Jökull - 01.12.1966, Blaðsíða 71
skafheiðríkt allan daginn. Á hátindi Hljóða-
bungu var lognið svo mikið, að þar var eldaður
matur á prímus og borðað. Þáðum við Óttar
þar ágæta súpu í boði Bretanna, því að við
höfðum skilið farangur okkar allan nema
myndavélarnar eftir fyrir ofan Hljóðabungu,
þar eð við ætluðum okkur til Hrolleifsborgar
á eftir. Útsýni var dásamlegt, bæði norður yfir
til Hornstranda, til Hrolleifsborgar og Reyðar-
bungu.
Eftir skamma viðdvöl kvöddum við Bretana
og héldum síðan áfram yfir að Reyðarbungu,
gengum á hana, síðan niður aftur og urðum
nú að taka alllangan sveig inn á jökul til að
krækja fyrir hættulegar sprungur vestan til við
Hrolleifsborg. — Þegar komið var á ranann við
Hrolleifsborg, var dagur að kveldi kominn. Enn
þá var þó bjart, og ákváðum við að tjalda þá
þegar í snjónum rétt ofan við grjóthrygg Hrol-
leifsborgar. Svefnstaður minn varð því hinn
sami í annað sinn, — sami og ég svaf á í snjó-
húsi fyrir 28 árum, aðeins nokkru ofar á jökul-
rananum, vegna þess live jökullinn var mirini
nú en þá.
Við elduðum okkur góðan kvöldmat, og vor-
um fljótir að sofna eftir langa göngu í hress-
andi háfjallaloftinu á jöklinum.
Og næsti morgun. Hvílík umskipti. Aftur
blindþoka, sást ekkert út frá tjaldinu. — Það
kom þó ekki að sök i bili. Við gengum upp á
hátind Hrolleifsborgar, endurbyggðum rand-
vörðuna á fjallinu, bjuggum þar til gott rúm
fyrir bókarhylki Jökulskinnu og skrifuðum
ferðaágrip og nöfn okkar í bókina. — Meðan
þessu fór fram, birti til og aftur kom sólskin og
fagurt útsýni.
Við dvöldum rnestan liluta þessa dags á
Hrolleifsborg við myndatökur og matargerð.
Þegar orðið var áliðið dags, héldum við aftur
yfir jökul, en nú beinustu leið niður í botn
Kaldalóns, niður skriðjökulinn og heim í tjald-
staðinn okkar. Þau voru drjúg síðustu skrefin
frá skriðjöklinum niður eftir Kaldalóni þetta
kvöld, og gott var að komast í svefnpokana.
Næsta dag ókum við til Reykjavíkur. Ann-
arri Drangajökulsferð okkar þetta sumar var
lokið.
Nú er Jökulskinna aftur geymd á Hrolleifs-
borg og bíður þar gesta, náttúruskoðara, sem
sækja vilja heilnæma hressingu til öræfa þessa
lands og njóta fegurðar auðnarinnar.
(Ljósmyndir (photos): Hjálmar R. Bárðarson.)
Frá félaginu
Á síðasta aðalfundi, sem haldinn var í Domus
Medica 20. janúar 1967, flutti formaður skýrslu
um starfsár félagsins frá 12. maí 1966 til 20.
janúar 1967. Komu þar m. a. fram þessi atriði:
1. Utgáfukostnaður Jökuls, 15. heftis, nam
67.562,00 krónum. Nægja félagsgjöld því ekki
fyrir þeim kostnaði. Hins vegar hefur ritið afl-
að félaginu álits og vinsælda. Fjórir fyrstu ár-
gangar eru gersamlega Jrrotnir. Voru prentaðir
i 500 eintökum.
2. Félagatala 31. des. 1966 var 341 hér á
landi, erlendis 55. Þá eru um 20 skiptisambönd,
flest erlendis. Samið hefur verið við Bókaverzl-
un Snæbjarnar Jónssonar um dreifingu og inn-
heimtu Jökuls erlendis.
3. Rannsóknir. Gerð voru ný og varanleg
merki úr járni á mælingastaði til jöklamælinga.
Áður hefur viðast verið notazt við lítt merktar
grjótvörður. — Hin árlega mælingaferð til
Grímsvatna var gerð 28. maí (1966). Vetrar-
ákoma á Tungnárjökli könnuð jafnframt. Yfir-
borð Grímsvatna hafði lækkað um 80 m í hlaup-
inu í sept. 1965
4. Nýiskáli í Jökulheimum. Unnið var að
innréttingu hans undir forustu Stefáns Bjarna-
sonar dagana 29. júlí— 1. ágúst og 6.-9. okt.
Lokið er að klæða súð og veggi með 4 x 1/2
þuml. óhefluðum furuþiljum. Er 8 mm bil milli
borðjaðra. El'tir er að ganga frá útbyggingu að
innan.
5. Snjóbílar félagsins eru orðnir mjög lélegir
og þurfa að endurnýjast sem fyrst.
6. Minningar. Loks var þess stuttlega getið,
að á þessu starfsári voru liðin 30 ár frá því að
Sænsk-íslenzki Vatnajökulsleiðangurinn var
gerður (1936). í annan stað voru liðin 15 ár
frá Fransk-íslenzka leiðangrinum (1951). Þá
sannaðist, að þykkt jökulsins er víðast livar
600—800 m í stað þess að áður hafði helzt
verið gizkað á 100 m eða jafnvel minna.
7. Lagabreytingar. Þá samþykkti aðalfundur
einróma, að félagsgjald skyldi eftirleiðis vera
kr. 200,00. Enn fremur var samþykkt að fjölga
í stjórn félagsins úr 5 í 10, en frá því verður
nánar greint í næstu ársskýrslu.
JÖKULL 225