Jökull - 01.12.1966, Blaðsíða 58
2. mynd. Ivuggur í gjótu
nærri jökulrönd.
Ljósm.
Pljálmar R. Bárðarson.
ofan snjávar. Var aftur hafdið af stað kl. 17.35
til að reyna að finna annað mastrið og var
tjöldum slegið um kveldið 1 hálfgerðu fúlviðri
þar nærri, sem Carl taldi það mastur vera
mundu. Síðan leituðu fimm skíðamenn að Jtví
langan tíma án árangurs, enda skyggni ekkert.
Þriðjudagur 31. mai.
Sofið var alllengi frameftir, því að fýluveður
hélzt. Um 15 leytið var ákveðið að drífa sig
áfram. Kl. 16.40 rofaði skyndilega til. Guð-
mundur brá sér í stóra hringferð með Gusa
og fann brátt gamla mastrið á Pálsfjalls—Kerl-
ingar línunni og tilkynnti það gegnum talstöð.
Aftur skall á þoka, en Carl tók þó stefnu beint
á bíl Guðmundar og notaði transistor útvarps-
tæki sitt til miðunar með því að láta Guðmund
sítelja einn, tveir, þrír, fjórir, fimm o. s. frv.
í tæki sitt. Brátt tók Guðmundi að leiðast þessi
talning og spurði, hvort hann mætti ekki held-
ur lesa eitthvað huggulegt og hóf að lesa þátt
af Butralda Brúsasyni i Gerplu og var Butraldi
búinn að vinna peninga stóra og skínandi og
skríkja mikið, er Carl kom beint að bílnum
og bað þá Guðmundur að fá að lesa kaflann
upphátt til enda. Gerpla er uppáhalds lesning
Guðmundar í Gusaferðum og hafði hann áður
um daginn lesið upphátt fyrir ambassadors-
hjónin Penfield frásögnina af því, er Þormóð-
ur skáld stráir salti í höfuð Þorgeirs fóstbróður
síns.
Mœiing við mastur M 4 (gamla mastrið):
Frá efri brún 5. gjarðar að yfirborði snævar
60 cm. Nettóákoma síðan 12. júní 1965 reyndist
vera 30 cm. Gryfja var grafin niður í 2.5 m
dýpi og reyndist nettóleysing sumarið 1965
214 cm, en nettóákoma veturinn 1965/66 244
cm, vatnsgildi 120 cm.
3. mynd. Guðmundur les Butraldaþátt í Gerplu
siglingafræðingi til leiðbeiningar og farþegum
til ánægju. Ljósm. Hjálmar R. Bárðarson.
212 JÖKULL