Jökull


Jökull - 01.12.1966, Page 68

Jökull - 01.12.1966, Page 68
2. Á hvítasunnudag 5. júní 1938. Hrolleifsborg beint fram undan, en til hægri er snævi þakin Reyðarbunga. On Whitsun-day June 5, 1938. Hrolleifsborg in the middle, the snowcovered Reyðarbunga to the right. 1960 og rita nöfn sín í Jökulskinnu, þrír karl- menn og ein kona. Þau eru á leið frá Reykjar- firði að Skjaldfönn eftir hringferð um Horn- strandir. Næst er ekki ritað í Jökulskinnu fyrr en 22. júlí 1966. Vorum við þar tveir á ferð, Óttar Kjartansson og ég, og skrifuðum eftirfarandi: „Komum hingað á Hrolleifsborg um kl. 8 að kvöldi 22. júlí 1966 gangandi frá Kaldalóni og dveljum hér í einstaklega góðu veðri í rúmlega 2 klst., en höldum síðan sömu leið til baka. Bók þessi er nú að eyðileggingu komin vegna raka. Ákváðum því, í samræmi við inngangs- orð bókarinnar, að taka hana ásamt hylkinu með okkur til byggða, og munum við senda hana Skátafélaginu Einherjurn á Isafirði til endurnýjunar." Forsaga þessarar ferðar er sú, að í viðtali við núverandi skátaforingja á ísafirði kom í ljós, að ísfirzkir skátar höfðu farið á Drangajökul um hvítasunnuna nokkur ár. Höfðu þeir þá komið bæði á Hljóðabungu og Hrolleifsborg, en ekki getað fundið Jökulskinnu á Hrolleifs- borg. Sagði ég lionum, að ég teldi mig vita, hvar hún ætti að vera, og hefði hug á að reyna að finna hana. — Það varð úr, að eftir afmælis- hátíðahöld ísafjarðarkaupstaðar ókum við Ótt- ar Kjartansson til Kaldalóns og tjölduðum þar að kvöldi 21. júlí. Næsta morgun var veður ekki sérlega bjart fyrst, og hikuðum við því við að leggja á jökulinn. Þegar leið á morgun- inn fór veður að batna, birti verulega til. Þá pökkuðum við myndavélum og mat til eins dags í bakpokana og lögðum af stað upp á Votu- björg, sunnan til við Kaldalón. Lynggróður þek- ur hlíðar fjallsins, en efra eru stórgrýttar urðir, melar og mýrlendi á milli. Þarna er ágætt að ganga, þótt stórgrýtt sé víða. Brátt taka við snjóskaflar og loks sjálf jökulbreiðan. Hér er eiginlega ekki um neina erfiða uppgöngu á jökulinn að ræða, því að hann gengur nokkuð slétt fram á fjalllendið, þótt að sjálfsögðu verði að sækja á brattann. Með því að fara upp á jökulinn af fjalllendinu, er hægt að sneiða hjá mesta sprungusvæðinu, þar sem skriðjökullinn leitar niður í botn Kaldalóns. Þótt þannig verði komizt lijá stærstu sprung- unum, verður að sjálfsögðu að fara með gát, eins og alltaf á jöklum. Sprungur geta verið huldar af nýsnævi, þótt oft geti mótað fyrir þeim á yfirborðinu, ef vel er aðgætt. Jökul- svelgirnir eru þó öllu hættulegri. Það eru trekt- laga holur í hörðum jökulísnum. Þetta eru niðurfallssvelgir vatns, sem rennur ofan á jökl- inum, þar til það hverfur niður um þessi op. Oftast er glerhált í kringum þau, og þau eru oft það víð, að maður getur hæglega runnið eftir þeim langt niður í jökul. Aldrei skyldi því ganga um þetta svæði jökulsins í myrkri, og ekki er hér bagi að bandi, ísexi og mann- broddum. Þegar ofar dregur á jökulinn, verða sprungurnar færri og mjórri, og göngufærið reyndist okkur afbragð þennan dag. Við héldum nokkuð þvert á jökulinn í glamp- andi sólskini og dásamlegu útsýni. Þegar hærra kom, fór að móta fyrir svörtum klettabeltum í fjarska, Hrolleifsborg var framundan, ský- hnoðri eða þokubakki var yfir Jökulbungu, sak- leysislegur að sjá. Pln á svipstundu magnaðist þessi þokubakki, og áður en við vissum af vor- um við umluktir þéttri þoku, svo að ekkert sást nema grá-bláhvítur jökulísinn og mjólkurlituð þokan. Við settumst niður til að fá okkur matarbita 222 JÖKULL

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.