja fjárhagsáætlanir og fylgjast með fjárhag og starfsemi, auk þess að ráða forstöðumann.
Skipunartími stjórnar er milli sveitarstjómakosninga. Ný stjóm var skipuð formlega af umhverfisráðherra
nú í október.
Stjórnin er þannig skipuð: Líneik Anna Sævarsdóttir, Fáskrúðsfirði, formaður, skipuð án tilnefningar
og Aðalsteinn Aðalsteinsson, Höfn, varaformaður, skipaður án tilnefningar.
Samkvæmt tilnefningu sameinaðs sveitarfélags, Eskifjarðar, Neskaupstaðar og Reyðarfjarðar:
Aðaimenn: Einar Már Sigurðarson, Neskaupstað og Jón Kristjánsson, Egilsstöðum.
Varamenn: Einar Þórarinsson, Neskaupstað og Hálfdán Haraldsson, Neskaupstað.
Fræðsluverkefni
- Fræðslustígur í fólkvangi Neskaupstaðar. Þessu verkefni var lokið á sl. sumri og einnig tók Náttúru-
stofan að sér að merkja leiðir í fólkvanginum og var því einnig lokið sl. sumar.
Rannsóknarverkefni
- Rannsóknir á hreindýrabeit í eyðibyggðum á Gerpissvæðinu. Stefnt er að því að fylgjast með gróðri
og gróðurfarsbreytingum þarna í nokkur ár.
- Fuglar í fjarðarbotnum. Náttúrustofan hefur ákveðið að reyna að afla upplýsinga um mikilvægi
fjarðarbotna og leira á Austurlandi fyrir fugla. Astæðan er m.a. sú að líklegt er að vegagerð eigi eftir að
breyta sumum þessara fjarðarbotna. Þetta verkefni fer hægt af stað þar sem ekki hefur fengist til þess
sérstakt fjármagn. Fuglatalning var þó gerð í sumar í Reyðarfirði, Eskifirði, Norðfirði og Seyðisfirði.
Umhverfisrannsóknir vegna framkvæmda
- Rannsóknir á gróðurfari og dýralífi í fjallinu fyrir ofan Neskaupstað vegna mats á umhverfisáhrifum
af fyrirhuguðum snjóflóðavörnum. Þessu verkefni var lokið sl. vetur.
- Rannsóknir á dýralífi og gróðurfari í Bjólfinum á Seyðisfirði vegna mats á umhverfisáhrifum af
fyrirhuguðum snjóflóðavörnum. Þessu verkefni lauk sl. sumar.
- Rannsóknir á gróðri í Reyðarfirði vegna fyrirhugaðs álvers. Þetta er margþætt verkefni. Það felur í
sér gróðurlýsingar, tegundaskráningu, kortlagningu gróðurs og mælingar á þekju mismunandi tegunda í
177