Jökull


Jökull - 01.12.1975, Blaðsíða 62

Jökull - 01.12.1975, Blaðsíða 62
niður í fjöru. Það er sjaldgæft, en þó aðgæslu- vert við sum skilyrði. Þrœladalur—Stekkagil: Rétt utan við Brekku út og upp af ysta býlinu í Brekkuþorpi (Iiast- ali) eru Stekkagil framundan Þræladal. þar geta fallið snjóflóð, en ná sjaldan í sjó. Kiðuhjallabunga — Rimaborg: Fyrir 1940 hljóp snjóflóð úr svokallaðri Kiðuhjallabungu og niður á Rimaborgina rétt innan við Einbúa og býlið Rima. Flóðið tók fjárhús og drap kind- ur. Kortið sýnir snjóflóð innan Einbúa, en hluti snjóflóð hefur einnig fallið utan Einbúa og í sjó fram milli bæjanna Rima og Haga. Hof—Eldleysa: Á þessari bæjarleið eru marg- ir hættustaðir. Talið frá Hofi er fyrst Hlífará, þá Stórurðargil, þá Selborg, þá Krosspartslækur, Þá Rangmiga, þá Einstig, sem er eitt til tvö hundruð metra innan við bæinn á Eldleysu. Eldleysa—Steinsnes: Á þessari bæjarleið voru snjóflóð einnig tíð og hættustaðir eru þar þétt- ir. Um 100 metra fyrir utan Eldleysu heitir Vogslækur, þá Festifjörugil og nokkru utar Drangsgil. Þetta voru hættulegustu staðirnir, en hlaup gátu komið víðar. Til dæmis hljóp eitt sinn á býlið Hvamm, en það var byggt aðeins fáa áratugi fram um síðustu aldamót. Slys varð ekki, því bóndi hafði gert ávala þúfu eða hól við baðstofustafninn. I Dalaskriðum eru snjóflóð tíð og hlaupstaðir margir. Mest mun hættan vera þar sem heitir Fremstagil, Krókagil, Akurgil og Moldargil, en snjóflóð koma þarna á enn fleiri stöðum. Utan við Dalaskriður er Daladalur. Niður í dalinn koma stundum smásnjóflóð úr hlíðum hans beggja vegna. Flatafjall er utan Daladals. Þar er mér að- eins kunnugt um einn hættustað, þar sem heita Nafrar á milli gömlu býlanna Dalir eða Stóru- dalir og Borg. Þess skal að lokum getið hér, að í raun eru hættusvæðin almennt talin þrjú, þ. e. í Vikun- um, undir Tóarfjalli, þ. e. á milli Hofs og Steins- ness og í Dalaskriðum. Hitt er miklu sjaldgæf- ara að snjóflóð falli á milli Hesteyrar og Brekku úr Ekrutindi, á milli Brekku og Rima úr Rimatindi og úr Flatafjalli innan við Dala- tanga. Og hlaupið á Tangann inni við Fjörð er einsdæmi eins og áður sagði. Snjóflóð við Mjóafjörð á árinu 1974. Það er erfitt að segja með vissu til um þau snjóflóð, sem féllu á árinu 1974. Hvort tveggja 60 JÖKULL 25. ÁR cr, að mannaferðir eru í snjóavetrum litlar sem engar um strandlengjuna frá Hesteyri og inn að Firði og frá Brekkujrorpinu og út að Dala- tanga og eins hitt, að snjókoma hélst áfram mikil eftir að hljóp, þannig að óljóst sést af sjó, hvort snjóflóð hafa fallið eður ei. Má vera að þetta komi betur í ljós, þegar menn byrja að paufast þessa leið á landi. En svona standa málin í dag.* (Mynd 4). Það, sem við vitum með vissu um snjóflóð í vetur, er þetta: Víkurnar: Stórt snjóflóð féll í Svarthamravík og nokkur fleiri á þessu svæði. Hesteyri — Brekkuþorp: Gilin í Ekrutindin- um munu öll hafa hlaupið frarn. Snjóflóða- svæðið náði inn fyrir Hamar og út undir Hlíð. Fór símalínan á nokkur hundruð metra kafla. Hlíð — Holt: Snjóflóð kom niður gilið utan við Hlíð og náði nú inn á túnið, tók Hlíðar- húsið, sem staðið hefur síðan um aldamót, og braut það í spón og sópaði á sjó fram að mestu. Þá kom snjóflóð fram Holtslœk á mörkum gömlu grasbýlanna Holts og Borgareyrar. Þetta cr 50—100 metrum innan við kirkjuna og álíka langt innan við innsta byggða húsið nú, Eyri. Ég hef aldrei heyrt talað um snjóflóð þarna. Þetta hlaup náði nokkuð inn fyrir nefndan læk og féll yfir grunna gamla eyðibýlisins Holts og segja sjónarvottar að verksummerkjum, að það mundi tvímælalaust hafa sópað húsinu með sér. Ég þóttist sjá greinilega utan af firði nokkrum dögum eftir að flóðið féll, að sprungið hefði fyrir á nokkur hundruð metra kafla hátt í hlíð- um, frá svonefndum Teigshömrum út og upp af Hlíð og út undir Borgareyrarána. Sýnist mér þarna hafi skriðið fram snjór á breiðu belti, en ekki náð sér fram nema niður Holtslækinn, sem áður greinir. Hitt hefur stöðvast í slakka, sem verður ofan við túnin upp af Borgareyri og upp af kirkjunni. Þrœladalur — Stekkalœkir: Snjóflóð féll niður ytra Stekkagilið niður fyrir götu. Ottast var, að innra gilið kynni að hlaupa og hafði fólkið í Kastalanum vara á sér og yfirgaf húsið nokkr- um sinnum og fór til gistingar i næstu hús. Hof — Steinsnes: A þessum kafla komu all- mörg snjóflóð og hafa sést verksummerki af sjó í Hlifará, Rangmigu og Einstigi og sennilega t Drangsgili. * Bréfið er skrifað 10. febrúar 1975.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.