Jökull


Jökull - 01.12.1966, Síða 66

Jökull - 01.12.1966, Síða 66
En nú skulum við aftur líta í Jökulskirinu. Þar segir 22. júní 1937, að fjórir ferðalangar fóru fram hjá Hrolleifsborg á leið úr Skjald- fannardal í Þaralátursfjörð á Ströndum, en þar voru þá á ferð þeir Gunnar Andrew skáta- foringi á Isafirði og Jón Eyþórsson veðurfræð- ingur og formaður Jöklarannsóknafélags Is- lands, ásamt tveimur ferðafélögum. Daginn eftir, þann 23. júní 1937, komu þeir til baka, gengu þá á Hrolleifsborg, og skildu eftir í vörðunni þessa nýju Jökulskinnu í forláta kop- arsívalningi með skrúfuðu loki. I þessari ferð grófu þeir tvær snjógryfjur til að kanna jökul- inn, aðra upp af Kaldalóni 3,36 metra djúpa, en hina norður af Hljóðabungu, nálægt Hrol- leifsborg 3,17 metra að dýpt. Höfðu þeir sér til aðstoðar við gryfjugröftinn menn frá Mel- graseyri og frá Þaralátursfirði. Ekki líða nema fáar vikur, þar til aftur ber gesti að garði á Hrolleifsborg. Þann 11. júlí 1937 um kl. 15 eru þar staddir 11 ferðafélagar af Ströndum, og rita þeir nöfn sín í bókina. Flestir eru þessir gestir á Hrolleifsborg frá bæj- unum í Reykjarfirði og Dröngum. Ekki er langt að bíða næstu gesta. Þann 8. ágúst 1937 koma á Hrolleifsborg fyrstu Bretar, sem nöfn sín rita í Jökulskinnu. Þeir eru fimm ferðafélagar, „Members of The Cambridge Uni- versity Iceland Expedition“. Næsta sumar, 4. júnl 1938, eru tveir ferða- félagar frá Ströndum, annar frá Reykjarfirði, hinn frá Rekavík bak Höfn, í skemmtiferð yfir Drangajökul frá Reykjarfirði að Skjaldfönn. Þeir koma við á Hrolleifsborg kl. 4 e. h. þann dag og rita nöfn sín i Jökulskinnu. Nú er stutt í næstu gestakomu, því að í Jökulskinnu stendur: „Komum hingað 12 ísfirðingar kl. um 7 e. h. hvítasunnudag 5. júní 1938. — Lögðum upp frá Unaðsdal i björtu veðri, en fengum þoku á hájöklinum. — Tjölduðum einu tjaldi og byggðum tvö snjóhús neðan til á Hrolleifsborg og höfum sofið í þeim í nótt. — Annan í hvíta- sunnu 6. júní kl. um 9 f; h.: Ntt er komin hríð, — og höldum nú af stað niður í Skjaldfannar- dal.“ — Eg minnist enn mjög vel þessarar ferð- ar á Drangajökul og þessarar stuttu ferðalýs- ingar, sem ég skrifaði í Jökulskinnu á Hrol- leifsborg, áður en við kvöddum næturgististað okkar. — í þessari ferð vorum við 9 karlmenn og 3 konur, og í þetta sinn var gengið á Dranga- jökul frá Unaðsdal við Isafjarðardjúp. Við 220 JÖKULL komum þangað á bát frá ísafirði og tjölduðum þar að kvöldi 4. júní. Að morgni þess 5. júní, hvítasunnudags, var vaknað í dásamlegu veðri, farangri pakkað saman og hann bundinn upp á hesta, sem við fengum lánaða í Unaðsdal. Upp af Unaðsdal tekur við Dalsheiði, og þar gekk Drangajökull þá ósprunginn niður á heiðina og Jtví mjög auðveldur uppgöngu, að- eins aflíðandi halli. Við jiikulröndina var tekið af hestunum, og fylgdarmaður fór með þá til byggða. Nú tók hver sinn bakpoka á herðar, og stigið var á skíðin. Veður var dásamlega fagurt, sól og heiður himinn. Fagurt var að líta niður Unaðsdal, yfir sólbjart ísafjarðar- djúp og Glámuhálendið í fjarska hinum megin Djúpsins. Við héldum hópinn og gengum á sléttri fannbreiðunni á skíðunum áleiðis á Jökulbungu, sem er hæsti staður Drangajökuls, 925 metra há. Jökulbunga Jjessi er algjörlega snævi þakin. Þar sér hvergi móta fyrir fjalllendi eða kletlum undir. Utsýni þaðan er mjög fagurt í björtu veðri. Ovíða er eins fljótt að skipta um veður og á Drangajökli. Jökulbungan er veðraskil milli veðurs við Isafjarðardjúp og Strandir, og breytt vindátt getur á svipstundu gerbreytt veðri, og þannig var það nú. Eins og veggur barst niðdimm þokan norðan af Ströndum, á meðan við vorum stödd á Jökulbungu. Sólin hvarf á svipstundu, og Jtokan byrgði allt útsýni. — Slegið var þá upp tjaldi, sem við höfðum meðferðis, og hitað kakó. Það var vel þegin hressing og hvíld. Nú var tekin stefna eftir áttavita og korti til austurs, beint á Hrolleifsborg, neðan við Reyðarbungu. Norðan á Drangajökli eru þrjár klettaborgir, Hljóðabunga, Reyðarbunga og Hrolleifsborg, sem er 851 metri að hæð og þeirra stærst. Þessar borgir eru jökulsker með miklum klettabeltum, sem hverfa inn undir jökulinn til suðurs, en að norðan eru þver- hníptir klettar. Reyðarbunga var snævi þakin fram yfir síðustu aldamót. Þá tók að ydda á hana sem hvalbak, og gaf Baldur Sveinsson henni nafn, en hann var þá eigancli Þaraláturs- fjarðar. Hin nöfnin eru miklu eldri. Vegalengdir virðast oft langar í þoku, en ferðin sóttist greiðlega á skíðunum undan hall- anum á leið til Hrolleifsborgar, — og allt í einu var sem hendi væri veifað. Öll Jiokan hvarf á svipstundu, og beint framundan okkur birtist Hrolleifsborg í glampandi sólskini. Það
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.