Jökull


Jökull - 01.12.1975, Blaðsíða 16

Jökull - 01.12.1975, Blaðsíða 16
jökul, Tindfjallajökul, Torfajökul, Kerlinga- fjöll og Tungnafellsjökul. Sprungugos geta komið upp hvar sem er undir jöklum á eldgosabeltunum. Um níu gos, líklega sprungugos, hafa verið skráð á vestur- hluta Vatnjökuls síðustu fjórar aldir (Sigurður Þórarinsson 1975 a). Upptök eru óviss, en sum gosin hafa valdið jökulhlaupum í Skaftá, Hverfisfljóti, Djúpá (síðasta mikla hlaupið var 1753) og í Þjórsá (1783). Eldgos gætu valdið jökulhlaupum í eftirtöld- um ám frá Vatnajökli: Skeiðará, Sandgígjukvísl, Súlu, Djúpá, Hverfisfljóti, Skaftá, Tungnaá, Köldukvísl, Skjálfandafljóti og Jökulsá á Fjöll- um. Eldgos í Hofsjökli og Langjökli gætu valdið jökulhlaupum í Þjórsá, Jökulfalli, Norðlinga- fljóti, Blöndu og Jökulsánuml sem falla í Hér- aðsvötn. Við virkjun jökulvatna er þvx rétt að hafa hugfast, að stærstu jöklar landsins liggja innan hins virka eldgosabeltis, og reikna þarf með að virkjanir standist jökulhlaup. Stapar og móbergsfjöll eru almennt talin mynduð við gos undir jökli, í stöðuvötnum eða sjó (Mynd 6). Gert er ráð fyrir, að við gos undir jökli myndist vatnsgeymir, og kvikan berist upp í vatn á sama hátt og við gos undir sjó, sbr. Surtseyjargosið. I þessari grein er gerð grein fyrir því, hvers vegna vatnsgeymir getur mynd- ast. Yfir eldstöðinni myndast kvos í jökulinn vegna bráðnunar, vatnsrásir lokast, bræðsluvatn safnast fyrir og gosefni hlaðast upp inni í vatns- bólu á svipaðan hátt og við gos í stöðuvatni. Einnig er gerð grein fyrir lögun vatnsbólunnar. Lengd grunnflatar er margföld hæð hennar, gæti t. d. verið tíu- til tuttuguföld; sjá Mynd 3b og 6b. Skýrir það livers vegna lengd móbergs- fjalla er margföld hæð þeirra, jafnvel þótt gos- efnin lxlaðist upp á einu gosopi (sbr. Trausti Einarsson 1972, bls. 111). Mynd 6 sýnir hin ýmsu stig í myndun stapa, neðst bögglaberg, síðan móberg og efst hraun- lög. Þessi meginskipting kann að raskast við jökulhlaup. Ef vatn rennur úr bólunni við jök- ulhlaup kann hraun eða bólstraberg að myndast 1 stað lausra gosefna, uns vatn safnast fyrir á ný. 1 4 JÖKULL 25. ÁR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.